Bridge - 12.09.1957, Blaðsíða 26
26
BRIDGE
sagði frá áhuga sínum á slemrnu
með því að bjóða fjögur hjörtu
og Seamon sagði þá sex lauf.
Belladonna lét hjarta tvist út og
D Avarelli kostaði Á. Leventritt
tók síðan tígul Á og spilaði laufi
og tók á D. Því næst kastaði hann
hjartaslagnum úr borði í tígul K,
og spilaði síðan upp á að spaðinn
lægi 3 og 2, þar sem hann lét út
spaða sex og svínaði áttunni, sem
Suður tók á K. Nú gat Suður
hnekkt spilinu einfaldlega með því
að láta Norður trompa spaða, en
hann valdi að stytta borðið í
trompi með því að láta út hjarta.
Þá var spaða Á spilað úr borði
og þegar Norður trompaði da^sti
Leventritt og sá spil sitt hrynja.
Hann tapaði enn einum slag, þeg-
ar Norður hélt áfram með hjarta
og Suður fékkst ekki til að setja
D á spaðann, sem spilað var ur
borðinu. 100 til Ítalíu.
Það kom í ljós, að á hinu borð-
inu höfðu ítalarnir einnig komizt
í 6 lauf. Norður, Koytchou, spilaði
út einspilinu í spaða. Forquet tók
á Á og spilaði út um leið spaða
fjarka, sem Ogust tók á K og spil-
aði meiri spaða. Forquet tromp-
aði með Á, aðeins til að undir-
strika, að það væri hann, seim
vildi ráða spilinu. Hann fékk slagi
á Á, K og D í tígli, hjarta Á og
spaða Á, trompaði þrisvar spaða
heima á hátrompin og trompaði
fjórum sinnum í borði, samtals 12
slagir og 920 til Ítalíu.
A Á G A 9 4 2
V Á K D 10 9 8 » S 7 5 3
♦ Á84 ♦ K 9 5
A K G *ÁD4
Á spil Vesturs opnaði Goren á
2 gröndum og fékk 3 grönd í svar
og sagði þá pass, þegar 6 standa
og ítalarnir runnu í slemmu. Það
er ekki von að vel fari, enda hef-
ir ekki sést öllu stærra pass.
Auðmýkjandi var þetta spil fyr-
ir bandarísku sveitina.
Austur gefur, A-V á hættu.
A 9 8 5
y 10 8 5
♦ Á D 10 4
A D 10 3
A G 10 7 6 A Á D 3 2
V A D G 9 7 6 V 4 3
♦ 8 6 5 ♦ 2
* * Á G 8 7 6 5
A K 4
V K 2
♦ K G 9 7 3
* K 9 4 2
Seamon í Austur opnaði á einu
laufi og Belladonna doblaði. Sér-
kennilegt dobl. Leventritt sagði
eitt hjarta og Avarelli eitt grand,
sem þýðir lítil spil. Seamon pass,
vegna þess hve opnunin er lítil,
Belladonna tvo tígla og tvö hjörtu
hjá Leventritt, sem gefur upp gott
hjarta. Avarelli bauð þrjá tígla og
allir pössuðu.
Leventritt byrjaði með hjarta
Á og varð fyrir vonbrigðum, þegar
hjarta K var ekk: hjá Norður og
þegar Seamon gat ekki trompað
annað hjarta urðu vonbrigðin að
undrun. Eftir þetta spilaði Bella-
donna spilið létt og vann það sléti.
Miklar umræður urðu um spilið
og margir lögðu sitt til. Flestir
voru á því, að Vestur ætti að segja
2 hjörtu í fyrstu sögn, en sú sögn
var ekki til í kerfinu, en auðvit-