Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 26. mars 2010 HELGARBLAÐ
Það er óákveðið hvað ég er að fara að gera, ég er aðeins að spá í spilin og velta fyrir mér næstu skrefum. Það er ekkert
ákveðið í þeim efnum,“ segir Dagur
Kári Pétursson en nýjasta mynd hans,
The Good Heart, sem skartar þeim
Brian Cox og Paul Dano í aðalhlut-
verkum, hefur fengið fína dóma hér á
landi og erlendis.
Myndin fjallar um Jacques, leikinn
af sjálfum Brian Cox, sem er frekar bit-
ur og reiður bareigandi. Hann tekur
upp á sína arma ungan heimilislaus-
an dreng sem leikinn er af Paul Dano
og reynir að þjálfa hann í að reka bar-
inn svo hann geti tekið við honum eft-
ir hans dag.
Fagmaðurinn Cox
„Það var mögnuð lífsreynsla að vinna
með Brian Cox. Hann er mikill fag-
maður og er náttúrlega með ótrúlega
reynslu. Ég hef aldrei unnið með leik-
ara áður sem hefur séð fyrir hvað fer í
myndina og hvað verður klippt út um
leið og hann er að leika.
Hann er ótrúlega tæknilegur leik-
ari. Það var oft þannig að þegar ég bað
hann um að gera eitthvað vildi hann
eiginlega ekki gera það því þá var
hann búinn að sjá myndina klippta í
hausnum á sér og vissi að ég myndi
klippa atriðið úr. Meðan hann var að
leika var hann farinn að hugsa klippi-
vinnsluna. Þetta fór pínu í taugarn-
ar á mér á köflum en svo þegar ég var
kominn við klippiborðið kom í ljós að
hann hafði yfirleitt rétt fyrir sér,“ segir
Dagur um Cox.
Cox er skoskur leikari sem er
þekktur fyrir verk sín með Royal
Shakespeare Company sem er eitt
virtasta leikhús Bretlands. Cox hef-
ur gríðarlega reynslu, bæði á sviði og
fyrir framan kvikmyndatökuvélarnar.
Þekktastur er hann fyrir hlutverk sín
í Rob Roy, Braveheart, The Ring og
Bourne-myndirnar rökuðu vel inn.
„Í krafti reynslu sinnar var eins og
hann hefði innsýn inn í allar deild-
ir. Hann gat alltaf komið með bestu
lausnina á þeim vandamálum sem
komu upp. Hvort sem það var í bún-
ingadeild, förðun eða leikmyndadeild
eða jafnvel við tæknibrellur. Hans
lausnir voru yfirleitt þær bestu. Það
var því gaman að vinna með manni
með svona mikla reynslu og yfirsýn,“
segir Dagur.
Stjörnurnar eiga að
fá góðan aðbúnað
Á móti Cox leikur Paul Dano sem flest-
ir þekkja sem bróðurinn í Little Miss
Sunshine sem þráði að verða flug-
maður. Þar fór hann á kostum. Dag-
ur Kári segir Dano einnig vera mik-
inn snilling. „Það var ótrúlega gaman
að vinna með honum. Hann er mjög
hæfileikaríkur og þroskuð sál. Hann
var ekki nema 23 ára þegar hann tók
við þessu hlutverki en hann var eins
og öldungur.“
Dano er fæddur 1984 og þykir
mjög fær leikari. Dagur segir að hann
sé rólyndispiltur og sé ekki með neina
stjörnustæla. „Ég myndi frekar kalla
þetta kröfur innan eðlilegra marka.
Þessi mynd gat ekkert boðið upp á
mikla stjörnutakta. Það þarf samt allt-
af að hlúa að þeim sem eru fyrir fram-
an myndavélina - það mæðir mikið
á þeim. Mér finnst að þeir eigi rétt á
því að allur aðbúnaður sé eins og best
verður á kosið.“
Þeir Dano og Cox hafa verið stór-
stjörnur í langan tíma - unnið með
mörgum af þekktustu og virtustu
leikstjórum heimsins. Þeir hins veg-
ar hentu öllu frá sér til að geta ver-
ið með í þessu verkefni. „Það getur
verið smá frumskógur að komast að
svona mönnum. Þeir eru umkringdir
umboðsmönnum, lögfræðingum og
þannig fólki. En þegar þeir voru búnir
að fá handritið í hendurnar gekk þetta
fljótt og hratt fyrir sig. Þeir fíluðu það
í botn og voru tilbúnir að ryðja öllum
hindrunum úr vegi til að geta verið
með.“
Allt risavaxið í New York
Myndin hefur fengið góða dreifingu
um Bandaríkin og verður sýnd í 22
borgum víða um land tækifæranna.
Þá verður hún einnig sýnd í Frakk-
landi. „Þetta er rosa gott,“ segir Dagur.
Myndin var að mestu tekin upp
hér á Íslandi sem og í Bandaríkjunum
í sjálfri New York þar sem allt er svo
stórt og mikið. Meira að segja kvik-
myndaframleiðslan er stór og mikil.
„Það er allt stærra í sniðum þar en hér.
Mér finnst gott að vinna með eins fá-
mennu tökuliði og kostur er. Það voru
fimmtán manns hérna við tökur en í
New York voru í kringum sextíu sem
þykir ekki mikið þar á bænum.“
Niðurskurðurinn hræðilegt slys
Dagur Kári vakti fyrst athygli með
myndinni Nói Albínói en síðasta
mynd hans, Voksne Mennesker sem
kom út árið 2005, hlaut mjög góð-
ar viðtökur. Hann er samt ekkert að
stressa sig á því hvað hann ætli að gera
næst. „Ég er þannig að ég vinn alveg
rosalega hægt - það háir mér kannski,
en ég á mjög erfitt með að vera með
mjög marga bolta á lofti í einu,“ seg-
ir Dagur og bætir við að hann sé ekki
að flýja land þrátt fyrir kreppu og nið-
urskurð í sínu fagi. „Þetta er hræðilegt
slys og hugsanafeill hjá stjórnvöld-
um. Það er ekki spurning að við kvik-
myndagerðarmenn vitum að það er
hart í ári og við viljum taka þátt í nið-
urskurði en þarna er verið að ræða um
aflimum. Það getur haft mjög alvarleg-
ar afleiðingar í för með sér fyrir bransa
sem er í miklum blóma. Bransa sem
skilar bæði peningum í kassann og
menningararfi. Maður hélt lengi að
þetta væru prentvillur þegar maður
las þetta fyrst. En þarna hefur átt sér
stað einhver hugsanavilla sem maður
vonar að verði leiðrétt.
En ætli maður reyni ekki að þrauka
hér á landi fram í lengstu lög.“
benni@dv.is
Dagur Kári Pétursson leikstjóri og myndin hans
The Good Heart hafa slegið í gegn að undan-
förnu, ekki aðeins hér heima heldur einnig
erlendis. Myndin fjallar um Jacques, leikin af
sjálfum Brian Cox, sem tekur upp á sína arma
ungan heimilislausan dreng sem leikinn er
af Paul Dano. Dagur Kári var með myndina
í kollinum á sér í næstum því áratug og hefur
ekki hugmynd um hvað hann ætlar að taka
sér fyrir hendur. Hann segir niðurskurð til
kvikmyndagerðarmanna vera slys og að stór-
stjörnur eins og Cox og Dano eigi rétt á því að
gera kröfur innan eðlilegra marka um aðbúnað
sinn við kvikmyndasettið.
VINNUR
Á HRAÐA
SNIGILSINS
Nýtur lífsins Dagur Kári er ekkert að
stressa sig á hlutunum og tekur lífinu
með ró. MYND KRISTINN MAGNÚSSON
Gömul hugmynd Hugmyndin að myndinni fæddist þegar Dagur var enn við nám. MYND KRISTINN MAGNÚSSON
Tveir meistarar Paul Dano og Brian Cox að
störfum í myndinni. Dagur ber þeim góða söguna.