Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2010, Page 65
HELGARBLAÐ 6. mars 2010 FÖSTUDAGUR 65
BROTTFLUTTAR STJÖRNUR
ÁSDÍS RÁN GUNNARSDÓTTIR
n Íslenska ofurbomban. Flutti ásamt eiginmanni sínum,
Garðari Gunnlaugssyni, til Svíþjóðar og svo þaðan til Búlgaríu.
Ásdís sló heldur betur í gegn í Búlgaríu og var orðin lands-
þekkt þar á örskömmum tíma. Garðar hefur nú samið við lið í
Austurríki en Ásdís er ekki eins spennt fyrir því og Búlgaríu.
SIGURJÓN SIGHVATSSON
n Kvikmyndamógúll Íslands og sá maður sem hefur náð
lengst í Hollywood. Er með flesta stórleikara Hollywood á
speed-dial. Kemur reglulega heim en er ekki að fara að flytja
hingað.
EGILL ÖRN EGILSSON
n Jafnan kallaður Eagle Egilsson og hefur gert það gott
sem einn af leikstjórum og framleiðendum þáttanna C.S.I.
Miami.
Fluttu eftir hrun
STURLA JÓNSSON
n Einn frægasti mótmælandi
Íslands fyrr og síðar ákvað að
flytja til Noregs í atvinnuleit.
Hann var einn af þeim sem gáfu
landsmönnum innsýn í líf sitt í
myndinni Guð blessi Ísland.
EVA HAUKSDÓTTIR
n Oftar en ekki kölluð Eva norn.
Var einnig í myndinni Guð blessi
Ísland og einn af mest áberandi
mótmælendunum í búsáhalda-
byltingunni. Hún býr núna í
Danmörku og er ekki á heimleið.
FRIÐRIK ÓMAR HJÖRLEIFSSON
n Eins og DV greinir frá í dag er söngvarinn og Eurovi-
son-stjarnan Friðrik Ómar að flytja af landi brott. Hann
er að fara að flytja til Svíþjóðar og er nýkominn þaðan
þar sem hann leitaði sér að húsnæði.
SKJÖLDUR EYFJÖRÐ
n Flutti til Noregs ásamt kærasta
sínum í október 2009. Þeir fluttu til
Stavanger í Noregi þar sem Skjöldur
hefur meðal annars snúið sér að
skartgripagerð og glerlist.
ÞÓRA TÓMASDÓTTIR
n Þóra ákvað að flytja til Noregs eftir að
henni var sagt upp störfum í Kastljós-
inu. Þóra þekkir vel til í Noregi enda
lærði hún heimildamyndagerð þar á
sínum tíma.
AUÐMENN OG ÚTRÁSARVÍKINGAR
n Flestir af ríkustu mönnum landsins og hinum svokölluðu
útrásarvíkingum eru með lögheimili erlendis. Sumir þeirra bjuggu
erlendis fyrir hrun en aðrir flúðu þangað eftir hrun. Björgólfur Thor
Björgólfsson, Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson og Ólafur
Ólafsson eru á meðal þeirra sem eru búsettir erlendis.