Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Síða 52
UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON, kgk@dv.is Ingvar Gýgjar Jónsson FYRRV. BYGGINGARFULLTRÚI NORÐVESTURLANDS Ingvar fædd- ist á Hafsteins- stöðum í Skaga- firði og ólst þar upp til tíu ára aldurs en síð- an á Gýgjar hóli. Hann stundaði nám við Iðn- skólann á Sauð- árkróki, lauk sveinsprófi í húsasmíði 1953, öðlaðist meist- araréttindi 1956, kynnti sér bygg- ingatækni á Norðurlöndum, í Bretlandi og Kanada, stundaði nám til löggild- ingar fasteignaviðskipta og lauk prófum frá endurmenntunardeild HÍ í matstæknifræði 1992. Ingvar stundaði húsasmíðar til 1959, varð þá byggingarfulltrúi Norðurlandsumdæmis vestra og síðan byggingarfulltrúi Skagafjarð- ar til 2000. Ingvar sat í hreppsnefnd Stað- arhrepps 1966-86, sat í skólanefnd og barnaverndarnefnd hreppsins 1966-86 og í skólanefnd Varma- hlíðarskóla um skeið. Fjölskylda Ingvar kvæntist 30.12. 1956 Sig- þrúði Sigurðardóttur, f. 1.6. 1934, sjúkraliða og húsmóður. Hún er dóttir Sigurðar Jónssonar og k.h., Þuríðar Sigurðardóttur er bjuggu að Litlu-Giljá í Sveinsstaðahreppi. Börn Ingvars og Sigþrúð- ar eru Þuríð- ur Dóra, f. 1955, tækniteiknari og bókhaldari í Reykjavík, gift Alexander Eð- varðssyni og eiga þau fjögur börn og fimm barnabörn; Jón Olgeir, f. 1957, búfræðingur, starfsmaður Steinullarverk- smiðjunnar á Sauðárkróki og bóndi á Gígjar- hóli, kvænt- ur Gígju Rafns- dóttur og eiga þau fjögur börn og eitt barnabarn; Sigurður Haf- steinn, f. 1959, húsasmíðameist- ari og starfsmaður hjá bygging- arfulltrúa Skagafjarðar, kvæntur Berglindi Ragnarsdóttur og eiga þau fjögur börn; Magnús, f. 1960, húsasmíðameistari og bygging- arfræðingur, kvæntur Aðalheiði Reynisdóttur og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn; Ingvar Páll, f. 1972, tæknifræðingur og húsamið- ur á Sauðárkróki, kvæntur Þórunni Elfu Sveinsdóttur og eiga þau þrjú börn. Bróðir Ingvars er Jón Hafsteinn, f. 1928, fyrrv. menntaskólakennari, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Ingvars: Jón Jónsson, f. 1888, d. 1972, bóndi á Hafsteins- stöðum og Gýgjarhóli, og Sigur- björg Olga Jónsdóttir, f. 1903, d. 1997, húsfreyja. 80 ÁRA Á LAUGARDAG 80 ÁRA Á SUNNUDAG Þórdís Jónsdóttir Sandholt FYRRV. SKRIFSTOFUMAÐUR VIÐ GJALDHEIMTUNA Í REYKJAVÍK Þórdís fæddist í Reykjavík og ólst þar upp við Eiríksgötuna. Hún stundaði nám við Kvöldskóla KFUM og lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Ingimars 1948. Jafnframt heimilisstörfum vann Þórdís við bílabónun, starfaði hjá Ritsíma Íslands 1967-76 og síðan hjá Gjaldheimtunni í Reykjavík 1976-87. Fjölskylda Þórdís giftist 1.4. 1950 Óskari Jörgen Sandholt, f. 22.4.1922, d. 22.8.1985, rennismið. Hann var sonur Hjart- ar Sandholt, vélstjóra í Reykjavík, og Berthu Gunnhild Lufsted Sandholt, frá Bornholm í Danmörku. Börn Þórdísar og Óskars eru Þór- unn Sandholt, f. 6.9.1950, lyfjatæknir, búsett í Kópavogi, og eru börn henn- ar Magnús Þór Sandholt, Sigríður Erla Sandholt og Þórdís Ósk Sandholt; Gerður Sandholt, f. 3.2. 1952, versl- unarmaður í Reykjavík, gift Ívari Þ. Björnssyni, gullsmið og leturgrafara, og eru börn þeirra Birna og Ívar Björn; Guðbjörg Sandholt, f. 12.6. 1953, sölu- stjóri í Reykjavík, og eru synir hennar Gunnlaugur Jónsson og Sigmundur Sandholt Jónsson; Jens Sandholt, f. 30.1. 1957, byggingastjóri, búsettur í Mosfellsbæ, kvæntur Elínu Láru Ed- vardsdóttur framkvæmdastjóra og eru börn þeirra Rúnar Þór Árnason, Fanney Lára Sandholt og Inger Ósk Sandholt; Jón Guðni Sandholt, f. 15.7. 1958, fasteignasali, búsettur í Garða- bæ, kvæntur Guðrúnu Láru Sandholt húsmóður og eru börn þeirra Guð- rún Katrín Ólafsdóttir, Helga Margrét Ólafsdóttir, Þórunn Sandholt, Líney Sif Sandholt og Jón Guðni Sandholt; Óskar Jörgen Sandholt, f. 8.8. 1965, framkvæmdastjóri, búsettur í Reykja- vík, kvæntur Þorbjörgu Guðjónsdótt- ur húsmóður og eru börn þeirra Ósk- ar Jörgen Sandholt og Berta Sandholt. Langömmubörn Þórdísar eru nú nítján talsins. Systkin Þórdísar: Pétur, f. 24.9. 1923, nú látinn, vélstjóri í Reykjavík; Ólafur, f. 10.10.1925, nú látinn, húsa- málari og listmálari, búsettur í Kópa- vogi; Þórhallur, f. 1.10.1927, fyrrv. verslunarmaður, búsettur í Mosfells- bæ; Sigurbjörg, f. 11.1.1936, húsmóð- ir í Reykjavík. Foreldrar Þórdísar voru Jón Guðni Gunnar Pétursson, f. 1.10. 1895, d. 3.8. 1981, vélstjóri í Reykjavík, og Guðbjörg Ólafsdóttir, f. 14.6. 1894, d. 11.4. 1970, húsmóðir. Ætt Jón Guðni var sonur Péturs eldri, b. í Nýjabæ og sjómanns, bróður Péturs yngri, föður Erlendar Ó. Péturssonar, formanns KR. Pétur var einnig bróð- ir Jóns, föður Láru, ömmu Láru Ragn- arsdóttur, fyrrv. alþm. og Árna Tóm- asar Ragnarssonar læknis. Jón var einnig faðir skipstjóranna Jóns Otta og Guðmundar á Skallagrími, föður Jóns á Reykjum í Mosfellssveit. Dóttir Jóns var Ásta, amma Ástu Ragnheið- ar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis. Önnur dóttir Jóns var Guðrún, móð- ir Jóns Guðmundssonar mennta- skólakennara. Systir Péturs var Guð- rún, langamma Arnar Erlingssonar, skipstjóra í Keflavík. Pétur var son- ur Þórðar, b. og skipasmiðs í Gróttu, bróður Ingibjargar, langömmu Péturs Sigurðssonar alþm. Þórður var son- ur Jóns, skipasmiðs í Engey, bróður Guðrúnar, langömmu Bjarna Bene- diktssonar forsætisráðherra, föður Björns, fyrrv. ráðherra og Valgerðar alþm. Bróðir Bjarna var Sveinn, afi Bjarna Benediktssonar, alþm. og for- manns Sjálfstæðisflokksins, en systir Bjarna var Kristjana, móðir Halldórs Blöndal, fyrrv. ráðherra. Jón var einn- ig bróðir Guðfinnu, ömmu Bjarna Jónssonar vígslubiskups. Jón var son- ur Péturs, b. í Engey Guðmundsson- ar, lrm. í Skildinganesi Jónssonar, sem var annar þeirra sem mældi út lóð Reykjavíkur eftir að hún var gerð að sérstökum kaupstað 1786. Móðir Þórðar í Gróttu var Guðrún Þórðar- dóttir, dbrm. í Skildinganesi Jónsson- ar og Margrétar Guðmundsdóttur, systur Péturs í Engey. Móðir Jóns Guðna var Ingibjörg Jónsdóttir, b. í Litlabæ á Álftanesi Vig- fússonar, og Guðnýjar Diðriksdóttur. Guðbjörg var dóttir Ólafs, b. í Sviðnisgörðum Guðmundssonar, og Þórunnar Matthíasdóttur. Ólafur fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hann lauk gagnfræða- prófi frá Flensborg 1967, loftskeyta- mannsprófi 1969, prófi í rafmagns- tæknifræði frá Aarhus Teknikum 1976, kennaraprófi frá KHÍ 1986 og stundaði samnorrænt framhaldsnám fyrir starfsmenntakennara 1990-92. Ólafur var loftskeytamaður á Seyðisfirði og á togurum 1969-71 og í afleysingum á togurum með námi 1971-76, starfaði við Kröfluvirkjun 1977-78, var yfirmaður radíóeftir- lits Pósts og síma 1978-81, kenndi við Póst- og símaskólann 1978-84, starfaði í tölvudeild Heimilistækja hf. 1980-81, hjá Pósti og síma 1982- 84, var deildarstjóri við Iðnskólann í Hafnarfirði 1984-94, framkvæmda- stjóri Tæknibæjar frá 1991 en þó með hléum undanfarin ár sökum verkefna á erlendum vettvangi. Kreppan og hrun bankanna hafði óveruleg áhrif á rekstur fyrirtækis hans, enda skuldlaust á þeim tíma sem hún reið yfir. Ólafur sat í nefnd um slysavarnir 1979-80, var trúnaðarmaður við Iðn- skólann í Hafnarfirði 1985-89, í stjórn IÐNÚ 1985-91 og samdi og þýddi kennslubækur í rafeindatækni sem kenndar eru í starfsmenntaskólum. Þá gegndi hann formennsku í stjórn húsfélagsins að Skipholti 50c 2002- 2008. Fjölskylda Ólafur kvæntist 22.6. 1980 Agnesi Arthúrs dóttur, f. 14.9. 1950, leikskóla- kennara. Börn Ólafs og Agnesar eru Sigríð- ur, f. 21.3.1980, viðskiptafræðingur; Arthúr, f. 11.6.1983, BS í hugbúnað- arverkfræði; Gauti Rafn, f. 27.7. 1987, stúdent. Dóttir Ólafs er Íris, f. 14.9. 1977, verkfræðingur. Dóttir Agnesar er Hildur Aðal- steinsdóttir, f. 31.7. 1969, leikskóla- kennari. Foreldrar Ólafs: Ari Benjamíns- son, f. 16.11. 1917, d. 6.9. 2008, leigu- bílstjóri í Hafnarfirði, og Sigriður Ól- afsdóttir, f. 6.12. 1926, húsmóðir. Ólafur fagnar afmæli sínu á Spáni með nánustu fjölskyldu og vinafólki. KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON rekur ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma viðburði liðinna ára og minnist horfinna merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn tilkynningar um stórafmæli á netfangið kgk@dv.is 60 ÁRA Á SUNNUDAG Ólafur Arason FRAMKVÆMDASTJÓRI TÆKNIBÆJAR Þórður Grétar Árnason BYGGINGARMEISTARI Á SELFOSSI Þórður fæddist í Reykjavík, flutti í Gnúpverja- hrepp á fjórða árinu, flutti sex árum síðar á Stokkseyri en hefur átt heima á Selfossi frá 1970. Þórður hóf nám í húsa- smíði hjá tré- smiðju KÁ á Selfossi 1967 og lauk sveinsprófi 1970 og öðlaðist síðar meistara- réttindi 1973. Þórður starfaði hjá KÁ til 1974 er hann hóf að starfa sjálfstætt. Auk þess að vinna við húsasmíð- ar hefur Þórður róið nokkrar ver- tíðir á bátum frá Stokkseyri, starf- rækt bílasölu og rekið söluturn í Reykjavík. Þórður starfaði með Leikfé- lagi Selfoss í nokkur ár, sat í stjórn knattspyrnudeildar UMF Selfoss 1984-85, sat í stjórn UMF Selfoss 1985-99 og var formaður félags- ins 1996-99. Þá sat hann í stjórn Héraðssambandsins Skarphéðins 1988-94, var varaformaður þess í þrjú ár og sat í áfengisvarnanefnd Selfoss 1986-98. Fjölskylda Þórður kvæntist 5.9. 1970 Vigdísi Hjartardóttur, f. 2.3. 1951, leið- beinanda. Hún er dóttir Hjartar Leós Jónssonar, fyrrv. hreppstjóra á Eyrarbakka, og Sesselju Ástu Erlendsdóttur húsmóður. Börn Þórð- ar og Vigdísar eru Þórdís Erla, f. 15.10. 1970, snyrtifræðing- ur á Selfossi, var gift Guðjóni Ægi Sigurjóns- syni sem er lát- inn og eru börn þeirra Hjörtur Leó og Harpa Hlíf; Árni Leó, f. 7.11.1973, starf- ar við húsa- smíði, búsettur í Reykjavík og er dóttir hans Vigdís Halla. Bræður Þórðar: Hinrik Ingi, f. 11.11. 1951, húsasmiður í Reykja- vík; Sigurður Þórarinn, f. 7.11. 1952, starfsmaður við Járnblendi- verksmiðjuna á Grundartanga, búsettur í Mosfellsbæ. Hálfsystkini Þórðar: Þórir Steindórsson, f. 10.6. 1955, söðla- smiður í Svíþjóð; Anna B. Stein- dórsdóttir, f. 27.1. 1959, starfar hjá Námsgagnastofnun, búsett í Reykjavík; Steingerður Steindórs- dóttir, f. 11.9. 1962, verslunarmað- ur í Reykjavík.. Foreldrar Þórðar: Árni Theó- dórsson, f. 19.6. 1927, fyrrv. starfsmaður Olís, og Ágústa A. Valdimarsdóttir, f. 19.12. 1931, húsmóðir. Stjúpfaðir Þórðar var Steindór Guðmundsson. 60 ÁRA Á FÖSTUDAG 52 FÖSTUDAGUR 26. mars 2010 ÆTTFRÆÐI DV1003243976

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.