Bridge - 12.09.1957, Blaðsíða 21
BKIDGE
21
Tveir íslendingar spila í Englandi
Bridgesambandi íslands barst í
vor boð frá Englandi um að senda
eitt par í tvímenningskeppni, sem
haldið verður þar i landi í haust
í tilefni af 125 ára afmæli fyrir-
tækisins Thomas De La Rue og
Co.. en það fyrirtæki framleiðir
spil og fleira. Verður mjög vand
að til þátttakenda í móti þessu og
munu margir heimsfrægir spilarar
keppa þar.
Boð þetta var tekið fyrir á árs-
þingi Bridgesambands íslands, er
haldið var í Borgarnesi síðast í
maí sl., og þar var samþykkt, að
farið skyldi eftir árangri í síðasta
landsmóti i tvímenning (Barómet
erkeppnin) og efsta par þar
skyldi fá rétt til að spila í Eng-
landi. Ef það gæti að einhverjum
ástæðum ekki farið skyldi gengið
á röðina.
Þessi samþykkt Bridgesambands
þingsins hefir sætt talsverðri gagn
rýni, og fer ekki hjá því að hún
hafi við talsvert mikil rök að styðj
ast. Hér er um stórmót að ræða í
Englandi og því til mikils að
keppa. Nægur tími var til stefnu
til þess, að koma á fót sérstakri
keppni í sambandi við val á pari,
sem allir hefðu átt að geta un-
að við, — umferðir hefðu átt að
vera margar til að fá sem réttasta
niðurstöðu — og það par, sem til
Engiands hefði farið, hefði í
keppninni átt að fá góða æfingu.
En sem sagt Barómeterkeppnin
var látin ráða. Efsta par í henni
voru þeir feðgarnir Sigurður Krist
jánsson, Siglufirði, og Vilhjálmur
Róbert og Óli Örn.
Sigurðsson. Vegna þátttöku Vil-
hjálms í EM í Vín gátu þeir ekki
tekið boðinu. Næsta par, Sigur-
hjörtur Pétursson og Þorsteinn
Þorsteinsson, höfnuðu einnig af
sömu ástæðu þessu góða boði. Til
Englands fer því þriðja parið í
Barómeterkeppninni, Óli Örn Ól-
afsson frá Akranesi, og Róbert
Sigmundsson, Reykjavík. Það sem
hér hefir verið sagt á undan er alls
ekki gagnrýni á að þessir menn
spili í Englandi — þeir verða
áreiðanlega góðir fulltrúar lands
síns, og er ástæða til að óska þeim