Lögmannablaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 22
22
ÍSUMAR mun sjálfs-skipuð golfnefnd LMFÍ
standa fyrir nokkrum golf-
mótum en búið er að skipu-
leggja tvö innanfélagsmót
og þrjár keppnir við aðrar
starfsstéttir. Sem fyrr er
þátttaka opin öllum lög-
fræðingum. Dagsetningar
golfmótanna hafa verið ákveðnar og fyrirkomulag
í aðalatriðum. Um sama leyti og þetta blað kemur
út er fyrsta mótinu lokið en það er minningarmót
um Guðmund Markússon og Óla Axels sem
haldið var á Keilisvellinum, Hafnarfirði, föstu-
daginn 23. maí. Þar sem prentun blaðins er áætluð
á sama tíma munu úrslit birtast síðar.
Golfmót sumarsins eru þessi:
Fjórleikur við tannlækna.
Keppnin fer fram á Nesvellinum, þriðjudaginn
24. júní kl. 12.00. Umsjónarmaður: Jóhannes Karl
Sveinsson, hrl.
Fjórleikur við lækna.
Keppnin fer fram á Strandarvelli á Hellu,
sunnudaginn 13. júlí kl. 11:00. Umsjónarmaður:
Gestur Jónsson, hrl.
Fjórleikur við end-
urskoðendur.
Keppnin fer fram á
Kiðjabergsvellinum,
B i s k u p s t u n g u m ,
fimmtudaginn 24. júlí
kl. 13:00. Umsjónar-
maður: Gísli G. Hall,
hdl.
Opna Lundamótið
Keppnin fer fram í
Ve s t m a n n a e y j u m
föstudaginn 22. ágúst.
18 holu punktak-
eppni, matur og léttar
veitingar. 9 holu texas scramble að veitingum
loknum. Nánari dagskrá auglýst síðar. Umsjónar-
maður: Helgi Bragason, hdl. (hb@dt.is)
Meistaramót LMFÍ
Mótið verður haldið föstudaginn 5. september
kl. 12:00 á Leirunni, Suðurnesjum. 18 holu högg-
leikur með fullri forgjöf, þó að hámarki 24. Einnig
verður keppt án forgjafar. Sigurvegari með forgjöf
telst félagsmeistari.
U m s j ó n a r m e n n :
Ásgeir Á. Ragnars-
son hdl. og Baldvin
B. Haraldsson hdl.
Þátttaka tilkynnist
umsjónarmönnum
fyrir lok vinnudags
4. september. Ræst
verður út af öllum
teigum samtímis.
Lið LMFÍ er í dag einungis handhafi bikarsins
gegn tannlæknum. Við sáum á eftir bikörum til
lækna og endurskoðenda í fyrra. Nú verður allt
kapp lagt á að endurheimta þá og halda dollunni
gegn tannlæknum. Til þess þurfa, eins og alltaf,
okkar bestu menn að vera klárir í þessa leiki. Hér
með er skorað á þá að færa keppnisdagana vel og
rækilega í dagbækur sínar eða forrit og forðast
utanaðkomandi truflun og áreiti hina sömu daga.
Stundum hafa lögfræðingar reynst fúsari til
þess að mæta til leiks en andstæðingarnir. Þegar
svo stendur á þarf að ákveða hverjir keppi og
hverjir spili sér einungis til ánægju. Svona
ákvarðanir eru erfiðar því flestir mæta til þess að
fá að vera með í keppninni. Golfnefndin hefur
ákveðið að sú regla skuli gilda, ef fleiri mæta til
leiks en þörf er á í keppnislið, þá skuli forgjöf
ráða, þ.e. lægri forgjöf hafi forgang.
Fyrir hönd sjálfskipaðrar golfnefndar LMFÍ
Ásgeir Ragnarsson,
2 / 2 0 0 3
G O LFMÓT
LÖGMANNA SUMARIÐ 2003