Lögmannablaðið - 01.06.2014, Side 12

Lögmannablaðið - 01.06.2014, Side 12
12 LÖgmannaBLaðið TBL 02/14 lAGADAGUrinn 2014 Á FJöLmennuSTu mÁLSTOFu lagadagsins þetta árið var rætt um hlutverk lögfræðinga í rekstri fyrirtækja. Á undanförum árum hefur orðið algengara að fyrirtæki ráði svokallaða innanhússlögfræðinga til starfa en áður voru það einkum sveitarfélög og tryggingafélög sem réðu þá. Þátttakendur málstofunnar voru Heiðrún Jónsdóttir, lögmaður á Aktis lögmannsstofu og fyrrum framkvæmdastjóri lögfræðis viðs eimskips, Helga melkorka óttars- dóttir, einn eigenda og faglegur fram- kvæmdastjóri Logos, Jónína Lárus dóttir, yfirlögfræðingur Arion banka og Tómas eiríksson, yfirlögfræðingur össurar. Stjórnandi málstofunnar var Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur marels. Þrír hópar innanhússlögfræðinga Á málstofunni var meðal annars rætt um hlutverk og stöðu innan hússlögfræðinga í skipuriti fyrirtækja, sjálfstæði þeirra í starfi, samstarf þeirra við utan húss- lögmenn, ávinning fyrirtækja af því að ráða innan húss lögfræðinga til starfa og hvers vegna lögfræðingar ættu að sækja um slík störf. Fram kom að skipta mætti innan- húss lögfræðingum í þrjá hópa. Í fyrsta lagi þá sem sinntu afmörkuðum verkefnum innan deilda fyrirtækja. Í öðru lagi þá sem sinntu tilteknum rekstrarþáttum, samningum o.s.frv. (e. inhouse counsel) og loks í þriðja lagi þá sem sinntu fyrirtækjaráðgjöf (e. corporate counsel). gjarnan sinntu lögfræðingar þó verkefnum sem féllu í tvo síðarnefndu flokkana og bæru þá starfsheitið yfirlögfræðingur (e. general counsel). munur á lögmönnum innan og utan fyrirtækja Þátttakendur virtust sammála um að með nokkurri einföldun mætti segja að hlutverk innanhússlögfræðinga væri fremur fólgið í því að vinna að stefnumótun til framtíðar og koma í veg fyrir „slys“ á meðan utanhússlögmenn kæmu að málum eftir að ákvarðanir hefðu verið teknar og „slökkva þyrfti elda“. Af þessum sökum væri mikilvægt að innanhússlögfræðingar hefðu aðgang að mikilvægum upplýsingum úr rekstri fyrirtækis og störfuðu náið með æðstu stjórnendum þess. Oft á tíðum væru æðstu stjórnendur fyrirtækja ekki lögfræðimenntaðir og áttuðu sig því ekki alltaf á þeim lögfræðilegu álitaefnum sem taka þyrfti til skoðunar hverju sinni. Það væri hins vegar hlutverk innanhússlögfræðinga að koma auga á þessi álitaefni. Þeir væri því oft í því hlutverki að „búa til“ málin meðan utanhússlögmenn fengju „tilbúin“ mál í hendur. Þrátt fyrir mikilvægi innanhúss- lögfræðinga virtust þátttakendur á einu máli um að þeir kæmu ekki í stað utanhússlögmanna. Sum mál, einkum þau sem vörðuðu mikla hags- muni, tengdust fyrirtæki eða æðstu stjórnendum þess náið eða mál sem rekin væru fyrir dómstólum, væru þess eðlis að betur færi á að úthýsa þeim til utanhússlögmanna. Í slíkum tilvikum gegndi innanhússlögfræðingur hins vegar því mikilvæga hlutverki að skilgreina verkefnið sem falið væri utanhúslögmanninum, útvega gögn o.s.frv. Þá gæfist gjarnan færi á að kafa dýpra ofan í hlutina heldur en ef enginn lögfræðingur starfaði innan veggja fyrirtækisins. Þá væri eðli máls samkvæmt munur á réttarstöðu innanhússlögfræðinga, sem ættu í vinnuréttarsambandi við fyrirtækin, Hlutverk lögfræðinga í rekstri fyrirtækja – hryggjarstykki eða hraðahindrun? F.v. Árni Sigurjónsson, Helga m. óttarsdóttir, Jónína Lárusdóttir, Heiðrún Jónsdóttir og páll eiríksson.

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.