Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 26. mars 2010 FRÉTTIR SONUR GEGN AUÐMANNI n Ógnarspenna er nú í herbúðum 365 þar sem þess er beðið hvort Jón Ásgeir Jóhannesson, aðaleigandi félagsins, nái að útvega þann milljarð sem þarf til að halda félag- inu. Meðal þeirra sem reyna allt sem hægt er til að bregða fæti fyrir athafnamanninn er Einar Sigurðs- son, sonur Guðbjargar Matthías- dóttur, aðaleiganda Morgunblaðsins. Einar starfar í Íslandsbanka og er sagður fara hamförum. Víst er að Birna Einarsdóttir bankastjóri á fullt í fangi með að hemja hann. UPPREISN ÓLÍNU n Fundarherferð útgerðarmanna gegn fyrningarleiðinni fær mismun- andi undirtektir. Í Vestmannaeyjum var fyrr í vetur mikil stemning og eintóna með Friðrik J. Arngrímssyni, framkvæmda- stjóra LÍÚ, og félögum. Það kvað við annan tón á Ísafirði þar sem andófsmenn gegn kvótanum fjölmenntu til að hlusta á ræður þeirra sem flestir töldu landauðn blasa við ef kvótanum yrði ógnað. Fyrirspurnir vor ekki leyfðar en mikið um frammíköll. Fundurinn endaði síðan með þeim ósköpum að Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður boðaði til framhaldsfundar þar sem almenningur mátti tala. SAMHERJI ÚTGERÐARMANNA n Það vekur óskipta athygli að Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og fyrrverandi skip- stjóri Samherja, er á útopnu í fundarherferð útgerðarmanna til að standa vörð um kvótann. Farmannasam- bandið var um árabil eindreginn andstæðingur kvótans og brasksins sem honum fylgir. Fyrrverandi forsetar, Guðjón A. Kristjánsson og Grétar Mar Jónsson, hafa barist með kjafti og klóm gegn kerfinu. Árni hefur greinilega talið sér vera það farsælla að hallast á sveif með útgerðarmönnum og ná þannig fram kjarabótum með góðu. GÁTTAÐUR FORMAÐUR n Meðal þeirra sem auglýstir voru sem andstæðingar fyrningarleiðar- innar í fundarboði Ísafjarðarfundar- ins var Verkalýðs- félag Vestfirðinga. Félagsmenn voru sumir hverjir ævareiðir vegna þessa og létu ófriðlega. Formaðurinn, Finnbogi Sveinbjörnsson, varð gáttaður á framsetningunni en hann hafði að sögn aðeins fallist á að vera frummælandi í þágu Friðriks J. Arngrímssonar en alls ekki stuðn- ingsmaður. Ræða hans gekk enda út á það mál að vera dreginn inn í umræðuna með þessum hætti. SANDKORN Guðlaugur Þór Þórðarson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, und- irbýr frumvarp þar sem gert er ráð fyrir að skipa rannsóknarnefnd til að rannsaka starfsemi íslensku bankanna eftir bankahrunið. Yfir- gripsmikil skrif DV um bankahrun- ið og afskriftir eftir það voru kveikja þingmannsins um mikilvægi þess að starfsemi bankanna sé rannsök- uð kirfilega. Samkvæmt frumvarpinu er nefndinni ætlað að rannsaka starf- semi bankanna frá október 2008 til loka síðasta árs og fara yfir alla gjörninga bankakerfisins. Þannig skoði hún sölu fyrirtækja, afskriftir skulda og fyrirgreiðslu til fyrirtækja og eigenda fyrirtækja í fjárhags- vanda. Gert er ráð fyrir því að þingið fái skýrslu nefndar til afgreiðslu og þar komi fram upplýsingar um fyr- irtæki og eigendur sem hafi fengið afskrifaðar skuldir yfir 500 milljón- um króna. Markmið frumvarpsins að draga úr tortryggni í garð bankanna og skapa traustan farveg í þjóðfélags- umræðunni. Þar er gert ráð fyrir því að nefndarmenn hafi heimild til þess að birta upplýsingar um einka- hagi, sem annars gildi þagnarskylda um, séu ríkir almannahagsmunir í húfi. Guðlaugur Þór leggur til að rann- sóknarnefndin fái heimild til þess að innsigla húsnæði, afgirða svæði, varna mönnum för og banna að munir séu fjarlægðir. Þá fái nefnd- in heimild til húsleita hjá opinber- um stofnunum, fyrirtækjum og öðru húsnæði sem nauðsynlegt er talið í þágu rannsóknar hverju sinni. trausti@dv.is Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður leggur til nýja rannsóknarnefnd: Vill rannsaka bankana eftir hrunið Vill rannsókn Guðlaugur Þór vill rannsaka afskriftir og sölur fyrirtækja eftir bankahrunið og leggur til að þingið komi á fót rannsóknarnefnd. Hrafn Gunnlaugsson kvikmynda- leikstjóri hefur, þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir, virt að vettugi athuga- semdir borgaryfirvalda um ólög- mæti framkvæmda bæði innan og utan lóðar hans í Laugarnesi. Síð- astliðið vor voru gerðar athuga- semdir við framkvæmdirnar og í fyrra gerði Fornleifavernd ríkisins líka athugasemdir. Eftir því sem DV kemst næst hefur Hrafn svarað hvorugu. Framkvæmdir Hrafns eru til úrvinnslu hjá tveimur sviðum Reykjavíkurborgar, framkvæmda- sviði og skipulagssviði. Á því fyrr- nefnda voru framkvæmdirnar ræddar í vikunni og ákveðið að skjóta málinu til hverfisráðs við- komandi hverfis og til stendur að senda Hrafni annað bréf með at- hugasemdum. Óvíst er hvort slíkt bréf skili árangri því fram til þessa hefur leikstjórinn ekki svarað at- hugasemdunum. Ekki sniðugt Magnús Sædal, bygg- ingafulltrúi Reykja- víkurborgar, stað- festir að ítrekað hafi verið gerðar athugasemdir við ólögmætar fram- kvæmdir Hrafns, bæði innan lóðar og utan hennar. Hann bíður eftir svörum frá Hrafni. „Hann hef- ur stað- ið í fram- kvæmd- um sem hann hefur ekki haft leyfi fyr- ir og hefur nú fengið stöðvunarbréf frá okkur. Við viljum að sjálfsögðu að hann hætti þessu því þetta er ekkert sniðugt. Bæði eru takmörk hvað menn mega gera innan lóða og svo verða menn að halda sig innan sinna lóða. Það hefur aldrei staðið á mér að taka málin föstum tökum,“ segir Magnús. Guðný Gerður Gunnarsdótt- ir borgarminjavörður bendir á að um fornminjar gildi lög sem beri að virða. Hvað Hrafn varðar segir hún að gerðar hafi verið athuga- semdir á síðasta ári án þess að hann hafi brugðist við. „Mér er ekki kunnugt um það að hann hafi sinnt þeim athugasemdum sem gerðar voru. Um fornminjar gilda lög sem segja að óheimilt sé að hrófla við þeim, óheimilt að hylja þær og í kringum þær er ákveðið varnarsvæði. Minjarnar eru sameigin- legur arfur okkar og lögin ber að virða. Hann hef- ur ekki farið eftir þessu og mér finnst það ekki nógu sniðugt,“ segir Guðný Gerður. Gagnrýnir sérmeðferð Sóley Tóm- asdóttir, borgarfull- trú vinstri grænna, skilur ekkert í þeirri sér- meðferð sem Hrafn virðist fá hjá borgaryfirvöldum. Eftir hennar beiðni var málið tekið fyrir í borg- arráði á fimmtudag. „Mér skilst að Hrafni hafi verið sent bréf síð- asta vor og nú á að fara senda hon- um annað bréf. Það er gríðarlega mikilvægt að borgaryfirvöld taki á þeim málum sem varða við regl- ur borgarinnar um meðferð lóða, bæði eignarlóða og borgarlands. Það liggur alveg ljóst fyrir að þarna er hann bæði að framkvæma í óleyfi á einkalóð og utan lóðar,“ segir Sóley. „Ég veit að byggingafulltrúi hefur þarna gert athugasemdir. Þetta land er ómetanlegt og okkur ber að hirða um þetta svæði sem slíkt. Íbúarnir mega ekki komast upp með að vanvirða svo merki- legt svæði. Að það hafi ekki ver- ið tekið á þessu er óskiljanlegt. Ég er ekki viss um að Hrafn Jónsson fengi svona fína málsmeðferð hjá borginni.“ Við vinnslu fréttarinnar var reynt að fá viðbrögð Hrafns Gunn- laugssonar en án árangurs. Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstjóri hefur lítið sem ekkert sinnt athuga- semdum frá Reykjavíkurborg vegna ólögmætra framkvæmda innan lóðar hans og utan hennar. Tvö svið borgarinnar hafa kvartað við leikstjórann og það hefur Forn- leifavernd ríkisins líka gert án þess að Hrafn hafi brugðist við. Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi efast um að Hrafn Jónsson fengi slíka sérmeðferð hjá borginni. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Við viljum að sjálfsögðu að hann hætti þessu því þetta er ekkert sniðugt. LOGANDI DEILUR KRINGUM HRAFN Ómetanlegt svæði Sóley skilur ekki hvers vegna borgaryfirvöld hafi ekki tekið á málunum enda sé verið að vanvirða merkilegt svæði borgarinnar. Svarar ekki Eftir því sem DV kemst næst hefur Hrafn hvorki svarað framkvæmdasviði borg- arinnar né Fornleifavernd ríkisins sem gert hafa athugasemdir við framkvæmdir leikstjórans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.