Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Síða 26
Næmni Dags Kára Nýjasta kvikmynd Dags Kára Pét- urssonar, The Good Heart, er að öllum líkindum með betri bíó- myndum sem Íslendingur hef- ur gert. Vegna þess hversu góð og vönduð myndin er er nokkuð sér- stakt hversu lítið hefur verið rætt um hana frá því hún var frumsýnd fyrr í mánuðinum. Ein skýringin kann þó að vera sú að myndin er afar lágstemmd, lætur lítið yfir sér og myndi líklega flokkast undir að teljast artí eða list- ræn. Slíkar myndir hala yfirleitt ekki inn mikla peninga í kvikmyndahús- um og eru ekki gerðar á þeim for- sendum að græða á þeim. Mynd- ir Dags Kára eru yfirleitt þessarar tegundar en þó kom það mér nokk- uð á óvart hversu fáir gestir voru á myndinni daginn eftir að hún var frumsýnd fyrir nokkrum vikum því útkoma myndarinnar er tíðindi fyr- ir íslenska kvikymyndagerð. Ástæðan fyrir því að myndin er svo góð er fyrst og fremst sú mikla næmni sem einkennir persónu- sköpunina í henni: Myndin er afar mannleg og segir hjartnæma sögu um sérstakt samband heimilis- leysingjans Lucas (Paul Dano) og fúllynds, hjartveiks kráareiganda, Jacques (Brian Cox). Jacques tekur Lucas upp á sína arma eftir að þeir kynnast á sjúkrahúsi: Lucas hafði reynt að drepa sig en Jacques hafði fengið enn eitt hjartaáfallið og lá fyrir dauðanum. Lucas er afar góður maður en nokkuð barnalegur og hefur ekki brynjað sig fyrir illsku heimsins: Hann trúir á það góða í manninum, hegðar sér samkvæmt því en hef- ur endað á götunni þrátt fyrir gæsk- una. Öfugt við Lucas er Jacques hálf- gerður mannhatari sem stöðugt er bölvandi og ragnandi. Kaldhæðnu og illskeyttu lífsviðhorfi hans er stillt upp á móti góðvild Lucasar: Þeir eru sem svart og hvítt. Myndin er byggð upp í kringum það hvernig Jacques smám sam- an lærir að skilja hvers konar kald- lynd bestía hann hefur verið eftir því sem uppgjör hans við dauðann verður óhjákvæmilegt. Þá verð- ur það honum mikilvægt að hafa kynnst Lucasi og gæsku hans því heimilisleysinginn góði breytir lífi hans og sýn hans á tilveruna. Ingi F. Vilhjálmsson DISNEY VERÐLAUNAR EDDU ÚTGÁFU Edda útgáfa hlaut alþjóðlega við- urkenningu Disney Worldwide Publishing fyrir einstakan árang- ur í markaðsfærslu og kynningu á vörumerkjum Disney hér á landi. Viðurkenningin var afhent í Bologna á Ítalíu af Russel Hamton, forstjóra útgáfusviðs Disney Worldwide, að viðstöddum fulltrúum frá mörgum af helstu útgáfufyrirtækjum heims. Jón Axel Ólafsson tók á móti viður- kenningunni fyrir hönd starfsfólks Eddu útgáfu. Edda útgáfa hlaut við- urkenninguna ekki síst fyrir framúr- skarandi góðan árangur við að auka útbreiðslu og áskrift að Andrési Önd. UM HELGINA SÍÐASTA SÝNINGARHELGI Í GALLERÍ FOLD Síðasta sýningarhelgi á sýningum listamannana Halls Karls Hinriks- sonar og Hrafnhildar Ingu Sigurðardóttur sem staðið hefur yfir í Gallerí Fold við Rauðarárstíg um tíma. Tækifæri fyrir þá sem enn ekki hafa séð verk eftir þessa efnilegu listamenn. SKAPANDI LIST- SMIÐJA FYRIR FJÖLSKYLDUNA Boðið verður upp á örnámskeið í Hafnarborg næsta sunnudag en þá verður skapandi listsmiðja fyr- ir börn og foreldra í tengslum við sýninguna Í barnastærðum. Þar verður hægt að láta ljós sitt skína og nota sýninguna sem innblást- ur í hugleiðingar um hönnun og vinnu á verkstæði. Sýningin hefur notið mikilla vinsælda hjá öllum aldurshópum þar sem leyfilegt er að handleika hönnunargripina. Listsmiðjan hefst kukkan 14 og er aðgangur ókeypis. 26 FÖSTUDAGUR 26. mars 2010 FÓKUS BERGÞÓR MORTHENS OPNAR SÝNINGU Bergþór Morthens opnar sýninguna Jón Sigurðsson í Listasal Mosfells- bæjar næsta laugardag. Verkin á sýningunni eru tjáningarrík portrett sem skírskota til atburða, persóna og aðstæðna í samtíma okkar, svo sem nútímasamskipta, sjálfstæðis, þjóðerniskenndar og hetjudýrkun- ar. Bergþór útskrifaðist frá Mynd- listaskólanum á Akureyri árið 2004 og hefur síðan unnið ötullega að list sinni. Sýningin hefst klukkan 14. Sérstakt samband Paul Dano og Brian Cox sjást hér í hlutverkum sínum í The Good Heart. Sérstakt samband þessara gerólíku manna ber myndina uppi. THE GOOD HEART Leikstjóri: Dagur Kári Pétursson Aðalhlutverk: Paul Dano, Brian Cox, Stephanie Szostak, Damian Young, Isild Le Besco. KVIKMYNDIR „Já, ég hafði oft keyrt framhjá hjól- hýsahverfinu á Laugarvatni og alltaf fundist forvitnilegt að sjá inn á þetta svæði. Svo loksins gerði ég alvöru úr því að fara þarna inn þegar að ég hafði ákveðið að skrifa sögu um fólk í hjól- hýsahverfi,“ segir Valdís Óskarsdótt- ir, aðspurð hvort hún hafi lengi ver- ið með þá hugmynd í kollinum að gera kvikmynd um fólk í hjólhýsa- hverfi eins og gefur að líta í myndinni Kóngavegur sem Valdís leikstýrir og frumsýnd er í kvöld. Kóngavegur segir frá atburðum sem eiga sér stað þegar Júníor snýr aftur heim til Íslands eftir þriggja ára fjarveru erlendis. Júníor kemur heim í hjólhýsahverfið með vin sinn, Rubert, og ýmis vandræði í farteskinu og von- ar að faðir hans geti bjargað því. En heimkoman reynist ekki vera alveg sú sem hann átti von á. Fólk eins og ég og þú Hverfið á Laugarvatni var ekki eina hjólhýsahverfið sem Valdís heim- sótti heldur skoðaði hún líka hverfin í Þjórsárdal og í Borgarfirði. Á þess- um þremur stöðum dveljast tugir og hundruð manna langdvölum yfir árið. „Það var svona samtíningur af þessum þremur stöðum sem var steypt í eina heild í þessu hjólhýsa- hvefi sem byggt var af Gunnari Páls- syni og Harrý Jóhannssyni í Almanna- dal,“ segir Valdís en dalurinn sá er í grennd við höfuðborgarsvæðið. „Sag- an Kóngavegur er þó engan veginn byggð á neinum sem býr í þessum hverfum. Það er saga alveg út af fyrir sig.“ Valdís ræddi við suma íbúa um- ræddra hverfa og segir aðspurð þá ekki hafa verið á neinn hátt öðruvísi heldur en hún hefði gert sér í hugar- lund, af þeirri einföldu ástæðu að hún hafi ekki haft neinar fyrirframgefnar grillur um íbúana. „Þetta er bara fólk eins og ég og þú. Ég geri mér aldrei neinar hugmyndir fyrir fram um eitt né neitt því þá getur maður orðið fyr- ir vonbrigðum þar sem væntingarn- ar eru þá oftast orðnar svo miklar. Þess vegna er best að hafa ekki neitt þannig í farteskinu.“ Gaman með rokkívafi Valdís segir Kóngaveg fyrst og fremst gamanmynd. „En eins og með allar gamanmyndir verður að fylgja ein- hver alvara með því annars er ekk- ert gaman.“ Á Facebook-síðu mynd- arinnar er hún sögð vera með „létt djössuðu spennuívafi“. Valdís segir að jafnvel megi bæta við „rokkívafi“. Myndin var tekin upp síðasta haust og myndar Vesturportshópur- Kvikmyndin Kóngavegur í leikstjórn Valdísar Óskarsdóttur verður frumsýnd í dag, föstudag. Þetta er önnur mynd Valdísar sem leikstjóri en einungis er um eitt og hálft ár síðan sú fyrsta, Sveitabrúðkaup sem fékk mikið lof, var frumsýnd. ALDREI MEÐ FYRIR FRAM HUGMYNDIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.