Fréttablaðið - 13.11.2014, Page 12

Fréttablaðið - 13.11.2014, Page 12
13. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 Fæst hjá Jóni & Óskari. Laugavegi 61 // Kringlunni // Smáralind. Tel.+354 552 4910 // www.jonogoskar.is. Nýjasta hönnun úr Icecold silfurlínunni er innblásin af hinum töfrandi Norðurljósum. Tilvalin gjöf til vina og vandamanna erlendis. PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 4 39 8 9 Men frá 16.900 kr. Lokkar 15.900 kr. SAMFÉLAGSMÁL „Við erum bara að kalla eftir skynsamlegri og upplýstri umræðu um þetta. Ég er ekki á móti fósturskimun sem slíkri og ég er heldur ekki með ákveðin svör hvað eigi að gera ef það kemur eitthvað upp,“ segir Snorri Þorgeir Ingvarsson. Snorri og eiginkona hans, Þórdís Inga- dóttir, eiga fimm ára gamla dótt- ur með Downs-heilkenni. Þau kalla eftir faglegri og upplýstri umræðu um fósturskimun, skýrum mark- miðum og reglulegu endurmati á henni. Í síðustu viku voru kynnt á Alþingi svör heilbrigðisráðherra við fyrirspurn alþingismanns um fósturgreiningu. Þar kom fram að á árunum 2008-2012 voru 38 fóstur greind með auknar líkur á auka- litningi á 21. litningapari, Downs- heilkenni. Öllum þessum fóstrum var eytt. Í grein sem birtist á blað- síðu 30 í Fréttablaðinu í dag fjalla þau um málið og kalla eftir því að yfirvöld skoði og taki afstöðu til þeirra siðferðislegu álitaefna sem koma upp þegar fóstrum er eytt vegna þessa. Um sé að ræða lík- indareikning og því geti líkurnar verið á báða bóga. Fólk taki áhættu á að eyða heilbrigðu fóstri og líka að eignast barn með Downs-heil- kenni. Kynntu sér allt um Downs Dóttir þeirra, Ágústa Hlín, er heil- brigð og hraust fimm ára gömul stelpa með húmorinn í lagi. Þór- dís fór í fósturskimun á með- göngunni þar sem kom í ljós að nánast engar líkur væru á því að fóstrið væri með Downs-heil- kenni. „Samkvæmt niðurstöðu samþætts líkindamats míns voru líkurnar taldar einn á móti 1600. Annars er þetta eitthvað sem við spáðum ekki mikið í,“ segir Þórdís. „Eftir að hún var fædd fór lækna að gruna þetta vegna lágvöðva- spennu Ágústu Hlínar,“ segir Þór- dís. Í kjölfarið voru gerðar rann- sóknir og eftir nokkra daga var staðfest að hún væri með Downs- heilkennið. Þau segjast ekki hafa fengið áfall við fréttirnar. „Sumir upp- lifa þetta sem mikið sjokk. Við gerðum það ekki. Við eigum tvö börn fyrir og það var ósköp svip- að allt ferlið. Auðvitað bregður manni svolítið við að heyra þetta en ég myndi ekki segja að þetta hefði verið sjokk,“ segir Snorri. Í framhaldinu kynntu þau sér flest allt sem þau komust yfir um heil- kennið. „Það hefur allt gengið vel hingað til. Hún er hraustust allra í fjölskyldunni og hefur sloppið vel við mögulega líkamlega fylgikvilla heilkennisins,“ segir Þórdís. „Hún byrjaði seinna að ganga en önnur börn og er mun seinni til að byrja að tala en hún er hamingjusöm og mjög glöð,“ segir Snorri. Fósturskimun er byggð á þrem- ur þáttum. Hnakkaþykktarmæl- ingu, aldri og mælingu prótína hjá móður. Með þessum þrem- ur þáttum eru reiknaðar út líkur á því að fóstrið sé með Downs- heilkenni. Séu taldar líkur á því er í kjölfarið hægt að fara í leg- ástungu sem hefur í för með sér aukna hættu á fósturláti en með henni er hægt að staðfesta hvort um Downs sé að ræða. Ekki fara allar í leg ástunguna og sumar láta eyða fóstrinu áður. „Þegar þetta var innleitt um síðustu aldamót skorti á opinbera, faglega og upp- lýsta umræðu um þau siðferðislegu álitaefni sem óneitanlega tengjast þessu. Málið snýst ekki bara um Kalla eftir umræðu um fósturskimun Foreldrar fimm ára stúlku með Downs-heilkenni kalla eftir aukinni umræðu um siðferðisleg álitamál sem snúa að fósturskimun. Á árunum 2008-12 var öllum fóstrum, sem greindust með auknar líkur á Downs, eytt. Þau segja þetta snúast um hvernig þjóðfélagi við viljum búa í og vilja að málið sé rætt á Alþingi. FJÖLSKYLDAN Snorri og Þórdís með dætrum sínum tveimur, Ágústu Hlín og Védísi Eiri. Þau eiga einnig soninn Ingvar Frey. MYND/ÚR EINKASAFNI ÁGÚSTA HLÍN Foreldrar hennar segja hana heil- brigða og hrausta fimm ára stelpu. vísindi eða tækni, heldur líka í hvernig þjóðfélagi við viljum búa. Slík málefni ætti að ræða á Alþingi, með aðkomu allra sem málið varð- ar; fagaðila, siðanefnda og hags- munasamtaka,“ segir Þórdís. Mikill fjöldi fóstureyðinga Þegar þau heyrðu af því hversu margir hefðu látið eyða fóstrum vegna líkinda á Downs-heilkenni var þeim brugðið. „Mér dauðbrá og leið eins og ég hefði verið kýld í magann. Auðvitað er þetta fyrst og fremst val hvers og eins. En þegar niðurstaðan er svona afgerandi þá spáir maður í af hverju þetta stafar,“ segir Þórdís og bætir við: „Þegar þetta er einnig byggt á lík- indamati þá finnst manni að það verði að tryggja góða ráðgjöf. Við búum í samfélagi þar sem fatlaðir eru því miður að mörgu leyti enn einangraðir og fæstir þekkja vel til fatlaðra. Það er slæmt ef fólk er að taka ákvörðun byggða að of miklu leyti á hræðslu við hið óþekkta. Með auknum skilningi á réttindum fatlaðra og þátttöku þeirra í samfélaginu mun þessi hræðsla minnka. Þetta eru stórar og áleitnar spurningar sem verður að ræða. Einnig þarf að taka á því jafnóðum ef upp koma fleiri grein- ingarmöguleikar,“ segir Þórdís. viktoria@frettbladid.is MENNTUN Fulltrúar Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ) áttu fund með Illuga Gunnarssyni mennta- málaráðherra í gær. Ástæða fund- arins er staða sú sem upp er komin í kjaradeilu háskólaprófessora og ríkisins. „Það er krafa nemenda að það verði fundað oftar svo samkomu- lag náist sem fyrst,“ segir Ísak Rúnarsson, formaður SHÍ. Fulltrú- ar nemenda hafi afhent ráðherra yfirlýsingu þar sem fram komi áhyggjur þeirra af stöðu mála. „Eins og er er staðan alger- lega óviðunandi. Til að mynda eru námslánin í óvissu og fjarnem- ar erlendis hafa ekki hugmynd um hvenær, eða hvort, þeir eigi að koma til landsins til að þreyta prófin,“ bætir Ísak við. Að öl lu óbreyttu munu háskólaprófessorar fara í verkfall dagana 1.-15. desember næstkom- andi. Næsti fundur deiluaðila er áætlaður á morgun. - joe Formaður Stúdentaráðs segir nema áhyggjufulla: Krafa stúdenta að samið sé strax FORMAÐUR Ísak segir óvissuna í kringum verkfallið of mikla. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.