Bridge - 12.09.1957, Blaðsíða 17
BKIDGE
17
Ég hældi henni fyrir að hafa
fundið út örugga kastþröng — og
fyrir að hafa spilað austri inn á
réttu augnabliki — og hún virt-
ist mjög ánægð. Miklu ánægðari
en ég leit út — er ég hræddur
um.
Árangur: N-S 1210 stig.
Par nr. 5 spilaði sex hjörtu á
spilið. Suður, vellríkur kínversk-
ur verzlunarmaður, var ekki að
hika við hlutina. Eftir þriggja
spaða sögn austurs sagði hann 4
grönd (Blackwood). Norður sýndi
Ás sinn með því að segja fimm
tígla, sem austur doblaði. Kínverj
inn sagði þvi næst sex hjörtu
beint, sem var doblað af austur.
— Þetta var áreiðanlega upp-
lýsinga dobl til að fá rétt útspil —
sagði Kínverjinn — en mér var al
veg sama þó tígli væri spilað út.
Látum þá trompa tapslag minn -—
sagði ég við sjálfan mig og re-
doblaði.
Jú, jú, vestur spilaði út tígli,
austur trompaði og spilaði spaða.
Ég tók Ásinn og þar sem mis-
heppnuð laufasvíning myndi á-
reiðanlega hafa í för með sér ál-
geran botn í spilinu, ákvað ég að
reikna með, að austur ætti laufa
D. Eins og spilin lágu heppnaðist
kastþröngin og það er allt og sumt.
Árangur: N-S 1570 stig.
Par nr. 6 fékk ágæta skor fyrir
spilið án þess að þurfa að spila
hendina. Suður hafði að vísu sagt
sex hjörtu, en austur fórnaði í sex
spaða. Það reyndist einum tapslag
of mikið í þeirri sögn og árangur
N-S varð 1100 stig.
Enginn hafði nokkra samúð með
mér — eða sýndi minnsta áhuga
— vegna núllsins. Ég fékk mér
tvöfaldan viskí og fór síðan heim.
Reglugerð ...
Framhald af bls. 5.
taka á móti tilkynningum um bátt-
töku, hver frá sínum félagsmönn-
um, og skulu þeir síðan senda
stjórn sambandsins þær ásair.t
nöfnum allra þátttakenda fyrir 29.
sept. n. k.
4. Þátttökugjald fyrir hverja
sveit er ákveðið kr. 400.00 og skal
greiðast við innritun. Gjald þetta
rennur til Bridgesambandsins.
5. Úrslitakeppni fer fram í Rvk
og hefst í októbermánuði n. k. Há-
markstala 6 sveitir fá þátttökurétt
í keppninni, þar sem hver, sveit
spilar við allar hinar.
6. Nú tilkynna þátttöku fleiri
sveitir en að ofan greinir, skal þá
fara fram úrtökumót innan deild-
anna. Hlutfallstala hverrar deild-
ar miðuð við þátttöku ræður tölu
sveita frá hverri deild til úrslita-
keppninnar. Þó skal hver deild öðl-
ast þátttökurétt fyrir minnst 1
sveit í riðli.
7. Ef þörf reynist fyrir úrtöku-
keppni samkv. framansögðu, skal
hún á hverjum stað hefjast 5. eða
6. okt. n. k. og setur sambands-
stjórn um þetta nánari reglur, ef
þurfa þykir, strax að fengnum þátt-
lökutilkynningum frá formönnum
félaganna.
8. Sú sveit, sem sigrar samkv.
gr. 5, skal vera reiðubúin að heyja
einvígi við sveit, er sambands-
stjórn kann að velja gegn henni,
eftir svipuðum reglum og áður
hafa gilt um slíka úrslitakeppni.
Heimilt er þó sambandsstjórn að
felia niður slíka keppni.
Reglugerð fyrir sveit kvenna er
í undirbúningi.