Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.2008, Side 70
Nú mega sko hinir vinsælu Moggabloggarar Jenný Anna Baldursdóttir, Stefán Friðrik Stefánsson, Ómar Ragn-
arsson og Ásdís Rán fara að vara sig.
Svarthöfði ætlar að opna sína eigin
moggabloggsíðu og blogga við hverja
einustu frétt á mbl.is sem hann telur
sig varða. Svarthöfði hefur rýnt í sam-
félagið í áratugi, er glöggur mann-
þekkjari og hefur nóg af skoðunum
sem hann nennir ekki að liggja á
lengur. Svarthöfði á erindi við alþjóð
og verður því að sjálfsögðu að blogga
eins og allir hinir. Þótt Svarthöfða
skorti næmni Jennýar, skopskyn
Ómars, þráhyggjukennda elju Stefáns
og fegurð Ásdísar ætlar hann að skjóta
þeim öllum ref fyrir rass á mettíma.
Björn segir að fylla þurfi skörðin:
Nú er nóg komið Björn! Er ráðherra
dómsmála gengin til liðs við myrk-
raöflin? Blasir það ekki við hverjum
sem sjá vill að hverfi ofurlöggan Jói
Ben. á braut ásamt sínum nánustu
samstarfsmönnum á Suðurnesjum
að landið mun standa eftir galopið
fyrir dópsmyglurum, Vítisenglum og
siðblindum austantjaldsmorðingj-
um? Þetta hyski óttast ekkert nema
Jóa Ben. og nú er búið að flæma þessa
alþyðuhetju burt vegna þess að hann
er svo dýr! Það kostar pening að verja
landið Björn! Og það
átt þú að vita. Svo
dettur ráðherr-
anum ekkert
gáfulegra í hug
til að segja um
þetta ófremd-
arástand
sem hann
hefur skap-
að annað en
að það þurfi
að fylla skörð-
in. Fylla þau
með hverjum?
Annars flokks
fólki vegna þess að ofurlöggan er of
dýr. Væri bara ekki réttast að Björn
leysti deiluna með því að skilja eftir
sig skarð við ríkisstjórnarborðið. Það
skarð yrði þó í það minnsta auðfyllt.
Kynfæraaðgerðir vafasamar: Já,
þetta hefur Svarthöfði nú alltaf vitað.
Auðvitað er það galið og stórhættu-
legt að krukka í þessum líffærum sem
skaparinn gaf okkur svo við mættum
viðhalda mannkyninu. Og svo telja
menn sig vera að gera fegrunarað-
gerðir á æxlunarfærunum. Til hvers í
ósköpunum? Þessi líffæri eru ekki fyrir
augað og eiga ekki að vera það. Þau
á að fela ofan í nærklæðunum nema
rétt á meðan þau eru notuð í sínum
náttúrulega tilgangi. Svarthöfði er
sáttur við sína litlu, krumpuðu rækju
eins og hún er og hefur aldrei látið sér
detta til hugar að svara tölvupóstum
frá öllu þessu fólki úti í heimi sem veit
einhverra hluta vegna að tommurnar
hjá Svarthöfða mættu vera fleiri.
Selfoss færðist til í skjálftanum: Jahá!
merkilegt. Þarna er loksins komið
eitthvað jákvætt við þessa bansettu
landskjálfta á Suðurlandi. Best væri er
hamagangurinn verði slíkur að Selfoss
hristist bara frá landinu næst. Þá losn-
um við við þessa hvimleiðu
og svokölluðu hnakka-
menningu sem hefur
gert unga fólkið okkar
að landeyðum. Því
mun sko ekki fylgja
neinn skítamór-
all ef bærinn sem
kallaði Skítamóral
yfir okkur fer til Fær-
eyja.
Goldfinger enn til umræðu: Ætlar
þetta lið aldrei að þreytast á því að
æsa sig yfir þessum súludansi? Hvar
endar þessi vitleysa í lopapeysulið-
inu í Samfylkingunni? Auðvitað hefur
Svarthöfði megna skömm á því sem
fram fer innan veggja súlustaðanna
enda stendur hann bjargfastur í þeirri
trú að kynfæri séu ljót og eigi ekki að
vera til sýnis. Aldrei hefur Svarthöfði
komið inn á svona búllu og vill sem
minnst að þessu vita en er nokkuð
að því að vesælir og graðir karlar eyði
sínum fáu krónum þarna? Þeir dæma
sig barasta sjálfir og við þurfum eng-
in lög yfir þetta. Við verðum bara að
losna við þennan ósóma úr urmæð-
unni og auðvitað er þessi viðbjóð-
ur best geymdur í iðnaðarhverfum í
Kópavogi. Það er gott á þá sem búa í
Kópavogi!
Lindsay lengi verið lesbía: Vil ég
vita þetta? Nei! Af hverju er Mogginn
að segja mér að Lindsay sé lesbía?
Vill þetta virðulega blað þá ekki bara
líka upplýsa mig um kynhneigðir
þjóðþekktra íslenskra kvenna? Hvur-
slag della er þetta? Sjálfsagt veit ekki
stúlkugreyið sjálf í hvorn fótinn hún
á að stíga í þessum málum. Hún er
með konu í dag, karli í gær og hver
veit upp á hverju blessað barnið tekur
á morgun. Svona lagað á hrein-
lega ekkert erindi við venjulegt
fólk. Hver er svo þessi Lindsay
eiginlega? Væntanlega leikkona,
söngkona eða bara fræg fyrir að
vera fræg. Umboðsmaður hennar
ætti nú að banna henni að stíga
fram sem lesbía. Þetta hlýtur að
vera vont út á við og draga úr
áhuga karlkynsins á henni.
Og gengur ekki allt
þetta kynþokkabrölt
í þessum skjátum
út á að afla sér
vinsælda hjá
drengj-
um með
hvolp-
avit?
Maður
spyr sig.
Ef ég væri
ósmekkleg-
ur Mogga-
bloggari myndi
ég segja að þarna
færi góður biti í
hundskjaft en ég eftir-
læt öðrum hér slíkan
ósóma.
fimmtudagur 25. september 200870 Umræða
svarthofdi.blog.is
svarthöfði
reynir traustason ritstjóri skrifar Jóhann nýtur mikils og víðtæks trausts almennings.
Persónuleg heift
Leiðari
Sú ákvörðun Jóhanns R. Benediktssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum, að hverfa frá starfi sínu felur í sér váleg tíðindi. Jóhann hefur sjálfur þá tilfinningu að hann hafi
sætt einelti sem jaðrar við ofsóknir af hendi Björns Bjarnason-
ar dómsmálaráðherra. Embættið er undir dómsmálaráðherra
sem hefur haft allt á hornum sér gagnvart því. Þá er spurt hvort
ástæðan geti verið sú að embættismaðurinn Jóhann hafi staðið
sig illa. Það verður ekki séð í fljótu bragði, þvert á móti. Jóhann
nýtur mikils og víðtæks trausts almennings jafnt og samstarfs-
fólks. Enginn hefur getað sagt með rökum að hann misbeiti valdi
sínu í þágu sjálfs sín eða klíku. Hann hefur farið vel með ákæru-
vald sem þýðir að ákvarðanir hans hafa oftar en ekki leitt til sak-
fellingar. Ráðherrann Björn, sem með fólsku sinni hefur flæmt
lögreglustjórann úr embætti, hefur yfir sér allt aðra ímynd. Í
skjóli hans starfar ríkislögreglustjórinn, Haraldur Johannessen,
sem uppvís hefur orðið að spillingu og fádæma klúðri í starfi. Þar
stendur hnífurinn í kúnni. Ríkislögreglustjórinn hefur markvisst
grafið undan Jóhanni sem fellst ekki á að beita valdi sínu af per-
sónulegum ástæðum. Örlög Jóhanns í starfi gefa almenningi fullt
tilefni til að rísa gegn þeim sem böðlast á mönnum réttlætisins.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra er ekki starfi sínu vaxinn
vegna þeirrar persónulegu heiftar sem hann stjórnast af. Ef ein-
hver dugur er í Geir Haarde forsætisráðherra setur hann dóms-
málaráðherrann af. Fyrsta verk nýs dómsmálaráðherra ætti að
vera að gera starfslokasamning við Harald Johannessen. Tilval-
ið væri í framhaldinu að skipa Jóhann R. Benediktsson ríkislög-
reglustjóra og hefja endurreisn þess embættis eftir langvarandi
niðurlægingu.
spurningin
„Nei, við horfðum bara á fyrri hálfleik og
svo var æfing klukkan hálf sex eins og
vanalega hjá okkur,“ segir Guðmundur
Steinarsson fyrirliði Keflvíkinga og
markahæsti maður Landsbankadeildar-
innar þegar hann er spurður hvort
Keflvíkingar hafi klárað að horfa á leik
fH og breiðabliks. ef breiðablik hefði
náð stigi í leiknum hefðu Keflvíkingar
orðið Íslandsmeistarar en staðan var 3-
0 í hálfleik.
kláruðuð þið að
horfa á leikinn?
sandkorn
n Menn tala nú um það
sín á milli að Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgarstjóri sé
útlærð í almannatengslafræðum
eða eigi sér
mjög góða
ráðgjafa.
Frá því
hún tók við
starfi borg-
arstjóra
hefur hún
varla eða
ekki sést
nema við
jákvæðar kringumstæður. Hún
hélt boð fyrir handboltalands-
liðið þegar það kom heim og
smeygði sér inn í hátíðahöldin í
miðbænum. Hún afhenti bikar-
inn í bikarúrslitum kvenna í fót-
bolta, tók í notkun nýju strætis-
vagnaakreinina, heimsótti BSRB
og svaraði í símann í þjónustu-
veri Símans. Alls staðar var hún
mynduð með bros á vor og virð-
ist það sú ímynd sem borgarbú-
ar eiga að fá af nýja borgarstjór-
anum.
n Þessari aðferð þykir svipa
mjög til þess tíma þegar Davíð
Oddsson var einn vinsælasti
borgar-
stjóri í sögu
Reykjavíkur.
Þá var haft
á orði að
Davíð væri í
fararbroddi
þegar kæmi
að vinsæl-
um verkum
en stillti svo fram embættis-
mannakerfi borgarinnar eða
öðrum borgarfulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins þegar fjalla þyrfti
um óvinsælli mál og tilkynna
um ákvarðanir sem gætu fallið í
grýttan jarðveg.
n Undirrót þess að Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra
ákvað að láta auglýsa embætti
Jóhanns R. Benediktssonar,
lögreglustjóra á Suðurnesjum,
laust til umsóknar er af flestum
talin sú að Haraldur Johannes-
sen ríkislögreglustjóri hefur óþol
gagnvart Jóhanni. Kumpánarn-
ir Björn og Haraldur eru taldir
hafa mikla velþóknun á Sigríði
Björk Guðjónsdóttur vararíkis-
lögreglustjóra og víst að plottið
er að koma henni í starfið. Sjálf
mun hún vera klár í umsókn.
n Senn dregur að því að Ás-
mundur Stefánsson ríkissátta-
semjari láti af starfi sínu og nýr
maður taki við friðarfánanum.
Flestir reikna með því að arftak-
inn verði Magnús Gunnarsson,
fyrrverandi
formaður
Vinnuveit-
endasam-
bandsins,
sem nýtur
trausts víð-
ast hvar.
Viðbú-
ið er að
nóg verði að gera í Karphúsinu
á næstunni þegar Ásmundur
verður lagstur í ferðalög eftir far-
sæla starfsævi. Hver hópurinn af
öðrum krefst nú sama réttlætis
og ljósmæður fengu hjá Árna
Mathiesen fjármálaráðherra.
Engin þjóðarsátt er í sjónmáli.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðaLnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
ásKriftarsÍmi: 512 7080, augLýsingar: 515 70 50.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Annar var venjuleg-
ur en hinn frekar
tæpur náungi.“
n Björn Bragi Arnarson um
mennina sem hann sá kljást með
hníf í lest í Kaupmannahöfn. Björn
sagði að breski veðbankinn William Hill hefði
gefið stuðulinn 1,25 að sá tæpi hefði verið undir
áhrifum efna sem ekki er að finna í lotukerfinu. -
DV.
„Ég leik draug-
inn, ég er vondi
karlinn.“
n Halla Vilhjálmsdóttir, eða
Hatla Williams eins og hún kallar sig, um hlutverk
sitt sem morðóður draugur í myndinni Ghost
Machine. - Morgunblaðið.
„Ætli það sé ekki
að halda utan um
deyjandi mann.“
n Sigfús Sigurðsson
handboltakappi spurður um
óvenjulegustu lífsreynsluna. - Vikan.
„Ég var varla stærri en
ánamaðkur og svaf fyrstu
næturnar í skókassa.“
n Skúli Óskarsson kraftlyftingakappi sem
fæddist fjórar merkur. Hann á öll Íslandsmet sem
sett hafa verið í 75 kíló flokki í kraftlyftingum
nema í bekkpressu. - Séð og heyrt.
„Það hefur fjölgað á
áhorfendapöllun-
um jafnt og þétt í
sumar.“
n Guðmundur Steinarsson,
fyrirliði Keflavíkur í knattspyrnu, en
níu leikmenn liðsins eru nýbakaðir feður eða eiga
von á barni. Sjúkraþjálfarinn líka. - Séð og heyrt.
bókstafLega