Lögmannablaðið - 01.06.2003, Side 21

Lögmannablaðið - 01.06.2003, Side 21
21 Skýringar: 1. gr. Með bréfi lögmanns til Hæstaréttar, þar sem hann óskar eftir skipun sem réttargæslumaður, skal fylgja bréf brotaþola þar sem brotaþolinn óskar eftir skipun réttargæslumanns. Er eðlilegt að afstaða brotaþola um þetta liggi fyrir í Hæstarétti með skjallegum hætti. Skipun getur fyrst átt sér stað eftir að ágrip hefur borist frá skrifstofu ríkis- saksóknara. Í seinni tíð hefur sá háttur verið hafður á í framkvæmd í Hæstarétti. Réttar- gæslumaður verður einungis skipaður ef einka- réttarlegri kröfu hefur verið áfrýjað og hún er til meðferðar í Hæstarétti. Af því leiðir að sé kröf- unni ekki áfrýjað til Hæstaréttar eða fái hún ekki efnislega úrlausn í héraði, svo sem vegna frávís- unar, eru ekki skilyrði til skipunar réttargæsl- umanns í Hæstarétti. Við þær aðstæður er brota- þola fært að ráða sér talsmann samkvæmt 2. gr., til að sinna málinu í Hæstarétti. 2. gr. Brotaþola er heimilt að ráða sér talsmann til að gæta hagsmuna sinna í Hæstarétti. Hefur hann að meginstefnu sömu réttarstöðu og réttar- gæslumaður, sbr. 44. gr.d laga nr. 19/1991. Tals- maður á þó rétt á að gæta hagsmuna brotaþola í Hæstarétti í þeim tilvikum þegar ekki eru skilyrði til skipunar réttargæslumanns skv. 1. gr., en hann á aðgang að þinghöldum eftir 6. gr. Á hann þó ekki kost á að tjá sig um sakarefnið við þessar aðstæður, sbr. 6. gr. 3. gr. Í 3. gr. eru ákvæði um hvenær réttargæsl- umaður eða talsmaður brotaþola taki til máls við málflutning í Hæstarétti og miðast það við venj- uhelgaða framkvæmd. Þá er tekið fram að mál- flutningur skuli takmarkast við umfjöllun um einkaréttarkröfu brotaþola, en þess eru dæmi að málflutningur réttargæslumanna hafi tekið til fleirri þátta en einkaréttarkröfunnar. 4. gr. Réttargæslumaður og talsmaður skulu fá afrit af öllum gögnum málsins. Til þessa hefur fram- kvæmdin ekki verið skýr en réttargæslumaður og talsmaður þó fengið ágrip og afrit annarra gagna þegar eftir því hefur verið leitað. Hér er kveðið á um skýra framkvæmd að þessu leyti, þannig að Hæstiréttur beini til réttargæslumanns og tals- manns tilkynningu um að eintak ágrips sé tilbúið til afhendingar á skrifstofu ríkissaksóknara. Er það sami háttur og hafður er á þegar verjendur fá tilkynningar um ágrip. Með þessu yrði ríkissak- sóknari að hafa tiltækt eintaka af ágripi fyrir rétt- argæslumann eða talsmann, þar sem ekki yrði gert ráð fyrir því að Hæstiréttur myndi láta af hendi ágrip úr þeim eintökum er réttinum berast. Þá er hér tekið af skarið um að Hæstiréttur tilkynni rétt- argæslumanni og talsmanni brotaþola um öll þing- höld í málum. Í 2. mgr. er kveðið á um greinargerðir réttar- gæslumanns og talsmanns. Ekki hefur formlegum tilkynningum verið beint til réttargæslumanns og talsmanns um skil á greinargerðum, heldur hafa þeir sent Hæstarétti greinargerðir að eigin frum- kvæði. Samkvæmt þessu yrði sá háttur hafður á að þegar réttargæslumaður er skipaður, er honum um leið tilkynnt að hann eigi þess kost að skila greinargerð í málinu. Talsmanni brotaþola yrði hins vegar send samsvarandi tilkynning eftir að réttinum hafa borist upplýsingar um að brotaþoli hafi ráðið sér talsmann. Um þetta eru ekki ákvæði í lögum nr. 19/1991, en eðlilegt verður að telja að réttargæslumaður og talsmaður brotaþola fái sér- staka tilkynningu frá Hæstarétti um skil á greinar- gerðum og fresti í því sambandi. Í 3. mgr. 4. gr. er kveðið á um að ákæruvald og verjandi eigi að senda réttargæslumanni og tals- manni eintak af greinargerðum sínum og öðrum gögnum er þeir leggja fram á þessu stigi málsins. Í framkvæmd hefur verið ýmist hvort ákæruvald og verjendur sendi greinargerðir sínar réttar- gæslumanni og talsmanni og hefur Hæstiréttur í mörgum tilvikum orðið að bæta þar úr. Með þessu yrði skýrt kveðið á um hverjum beri að annast þetta. 5. gr. Í athugasemdum með 15. gr. laga nr. 36/1999, um breyting á 44. gr. laga nr. 19/1991, er tekið af skarið um að brotaþoli eigi ekki aðgang að þing- höldum í málum, séu þau háð fyrir luktum dyrum, þar sem hann sé ekki aðili að máli í skilningi laga nr. 19/1991. Um þetta er hins vegar ekki kveðið skýrt á um í lögum nr. 19/1991. Þykir því rétt að hafa um það ótvírætt ákvæði hér. Í þessum til- vikum eiga réttargæslumaður og talsmaður þó ótvíræðan aðgang og er þeim þannig ætlað gæta hagsmuna brotaþola. 6. gr. Eins og fram kemur um 1. gr. hér að framan, er hér tekið fram að talsmaður brotaþola, sem hann hefur ráðið á eigin kostnað, eigi þess kost að sitja í þinghaldi þótt einkaréttarkrafa brotaþola sé ekki til meðferðar fyrir Hæstarétti. Á hann ekki kost á að taka til máls við slíkar aðstæður. Til að aðgreina talsmann enn frekar frá málflytjendum í þeim tilvikum þykir auk þess rétt, að hann sitji ekki við borð málflytjenda. Er þá ástæðulaust fyrir talsmann að klæðast skikkju málflytjenda. L Ö G M A N N A B L A Ð I Ð

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.