Lögmannablaðið - 01.06.2003, Síða 20
20
1. gr.
Skipun réttargæslumanns
Að ósk brotaþola og eftir að málsgögn (ágrip) í
viðkomandi máli hefur borist réttinum frá skrif-
stofu ríkissaksóknara skipar Hæstiréttur brotaþola
réttargæslumann fyrir Hæstarétti, ef einkaréttar-
legri kröfu hans hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar
og hún er þar til meðferðar, sbr. 4. mgr. 153. gr.
laga nr. 19/1991.
2. gr.
Ráðning talsmanns
Brotaþola er heimilt að ráða talsmann til starfa,
sem gætir hagsmuna brotaþola fyrir Hæstarétti,
sbr. 1. mgr. 44. gr. d laga nr. 19/1991, sbr. 4. mgr.
153. gr. sömu laga.
3. gr.
Málflutningur réttargæslumanns
og talsmanns
Réttargæslumaður og talsmaður brotaþola eiga
þess kost, eftir ræðu sækjanda, að tjá sig um
einkaréttarkröfur brotaþola og skal málflutningur
takmarkast við þær, sbr. 5. mgr. 172. gr. laga nr.
19/1991, sbr. 2. og 3. mgr. 44. gr. g og 2. mgr. 44.
gr. d sömu laga.
4. gr.
Tilkynningar um þinghöld o.fl.
Réttargæslumaður og talsmaður brotaþola
skulu fá afrit af gögnum máls, sbr. 1. mgr. 44. gr.
h laga nr. 19/1991, sbr. 163. gr. sömu laga. Beinir
Hæstiréttur til réttargæslumanns og talsmanns
brotaþola tilkynningu um að eintak ágrips og ann-
arra framlagðra gagna fyrir réttinum sé til afhend-
ingar á skrifstofu ríkissaksóknara. Hæstiréttur til-
kynnir réttargæslumanni og talsmanni brotaþola
um þinghöld í málum, sbr. 2. mgr. 44. gr. g laga nr.
19/1991.
Þegar Hæstiréttur skipar brotaþola réttargæsl-
umann skv. 1. gr., eða þegar réttinum berst til-
kynning um að brotaþoli hafi ráðið sér talsmann,
beinir rétturinn því til réttargæslumanns og tals-
manns að þeir eigi þess kost að skila greinargerð í
málinu innan tiltekins frests.
Ákæruvald og skipaður verjandi ákærða skulu
senda réttargæslumanni og talsmanni brotaþola
greinargerðir sínar og önnur framlögð gögn í mál-
inu.
5. gr.
Viðvera brotaþola, réttargæslumanns og
talsmanns í þinghöldum
Sé þinghald háð fyrir luktum dyrum, á brota-
þoli ekki aðgang að þinghaldi, sbr. 2. mgr. 44. gr.
g laga nr. 19/1991. Réttargæslumaður og tals-
maður brotaþola eiga ávallt aðgang að þing-
höldum.
6. gr.
Einkaréttarleg krafa sætir ekki áfrýjun
Talsmaður brotaþola á aðgang að þinghöldum í
málum, þó að einkaréttarkrafa í málinu sé ekki til
meðferðar fyrir réttinum. Í slíkum tilvikum á tals-
maður ekki kost á að tjá sig um sakarefnið og skal
hann ekki sitja við borð málflytjenda.
Reykjavík, 30. apríl 2003
2 / 2 0 0 3
Reglur frá Hæstarétti:
Um réttargæslumann
og talsmann brotaþola í
Hæstarétti