Bridge - 12.09.1957, Side 18
18
IiKIDGE
Suraarmót í Borgarnesi
Ársþing Bridgcsambands ís-
lands var haldið Borgarnesi um
mánaðamótin maí-júní sl. og í
sambandi við þ'.ngið var háð sum-
armót í bridge, þar sem keppt var
bæði í tvímenningskeppni og
sveitakeppni. Var mótið í alla
staði vel heppnað, þátttaka mjög
mikil t, d. spiluðu 23 fjögurra
manna sveitir í sveitakeppninni,
sem er ein mesta þátttaka, sem
um getur í bridgemóti hér á landi.
Mótið var Borgnesingum til mik-
h sóma, og gekk vel undir ör-
uggri stjórn Eiríks Baldvinsson-
ar.
Ýmsar samþykktir voru gerðar á
þinginu — og voru þær helztar,
að samþykkt var ný reglugerð um
íslandsmótið í bridge — og sam-
þykkt var að koma á fót sér-
stakri keppni í haust um þátttöku-
rétt í Evrópumeistaramótið 1958.
Báðar þessar samþykktir voru
að því er virðist illa undirbúnar,
og munu vart ná þeim tilgangi,
sem þeim er ætlað. Einkum á
þetta þó við íslandsmótið, þar sem
ákveðið var að öll félög innan
sambandsins eigi kost að senda
sveitir til þátttöku, sem fer eftir
félagsmannafjölda, að undan-
genginni keppni innan hvers fé-
lags. Af þessari samþykkt leiðir, að
íslandsmótið munu nú sækja fleiri
sveitir en áður, en styrkleiki sveit
anna á mótinu mun að sama skapi
minnka. Síðar mun verða rætt um
þessi mál hér í blaðinu, þegar að
þessum mótum kemur.
Sumarmótið var hins vegar eins
og áður segir mjög vel heppnað. Á
laugardaginn var . tvímennings-
keppni spiluð í þremur riðlurn
með alls 44 pörum. Hlutfallstala
í riðlunum réði síðan úrslitum í
keppninni, sem lauk með sigri
þeirra Lárusar Karlssonar og Sig-
urhjartar Péturssonar, Reykjavík.
Næstir urðu Baldur Bjarnason og
Sigurður Guðbrandsson, Borgar-
nesi, og í þriðja sæti urðu Björn
Sveinbjörnsson, Hafnarfirði og
Brandur Brynjólfsson Reykjavík.
Aðalkeppni mótsins var sveita-
keppnin, sem fór fram með hrað-
keppnisfyrirkomulagi þannig, að
allar sveitirnar spiluðu saman, tvö
spil milli sveita. Efstar urðu þess-
ar sveitir:
1. Ólafur Þorsteinsson, Bridge-
félag Reykjavíkur,54 EBL-stig
2. Kristján Kristjánsson, Bridge-
félag Reykjavíkur 48 EBL-stig.
3. Eggert Benónýsson, Bridgefé-
lag Reykjavíkur, 39 EBL-stig.
4. Karl Friðriksson, Bridgefélag
Akureyrar, 38 EBL-stig.
5. Óli Örn Ólafsson, Bridgefélag
Akraness, 35 EBL-stig.
6. Hjalti Elíasson, Tafl- og bridge
klúbburinn, Rvk. 30 EBL-stig.
7. Zóphónías Benediktss., Tafl- og
bridgekl. Rvk., 27 EBL-stig.