Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 26. mars 2010 FRÉTTIR Jón Daníelsson hagfræðingur telur lánaþörf íslenska ríkisins ekki við- líka mikla og menn væntu í kjölfar hrunsins. „Íslenska ríkið skuldar lík- lega minna en sem nemur árlegri þjóðarframleiðslu en er samt sett í flokk með verstu skuldurum í heimi. Samkvæmt opinberum tölum fjár- málaráðuneytisins ættum við ekki að vera þarna. Þetta litla lánstraust end- urspeglar ekki fjármálalega stöðu ríkisins, þannig að það er eitthvað meira sem liggur að baki. Ég held að markaðurinn meti það svo að pól- itísk áhætta sé mikil hér á landi um þessar mundir. Hann treystir því ekki að Íslendingar hafi náð tökum á að- steðjandi vandamálum.“ Þórólfur Matthíasson hagfræði- prófessor kveðst einnig hafa nokkr- ar áhyggjur af því að ekki sé nægilega markvisst unnið að jafnvægi ríkisfjár- mála og það skapi pólitíska áhættu. Pólitísk áhætta Að mati Jóns verður mati markað- arins á pólitískri áhættu ekki breytt nema með aðgerðum eins og að af- létta gjaldeyrishöftunum. „Leikregl- urnar í atvinnulífinu þurfa að vera stöðugri. Ekki ætti að hringla mik- ið með skattana og þeir mega ekki vera of háir. Niðurskurður ríkisút- gjalda verður að vera raunhæfur og menn verða að trúa því að ætlun- in sé að skera niður. Ísland ætti að hafa betra lánshæfismat en það hef- ur. En alþjóðamarkaðurinn skynjar Ísland sem einn pakka. Í honum er einnig Icesave-deilan. Mönnum er sjálfsagt sama hver niðurstaða máls- ins verður, aðalatriðið fyrir markað- inn nú er að málið verði endanlega leyst. Óleyst Icesave-málið skap- ar óstöðugleika. Gjaldeyrishöftin skapa óstöðugleika. Óvissa um rík- isfjármálin skapar óstöðugleika og sömuleiðis óvissa um raunveru- lega skuldastöðu ríkisins. Þetta leið- ir til þess að markaðurinn telur pól- itíska áhættu of mikla. Áhættan er margþætt. Hún snertir viðskipti með skuldabréf, lagaumgjörð og margt annað.“ Hugsanlega betur komin án AGS Jón segir að þetta sé bagalegt þar eð ástandið hér á landi mælist nokkru betra en vænta mátti. Önnur lönd, eins og Litháen, Grikkland og jafnvel Írland hafi farið verr út úr kreppunni. „Íslenska ríkið þarf að fjármagna tiltekin lán í lok næsta árs og árið 2012. Það er í sjálfu sér stærsti hluti þess lánsfjár sem ríkið þarf. Bent hef- ur verið á að íslenska ríkið tapar á þessum lánum frá Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum því að vextirnir sem þau bera eru hærri en vaxtatekjurnar sem íslenska ríkið hefur af því að láta þau liggja óhreyfð á banka. Ég hef einnig bent á að gjaldeyris- varasjóður, sem tekinn er að láni, er enginn alvöru varasjóður. Það væri sem sagt miklu eðlilegra ástand ef íslenska ríkið gæti fjármagnað sig á alþjóðlegum markaði án stuðnings eða samvinnu við AGS. Við þau skil- yrði kæmi Ísland frekar öðrum fyrir sjónir sem eðlilegt land. Ef íslenska ríkið gæti gert þetta er líklegt að fyr- irtækin gætu einnig farið að sækja út á lánamarkaðinn. Þetta hangir sam- an.“ Gjaldeyrismálin eins og störukeppni Um stærð gjaldeyrisvarasjóðs segir Þórólfur að lánin á bak við hann hafi átt að flýta því að unnt yrði að losa um gjaldeyrishöftin. „Það er forgangsmál að gera það. Menn meta þetta út frá þessu markmiði. Þetta er eins og hálf- gerð störukeppni. Ef gjaldeyrisvara- sjóðurinn er of lítill og létt er á höft- unum tæmist hann strax. Ef hann er nægilega stór vita þeir sem eru með allt sitt bundið í krónum að þeir græða ekki endilega á að fara hratt út með kaupum á gjaldeyri. Hugsanlega sé betra að bíða eftir því að gengi krón- unnar hækki. Að vissu leyti er það rétt að gjaldeyrisvarasjóður sem tekinn er að láni er ekki mikils virði nema í gangi sé áætlun um það hvernig lánin að baki honum verði greidd. Áætlun- in með AGS gengur út á að laga jöfn- uðinn hjá hinu opinbera. Ég óttast að Ice save-deilan hafi tafið þá vinnu mjög mikið og togi þetta allt niður á við,“ segir Þórólfur. Pólitísk áhætta „En alþjóðamarkaðurinn skynjar Ísland sem einn pakka. Í honum er einnig Icesave-deilan,“ segir Jón Daníelsson. Hagfræðingarnir Jón Daníelsson og Þórólfur Matthíasson telja báðir að langdregin Icesave-deila ásamt óvissu um ríkisfjármálin valdi því að alþjóðamarkaðurinn hafi ekki öðlast nægilegt traust á Íslandi og telji pólitíska áhættu í viðskiptum við landið meiri en ella væri. Óleyst Icesave- málið skapar óstöðugleika. Gjald- eyris höftin skapa óstöð- ugleika. Óvissa um ríkisfjármálin skapar óstöðugleika. JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is ÍSLAND - PÓLITÍSKT VANDRÆÐABARN „Útlendingar gera sér yfirleitt grein fyrir, að Íslendingar búa nú ekki aðeins við efnahagskreppu, heldur einnig óstöðugt stjórnar- far,“ segir Þorvaldur Gylfason hag- fræðiprófessor. „Það blasir við. Útlendingar leyfa Íslendingum yfirleitt að njóta sannmælis, hef- ur mér sýnst, eins og þegar norski ráðherrann sá ástæðu um daginn til að minna á, að Íslendingar beri sjálfir ábyrgð á þeim stjórnvöld- um, sem þeir hafa kosið yfir sig og leiddu landið fram af bjargbrún- inni. Enginn getur andmælt því. Útlendingar vita nú, að þrír áhrifa- mestu stjórnmálaflokkarnir þáðu stórfé af bönkunum fyrir hrun og leyfðu þeim líkt og í þakkarskyni að fara sínu fram, vaxa landinu yfir höfuð og keyra það í kaf. Útlend- ingar vita nú um spillinguna, sem hefur gegnsýrt stjórnmálalífið og viðskiptalífið.“ Þorvaldur tekur með þessum hætti undir útleggingar um að stjórnmálalegur óstöðugleiki og pólitísk áhætta standi þjóðinni fyrir þrifum. En hann bætir við spillingunni. „Ég get frætt lesendur DV á því, að Þjóðminjasafnið er nú vegna áskorana byrjað að safna skipu- legum upplýsingum um spilling- una í landinu fyrr og nú, og það er gott. Útlendingar vissu ekki áður um spillinguna hér, þeir þurftu þess ekki, en nú vita þeir um vand- ann, því að þeir hafa nú neyðst til að setja sig inn í málið. Norður- löndin hafa lagt fram mikið skatt- fé til að hjálpa Íslendingum út úr ógöngunum og þurfa því að hafa réttar upplýsingar um ástand- ið á Íslandi. Mikill fjöldi erlendra fórnarlamba bankanna, bæði lán- ardrottnar og sparifjáreigendur, krefjast þess af þarlendum stjórn- völdum, að þau heimti úrbætur af Íslendingum. Það myndu Íslend- ingar einnig gera, ef þeir stæðu í sömu sporum.“ Fyrir helgina fóru bæði fjár- málaráðherra og efnahags- og við- skiptaráðherra til fundar við Dom- inique Strauss-Kahn, forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Wash- ington. Mikil áhersla er því sýni- lega lögð á áframhaldandi sam- starf við sjóðinn. „Það væri glapræði að slíta samstarfinu við AGS. Sjóðurinn hefur reynst Íslandi vel til þessa og lagt mikið af mörkum við úrlausn ýmissa verkefna. Tafirnar á fram- kvæmd efnahagsáætlunarinnar hingað til stafa af því, að Íslend- ingar stóðu lengi vel ekki við sinn hluta samkomulagsins við sjóð- inn og þurftu ýmsar undanþágur. Engin undanþága virðist þó vera í boði varðandi Icesave-deiluna, og það er að kröfu Norðurlanda. Þau leggja fram enn meira fé en sjóð- urinn til að fjármagna áætlunina og ætlast því til, að tekið sé tillit til sjónarmiða þeirra. Sjóðurinn hefur teygt sig út á ystu nöf fyrir Ísland svo sem reglur hans fram- ast leyfa. Ísland hefur ekki burði til að rífa sig upp úr kreppunni á eig- in spýtur, nema menn sætti sig við enn frekara gengisfall krónunnar og langvarandi gjaldeyrishöft með tilheyrandi undanskotum, spill- ingu og lögbrotum. Samstarfinu við AGS er einmitt ætlað að aftra frekara gengisfalli og langvinn- um gjaldeyrishöftum og einnig greiðslufalli ríkisins.“ Útlendingar vita að stjórnmálaflokkarnir þáðu stórfé af bönkunum fyrir hrun: Spilling spillir orðsporinu Störukeppnin „Þetta er eins og hálfgerð störukeppni. Ef gjaldeyrisvarasjóðurinn er of lítill og létt er á höftunum tæmist hann strax,“ segir Þórólfur Matthíasson. Pólítísk áhætta á Íslandi „Útlendingar vita nú um spillinguna, sem hefur gegnsýrt stjórnmálalífið og viðskiptalífið,“ segir Þorvaldur Gylfason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.