Bridge - 12.09.1957, Page 3
¥
BRIDGE
A
♦ *
1. tbl.
12. september 1957
1.
árg.
Ávarp forseta Bridgesambands íslands
Með óblandinni ánœgju fagna ég útkomu tímaritsins
BRIDGE, sem nú er að hefja göngu sína.
Allar okkar nágrannaþjóðir, og aðrir sem við höfum
saman við að sœlda i bridge-málefnum, hafa hvert sitt tima-
rit, en þessi tímarit gera meira en að fœra fréttir og frásagnir
frá sinu eigin landi, þau flytja fréttir og bera nýjungar frá
öðrum löndum eða heimsálfum, allt það, sem verða kann til
framdráttar bridgeíþróttinni, og sem hverjum áhugasömum
bridgemanni er nauðsynlegt að kynna sér. Þetta verður einnig
hlutverk BRIDGE.
Þetta tímarit fer af stað fyrir atorku og dugnað nokk-
urra einstaklinga, en ég vona, og veit, að þeir einstaklingar
sem að því standa, œtla sér að gera ritið þannig úr garði, að
þaö verði hverjum manni nauðsynlegt.
BRIDGE mun eiga erindi til allra, kvenna sem karla,
ungra sem aldna, þvi bridgeiþróttin er iþrótt fjöldans, og trú
mín er sú, að með útkomu þessa rits séu mörkuð tímamót í
sögu bridgeiþróttarinnar hér á landi, þannig að tugir, eða
jafnvel hundruð manna, bœtist i hóp þann sem fyrir er, og
stunda þessa göfugu iþrótt.
Allir vilja fylgjast með þvi sem gerist í umheiminum
og ég er þess fullviss, að ritið bregst ekki vonum bridgeunn-
enda hér, enda mun útgefendum Ijóst, að efniszal af alúð og
kostgœfni mun afla þvi vinsœldanna.
Ég óska að færa útgefendunum hamingjuóskir í til-
efni þessa stóra skrefs, sem nú er stigið, og alúðarþakkir fyrir
þann dugnað og framtakssemi sem þeir hafa hér sýnt.
Megi farsœld fylgja BRIDGE.
OLAFUR ÞORSTEINSSON.