Lögmannablaðið - 01.06.2014, Page 29

Lögmannablaðið - 01.06.2014, Page 29
LÖgmannaBLaðið TBL 02/14 29 Á léttUM nÓtUM nægja að mynda sig með norðurþúfu í baksýn í dásemdar veðri á toppi veraldarinnar. enn aðrir önduðu að sér orkunni sem á að vera á jöklinum, leituðu örlítið að leiðinni að miðju jarðar og litu grunsemdaraugum í kringum sig í leit að geimverum. Svo var um að gera að næra sig aðeins fyrir niðurleiðina. Sjálfræðissvipting niðurgangan hófst í línunni sem fyrr og það var ekki laust við að það kæmi smá fiðringur í mann að horfa á skíðamennina sem brunuðu fram hjá. einhver galsi hljóp í leiðsögumennina sem lá skyndilega lífið á, slíkur var hraðinn. Línurnar voru strekktar til hins ítrasta og það var ekki fyrr en þeir er aftar voru höfðu ítrekað beðist vægðar með að þenja sig verulega að færi gafst á smá pústi. Þegar við vorum laus úr prísundinni hafði einhver á orði að þessi meðferð jaðraði við sjálfræðissviptingu. Sólin skein glatt og afleiðingar þess létu ekki á sér standa, færið þyngdist og skrefadýptin jókst. einhvern veginn fann maður aldrei mátuleg spor til að stíga í. nú var líka þreytan farin að segja til sín. en allt hafðist þetta og allir skiluðu sér í bílana. Sumir gengu lengra en aðrir, langleiðina niður að Arnarstapa. pollapönk og pottur Hluti hópsins ók heimleiðis strax að lokinni hressandi göngu en aðrir héldu í Amtsmannshúsið á Arnarstapa, þar sem Lára V. Júlíusdóttir og Þorsteinn Haraldsson ráða ríkjum. Það var ekki amalegt að láta líða úr sér í heita pottinum meðan húsbóndinn og einar Karl Hallvarðsson sáu um að grilla dýrindis lambakjöt. maturinn smakkaðist með eindæmum vel, svo var horft á Polla pönkara flytja framlag Íslands á loka kvöldi eurovision, og spjallað fram eftir kvöldi. Ferðin var einstaklega vel heppnuð í alla staði. Það er alltaf ánægjulegt að hitta kollegana í afslöppuðu umhverfi, sjá ný andlit og kynnast þeim er ekki hafa orðið á vegi manns áður. Erla S. Árnadóttir Þrír lögmenn lögðust í snjóinn á toppi Snæfellsjökuls með von um að verða numdir á brott af geimverum. þetta því miður til þess að bæði fram- kvæmd síma hlustunar og eftirlit með henni sé ófull nægjandi. Leiðir til úrbóta Að því er framkvæmdina varðar, hefur áður á þessum vettvangi verið fjallað um að ýmsar leiðir væru til úrbóta (sjá 1. tbl. 2013, bls. 22-23). Til dæmis að hlutlaus aðili eyði upptökum með símtölum verjanda og sakbornings áður en rannsakandi fer yfir upptökur. Þá hlýtur að vera hægt að stöðva upptöku þegar hringt er úr hinum hlustaða síma í tiltekin símanúmer. Þar virðist vera um tæknilegt úrlausnarefni að ræða. Loks kemur til greina að við uppkvaðningu úrskurðar um símahlustun skipi dómari sakborningi sérstakan lögmann sem hefði það hlutverk við framkvæmd hlustunar að gæta hagsmuna sakborn- ings og þeirra sem hann talar við, án vitundar þeirra og vilja. Að því er eftirlitið snertir, hefur ríkis sak- sóknari sjálfur bent á að embættið hafi vart haft burði vegna fjárskorts til að sinna því, að minnsta kosti svo vel sé. Verði ekki gerðar úrbætur á bæði framkvæmd símahlustunar og eftirliti með henni, blasir við að eina raunhæfa aðhaldið felst í því að dómstólar ónýti málatilbúnað ákæruvaldsins þar sem í ljós kemur að símtöl sakbornings og verjanda hafa verið hlustuð. Komi aðhaldið ekki frá dómstólunum sjálfum, er óhjákvæmilegt að breyta lögum. Símahlustun og lögbrot - frh. af bls 23

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.