Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Page 54
54 FÖSTUDAGUR 26. mars 2010 HELGARBLAÐ
Páll fæddist í Reykjavík en ólst upp í
Brautarholti á Kjalarnesi og var þar bú-
settur alla tíð. Hann lauk gagnfræða-
prófi 1947, búfræðiprófi frá Bænda-
skólanum á Hvanneyri 1948, og
verklegu búfræðinámi í Eslov í Svíþjóð
1951.
Pall hóf búrekstur að Brautar-
holti 1954 og stundaði þar búskap til
æviloka. Þá starfrækti hann, ásamt
Jóni bróður sínum, grasmjöls- og gras-
kögglaverksmiðju á árunum 1963-99.
Páll sinnti ýmsum öðrum störfum.
Hann var hreppstjóri Kjalarneshrepps
1970-96, sat í stjórn Búnaðarfélags
Kjalarneshrepps 1956-90 og var for-
maður þess í átján ár, sat í stjórn Bún-
aðarsambands Kjalarnesþings 1970-
90 og var formaður þess í fimm ár, sat á
Búnaðarþingi 1978-95 og var fulltrúi á
aðalfundum Stéttarsambands bænda
frá 1980, sat í ýmsum nefndum í Kjós-
arsýslu, s.s. í jarðarnefnd Kjósarsýslu
frá stofnun, í yfirfasteignamatsnefnd
1970-78, sat í sáttanefnd Kjósarsýslu
og var formaður hennar 1970-88, sat
í sýslunefnd Kjósarsýslu 1970-88, var
einn af stofnendum Svínaræktarfé-
lags Íslands 1976 og sat í fyrstu stjórn
þess, sat í stjórn og var fyrsti formaður
Landssambands íslenskra fóðurfram-
leiðenda frá 1989 og sat í stjórnum ým-
issa fyrirtækja.
Páll sat í yfirkjörstjórn Reykjanes-
umdæmis 1970-99, gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn í Reykjaneskjördæmi, sat í kjör-
dæmisráði sjálfstæðismanna í Reykja-
nesumdæmi og í stjórn þar og var
varaþm. Sjálfstæðisflokksins 1987-91.
Páll sat í stjórn Ungmennafélags
Kjalnesinga á sínum yngri árum og var
formaður þess um skeið, sat í stjórn
Ungmennasambands Kjalarnesþings
1954-64 og var formaður þess í sex ár
og starfaði í Rotaryklúbbi Mosfells-
bæjar frá stofnun hans, árið 1981, og
til æviloka. Hann var áhugamaður um
söng og var mestalla ævi sína í kór-
um s.s. kirkjukór Brautarholtssóknar,
Karlakór Kjalnesinga og Karlakórnum
Stefni.
Fjölskylda
Páll kvæntist þann 30.3. 1963 Sigríði
Kristjönu Jónsdóttur, f. 30.7. 1936, d.
30.12. 1998, hjúkrunarfræðingi. Hún
var dóttir Jóns Gauta Jónatanssonar,
f. 14.10. 1907, d. 20.2. 1964, rafmagns-
fræðings, og Guðrúnar Kristjánsdóttur,
f. 4.2. 1909, d. 27.10. 2001, húsmóður.
Börn Páls og Sigríðar eru Guðrún, f.
29.9. 1963, lyfjafræðingur en sambýlis-
maður hennar er Sveinn G. Segatta, f.
11.11. 1962, viðskiptafræðingur og eru
börn Guðrúnar Sigríður Katrín Stef-
ánsdóttir, f. 29.12. 1992, og Hilmar Páll
Stefánsson, f. 4.7. 1998, en dóttir Sveins
er Vigdís Björk, f. 21.3.1986; Ásta, f.
15.2. 1965, gift Gunnari Páli Pálssyni,
f. 5.10. 1961, viðskiptafræðingi og eru
börn þeirra Páll, f. 10.10. 1991, Bjarni,
f. 29.1. 1993 og Aðalsteinn Ari, f. 17.1.
2002; Þórdís, f. 4.3. 1968, kennari en
sonur hennar og Ottós Sverrissonar er
Ólafur Arnar, f. 19.9. 1995; Ingibjörg, f.
24.3. 1969, gullsmiður; Bjarni, f. 25.5.
1972, viðskiptafræðingur; Ólöf Hildur,
f. 19.3. 1977, viðskiptafræðingur, gift
Sigurði Valgeiri Guðjónssyni, f. 10.2.
1973, lögfræðingi og eru dætur þeirra
Krístín Ásta, f. 30.3. 2003, og Hildur
Helga, f. 20.8. 2008.
Systkini Páls: Bjarni Ólafsson, f.
26.4. 1926, d. 11.1. 1948; Ingibjörg Ól-
afsdóttir, f. 24.7. 1927, d. 27.8. 2007,
hjúkrunarfræðingur; Ólafur Ólafsson,
f. 11.11. 1928, fyrrv. landlæknir og fyrrv.
formaður Landssambands eldri borg-
ara; Jón Ólafsson, f. 26.4. 1932, d. 14.6.
2004, bóndi í Brautarholti.
Foreldrar Páls voru Ólafur Bjarna-
son, f. í Steinnesi í Þingi í Austur-Húna-
vatnssýslu 19.9. 1891, d. 13.2. 1970,
bóndi og hreppstjóri í Brautarholti
og k.h., Ásta Ólafsdóttir, f. að Lundi í
Lundarreykjardal 16.3. 1892, d. 8.4.
1985, húsfreyja.
Ætt
Meðal systkina Ólafs var Ingibjörg,
móðir Bjarna Rafnar, fyrrv. yfirlækn-
is og Jónasar Rafnar, bankastjóra og
alþm.; Jón, héraðslæknir á Kleppjárns-
reykjum, afi Ragnheiðar Ástu Péturs-
dóttur útvarpsþular; Björn, cand.mag.
og yfirkennari, Gísli lögmaður, afi Kol-
brúnar Baldursdóttur sálfræðings, og
Steinunn, móðir Baldurs Símonarson-
ar, prófessors og lífefnafræðings. Ólaf-
ur var sonur Bjarna, prófasts í Steinnesi
Pálssonar, dbrm. á Akri í Þingi, bróð-
ur, samfeðra, Guðmundar, b. á Kirkju-
bæ í Norðurárdal, afa Sigurðar Nordal
prófessors, föður Jóhannesar Nordal
seðlabankastjóra, föður Ólafar alþm.
Guðmundur var einnig afi Jónas-
ar Kristjánssonar, alþm. og læknis á
Sauðárkróki, afa Jónasar Kristjánsson-
ar, fyrrv. ritstjóra. Annar hálfbróðir Páls
var Frímann, afi Valtýs Stefánssonar
Morgunblaðsritstjóra, og Huldu Stef-
ánsdóttur skólastjóra, móður Guðrún-
ar Jónsdóttur arkitekts. Páll var sonur
Ólafs, b. á Gilsstöðum í Vatnsdal Jóns-
sonar og Steinunnar, systur Sigríðar í
Bjarnarhöfn. Steinunn var dóttir Páls,
pr. á Undirfelli Bjarnasonar, bróður
Ingibjargar, langömmu Ólafs Hjartar,
afa Ólafs Ragnars Grímssonar forseta.
Móðir Páls á Undirfelli var Steinunn
Pálsdóttir, systir Bjarna landlæknis,
afa Bjarna Thorarensen, amtmanns
og skálds, og Guðrúnar, langömmu
Ástu, ömmu Davíðs Oddssonar Morg-
unblaðsritstjóra. Móðir Steinunnar á
Gilsstöðum var Guðrún Bjarnadóttir,
systir Agnesar, langömmu Ágústs H.
Bjarnasonar heimspekings.
Móðir Ólafs í Brautarholti var Ingi-
björg Guðmundsdóttir, hreppstjóra á
Sjávarborg Sölvasonar, bróður Ingi-
bjargar, ömmu Jakobs Benediktssonar,
forstöðumanns Orðabókar HÍ. Móð-
ir Ingibjargar var Margrét Björnsdóttir.
Meðal systkina Ástu voru Páll, fað-
ir Ólafar myndhöggvara og Jens mann-
fræðings; Jón læknir, faðir Hilmars
Foss; Kristín læknir, kona Vilmund-
ar landlæknis, amma Þorsteins heim-
spekings, Vilmundar ráðherra og Þor-
valds hagfræðings, og Guðrún, móðir
Ólafs Björnssonar, hagfræðings og
alþm. Ásta var dóttir Ólafs, prófasts
í Hjarðarholti Ólafssonar. Móðir Ól-
afs var Metta Ólafsdóttir, systir Maríu
langömmu Guðrúnar Agnarsdóttur,
forstjóra Krabbameinsfélags Íslands.
Móðir Ástu var Ingibjörg Pálsdótt-
ir, pr. í Arnarbæli Mathiesen Jónssonar,
pr. í Arnarbæli Matthíassonar, stúdents
á Eyri Þórðarsonar, ættföður Vigu-
rættar Ólafssonar, ættföður Eyrarættar
Jónssonar, langafa Jóns forseta. Móð-
ir Páls var Ingibjörg Pálsdóttir, systir
Gríms, langafa Ásgeirs Ásgeirssonar
forseta, og systir Margrétar, langömmu
Margrétar, móður Ólafs Thors forsæt-
isráðherra. Móðir Ingibjargar var Guð-
laug Þorsteinsdóttir, systir Agnesar,
langömmu Eggerts Haukdal og Guð-
rúnar, móður Þórhildar Þorleifsdóttur,
fyrrv. alþm. og leikhússtjóra.
Páll verður jarðsunginn frá Hall-
grímskirkju föstudaginn 26.3. kl. 13.00.
Þórarinn
Guðmundsson
FIÐLULEIKARI OG TÓNSKÁLD
f. 27.3. 1896, d. 25.7. 1979
Þórarinn fæddist á Akranesi er
faðir hans, Guðmundur Jakobs-
son, húsasmíðameistari og síðar
byggingarfull-
trúi og hafn-
arvörður
í Reykja-
vík, var
þar að
ljúka við
kirkju-
smíði.
Bróðir
Þórarins
var Eggert
Gilfer, orgel-
og píanóleikari en fyrst og síðast
eitt af stóru nöfnunum í íslenskri
skáksögu. Hann varð sjö sinnum
skákmeistari Íslands og náði m.a.
að máta Casabanca í fjöltefli er sá
síðarnefndi var enn heimsmeist-
ari.
Guðmundur var sonur Jakobs
Guðmundssonar, prests og alþm.
að Sauðfelli, afa Jakobs Smára,
skálds og þýðanda.
Móðir Þórarins og Eggerts var
Þuríður, systir Árna, prófasts Þór-
arinssonar, sem meistari Þór-
bergur gerði ódauðlegan með
þriggja binda ævisögu séra Árna.
Þuríður og Árni voru af þekktum
sunnlenskum ættum, börn Þór-
arins Árnasonar jarðyrkjumanns
en móðir hans var Jórunn, systir
Tómasar Sæmundssonar Fjölnis-
manns, af Presta-Högnaætt. Móð-
ir Þuríðar og Árna var Ingunn,
dóttir Magnúsar, alþm. í Syðra-
Langholti Andréssonar, og Katr-
ínar Eiríksdóttur, ættföður Reykj-
ættar á Skeiðum Vigfússonar.
Þuríður fór með syni sína,
Þórarinn og Eggert, kornunga til
Kaupmannahafnar og hélt þeim
þar heimili meðan þeir lærðu við
Tónlistarháskólann. Þar lauk Þór-
arinn prófi í fiðluleik, fyrstur Ís-
lendinga, 1913, og stundaði síðar
framhaldsnám í Þýskalandi.
Þórarinn var merkur braut-
ryðjandi sem hafði mikil og
margþætt áhrif á íslenskt tón-
listarlíf sem fiðluleikari, hljóm-
sveitarstjóri, tónskáld og kenn-
ari, en nemendur hans í fiðluleik
skiptu hundruðum. Hann og Emil
Thoroddsen voru fyrstu tónlist-
armennirnir sem ráðnir voru til
Ríkisútvarpsins við stofnun þess,
1930, en ásamt Þórhalli Árnasyni
sellóleikara urðu þeir fyrsti vísir-
inn að Útvarpshljómsveitinni sem
síðar varð að Sinfóníuhljómsveit
Íslands, sem stofnuð var 1950.
Þórarinn var fyrsti stjórnandi
Útvarpshljómsveitarinnar, stofn-
andi Hljómsveitar Reykjavíkur
1921 og fyrsti stjórnandi hennar,
og einn af stofnendum Félags ís-
lenskra tónlistarmanna 1940 og
fyrsti formaður þess.
Þórarinn samdi nær eingöngu
sönglög. Sum þeirra urðu feiki-
lega vinsæl og eru fyrir löngu orð-
in klassísk með þjóðinni, s.s. Þú
ert, Kveðja og Dísa.
Endurminningar hans, Strok-
ið um strengi, komu út 1966, og
lagasafn hans kom út 1996.
MINNING
Páll Ólafsson
BÓNDI OG FYRRV. HREPPSTJÓRI Í BRAUTARHOLTI Á KJALARNESI -
MERKIR
ÍSLENDINGAR
Fæddur. 16.3. 1930 - Dáinn. 16.3. 2010
Páll í Brautarholti var sannur sveit-
arhöfðingi. Hann naut líka trausts
sveitunga sinna og raunar allra
þeirra mörgu sem höfðu af honum
kynni. Líf sitt helgaði hann búnað-
arstörfum og var hinn mesti frum-
kvöðull á þeim vettvangi, svo sem
var og bróðir hans, Jón heitinn, en
þeir bræður stunduðu búskapinn
á hinni merku jörð, Brautarholti á
Kjalarnesi. Í þessum fáu kveðju-
orðum mínum tel ég ekki upp þau
trúnaðarstörf sem hann sinnti af trú-
mennsku um langa æfi. Það verð-
ur gert á öðrum stað.
Aðeins þakka ég nú á
kveðjustund vináttu og
tryggð við mig á liðnum
fjórum áratugum. Hann
var ötull stuðningsmað-
ur Sjálfstæðisflokksins
í hinu gamla Reykja-
neskjördæmi, átti sæti
um árabil í kjördæmis-
ráðinu og var varaþing-
maður eitt kjörtímabil.
Og allt til hins síð-
asta sótti hann fundi á vegum flokks-
ins. Þannig eru aðeins
fáar vikur liðnar frá því
við hittumst síðast á
fundi í Valhöll.
Páll varð 80 ára gam-
all, lést á fæðingardegi
sínum þann 16. mars
2010.
Það er söknuður og
eftirsjá að manni eins og
Páli í Brautarholti.
Samúðarkveðjur
sendi ég niðjum hans og
öðrum ættingjum.
Eftirmæli eftir Ólaf G. Einarsson
FYRRV. ALÞM., MENNTAMÁLARÁÐHERRA, ÞINGFLOKKSFORMANN OG FORSETA ALÞINGIS