Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 26. mars 2010 FRÉTTIR Sundrung ríkir nú í samskiptum öflugustu aðildarríkja Evrópu- sambandsins og hefur José Manu- el Barroso, forseti framkvæmda- stjórnar sambandsins, hvatt þjóðir evrusvæðisins til að komast að niðurstöðu um aðstoð skuldsettu Grikklandi til handa. Að sögn Barrosos yrðu svör við ákalli hans prófsteinn á skuldbind- ingu leiðtoga Evrópusambandsins hvað varðar fjárhagslegan stöðug- leika innan sambandsins, en eins og málum er háttað nú um stundir er Þýskaland, stærsta hagkerfi inn- an evrusvæðisins, á öndverðum meiði við aðrar þjóðir með tilliti til úrræða við fjárhagsvanda Grikk- lands. Í gær hófst tveggja daga ráð- stefna leiðtoga Evrópusambandsins og þó Grikklands sé ekki sérstak- lega getið á efnisskrá ráðstefnunnar brenna mál landsins á öllum. AGS – ekki ESB Það sem rekið hefur fleyg í sam- stöðu risanna í Evrópusamband- inu er andstaða Þjóðverja gegn því að Evrópusambandið verði í farar- broddi björgunaraðgerða Grikkj- um til handa og vill Angela Merkel, kanslari Þýskalands, að Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn taki við þeim beiska bikar. Aukinheldur hef- ur Angela mælst til þess að lönd- um sem rjúfa fjárhagsáætlun sam- bandsins verði refsað. Þessar hugmyndir Angelu Mer- kel njóta fylgis í hennar ranni því þýskum skattgreiðendum hugnast ekki að seilst sé í vasa þeirra til að bjarga Grikkjum úr klípunni. Ef Angela Merkel hefur sitt í gegn yrði um að ræða fyrsta skipti sem ríki innan evrusvæðisins væri bjarg- að frá Washington og að sumra mati myndi slík líflína veikja evruna enn frekar. Portúgal lækkar í einkunn Nú vill svo skemmtilega til að José Manuel Barroso, forseti fram- kvæmdastjórnar ESB, er fyrrver- andi forsætisráðherra Portúgals. Í ljósi nýrra tíðinda vekur sú áhersla sem hann leggur á samheldni öfl- ugustu aðildarríkjanna kannski ekki furðu því á miðvikudaginn lækkaði lánshæfiseinkunn Portú- gals hjá matsfyrirtækinu Fitch úr AA í AA-, og hefur það aukið á ótta um að kreppan í Grikklandi kunni að breiðast út til annarra landa í Suður-Evrópu. Eftir lækkun lánshæfis er Portú- gal í sama sæti og Írland, Ítalía og Kýpur og tveimur þrepum fyrir ofan Grikkland sem er með einkunnina BBB+. Á fimmtudaginn báðu ráða- menn í Frakklandi og á Spáni um aukafund leiðtoga á evrusvæðinu sem haldinn skyldi í aðdraganda ráðstefnunnar eða á meðan á henni stæði, í von um að hægt væri að slá á áhyggjurnar. Forsætisráðherra Hollands, Jan Peter Balkenende, var ekki hrifinn af uppástungunni og sagði slík- an fund bjóða hættunni heim, og háttsettur þýskur embættismaður ítrekaði að hvert það samkomulag sem næðist yrði að fela í sér ströng ákvæði svo unnt væri að forð- ast endurtekningu á kreppunni í Grikklandi. Argir Grikkir Í vikubyrjun virtist sem kröggur Grikkja kynnu að taka á sig nýja mynd sem birtist í því að ekki væri lengur um að ræða þjóð sem biði bjarghrings frá félögunum held- ur þjóð sem hefði áhyggjur af því að félagarnir, þeirra á meðal þýski risinn, reru að því öllum árum að gera henni erfiðara um vik að ná landi. Fyrstan má nefna til sögunnar forsætisráðherrann George Papan- dreou sem hefur viðrað þær áhyggj- ur sínar að spákaupmenn vinni að því að þrýsta upp lánskostnaði með þeim afleiðingum að aðgerðir sem hann hefur gripið til, til að vinna bug á fjárlagahallanum, fari fyrir lítið. Sagt er að vert sé að veita orð- um Papandreous gaum því hann sé þekktur fyrir að vera seinþreyttur til vandræða. Aðra sögu er að segja af aðstoð- arforsætisráðherranum Theodoros Pangalos, sem einnig var utanrík- isráðherra á sínum tíma. Hann er ekki þekktur fyrir að sitja á strák sín- um og skefur ekki af ummælum sín- um í garð Þýskalands sem hann vís- aði einhverju sinni til sem risa með barnsheila. Theodoros Pangalos bar Þjóð- verjum á brýn að þeir hefðu gefið þýskum bönkum leyfi til að ráðskast með grískar ábyrgðir, og sagði að hvað sem öllu liði hentaði það Þjóð- verjum að láta evruna falla. Eitrað andrúmsloft Eflaust eru þeir margir utan Þýska- lands sem hugsa Angelu Merkel þegjandi þörfina vegna þeirrar staðföstu kröfu hennar að Grikk- landi verði bjargað af Alþjóðagjald- eyrissjóðnum frekar en ríkjum myntbandalags Evrópusambands- ins. Varað hefur verið við því að yfir Evrópu hvíli skuggi verstu kreppu í langan tíma vegna varanlegra skulda og hægs hagvaxtar í bland við eiginhagsmunastefnu Þjóð- verja. Á vefsíðu The Times er haft eft- ir Guy Verhofstadt, fyrrverandi for- sætisráðherra Belgíu, að umræðan í Þýskalandi um Grikkland eitri and- rúmsloftið og skapi and-evrópska tilfinningu. „Á örfáum vikum erum við að eyðileggja alla viðleitni okkar til að þjappa Evrópu saman,“ er haft eftir Verhofstadt. Í þýska dagblaðinu Frankfur- ter Allgemeine Zeitung var sagt að kreppan á Grikklandi væri að „breyta pólitískum leikreglum í Evr- ópu“ og skapa efasemdir um evr- una í Þýskalandi. Á örfáum vik-um erum við að eyðileggja alla viðleitni okkar til að þjappa Evrópu saman. Óttast er að fjárhagskreppan í Grikklandi muni breiðast út til annarra landa í Suður-Evrópu eftir að lánshæfismat Portúgals var lækkað úr AA í AA- á miðvikudaginn. Þjóðverjum hefur verið borið á brýn að láta eiginhagsmuni ganga fyrir hagsmunum sambandsins. RISARNIR SUNDRAÐIR KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Að mörgu að hyggja hjá Angelu Merkel Angela Merkel þarfa að huga að ýmsu um þessar mundir. Lítill vafi leikur á að stærstur hluti þýsku þjóðarinnar fylgir henni að málum hvað varðar lausn á kreppunni sem heldur Grikklandi í fjötrum. Auk þess að fylgja sannfæringu sinni í því máli þarf Angela að horfa til kosninga í sambandslandinu Nordrhein Westfalen sem fara fram þann 9. maí. Þar á Angela Merkel á hættu að missa meirihluta sinn í efri deild þýska þingsins ef hún heldur ekki rétt á spilunum. Engu að síður hafa þýskir stjórnmálaskýrendur vakið athygli á því að ekkert fordæmi sé fyrir því sem Angela gerði í fyrri viku þegar hún fór fram á að ríki innan myntbandalagsins sættu brottrekstri við ítrekuð brot á reglum þess. Papandreou krefst samstöðu George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, hefur ekki farið dult með áhyggjur sínar vegna afstöðu Þjóðverja, en hefur engu að síður ítrekað að Grikkir muni finna lausn á eigin vandamálum. „Við förum fram á samstöðu af hálfu Evrópusambandsins og það fer fram á að við stöndum við skuldbindingar okkar. Við munum standa við okkar skuldbindingar... við munum krefjast samstöðu Evrópu og ég tel að við munum fá hana,“ sagði Papandreou eftir heimsókn af hálfu rannsóknaraðila Evrópusambandsins. Papandreou sagði að ekkert annað ríki myndi borga skuldir Grikklands. „Það er spurning um heiður og stolt þjóðar okkar að taka til í eigin ranni,“ sagði George Papandreou. Á brattann að sækja hjá Sarkozy Forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy, hefur að einhverju leyti látið innanríkismál ganga fyrir þeim áhyggjum sem kreppan í Grikk- landi hefur valdið innan Evrópusambandsins og kannski ekki að ástæðulausu í ljósi þeirrar útreiðar sem hann hlaut í héraðsstjórnar- kosningunum. Í ræðu sem hann hélt á miðvikudaginn og var ætlað að höfða til bænda landsins sagði Sarkozy: „Ég væri fyrr reiðubúinn að fá kreppu í Evrópu, áður en ég samþykkti að landbúnaðarstefna landsins liðaðist í sundur. Ég mun ekki leyfa að landbúnaður okkar líði undir lok.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.