Fréttablaðið - 13.11.2014, Blaðsíða 68
13. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 48
45 ára Gerard Butler leikari
Þekktastur fyrir: 300
St. Vincent
Gamanmynd
Aðalhlutverk: Bill Murray, Melissa
McCarthy og Naomi Watts.
Streep í Pathé
Tökur á kvikmyndinni Pathé með
Meryl Streep og Hugh Grant í aðal-
hlutverkum hefjast í maí á næsta
ári. Myndin er byggð á ævi Florence
Fosters Jenkins, erfingja og yfir-
stéttarkonu, sem elti drauminn sinn
um að gerast óperu-
söngkona. Henni þótti
röddin sem hún heyrði
í höfði sér falleg en
öllum öðrum þótti
hún hryllileg. Streep
leikur Jenkins en Grant
eiginmann hennar og
umboðsmann
sem styður við
bakið á henni.
Heiðruð í Stokkhólmi
Leikkonan Uma Thurman fékk dynj-
andi lófaklapp þegar hún tók á móti
heiðursverðlaunum á kvikmynda-
hátíð í Stokkhólmi á dögunum. Þegar
hún var spurð hvort hún ætti einhver
ráð fyrir unga leikara sagði hún ein-
faldlega: „Verið hugrökk.“
Thurman lék síðast
í tveimur Nymph-
o maniac-myndum
danska leikstjórans
Lars von Trier. Hún
er líklega þekktust
fyrir leik sinn í Kill
Bill 1 og 2 og Pulp
Fiction.
FRUMSÝNINGAR
7,6/10 8/10
Dumb and Dumber To
Gamanmynd
Aðalhlutverk: Jim Carrey, Jeff Dani-
els, Rob Riggle og Laurie Holden.
Framhaldsmyndin sem svo
margir hafa beðið eftir, Dumb
and Dumber To, er komin í bíó.
Þar taka þeir Jim Carrey og Jeff
Daniels upp þráðinn þar sem þeir
létu hann niður falla sem heimsk-
ingjarnir Lloyd Christmas og
Harry Dunne.
Tuttugu ár eru liðin síðan
Dumb and Dumber sló í gegn.
Kostnaðar áætlun þeirrar mynd-
ar hljóðaði upp á sautján millj-
ónir dala, eða rúma tvo millj-
arða króna. Á endanum hafði hún
þénað 247 milljónir dala í miða-
sölunni úti um heim allan, eða um
þrjátíu milljarða króna.
Leikstjórarnir Bobby og Peter
Farrelly voru nýlega spurðir út í
þessa ógurlega vinsælu gaman-
mynd í þættinum The Hollywood
Masters og þar kom ýmislegt
áhugavert í ljós. Meðal annars það
að Carrey fékk um 870 milljónir
króna fyrir að leika Christmas
en mótleikari hans Daniels fékk
aftur á móti aðeins sex milljónir
króna fyrir að leika Dunne, að því
er Yahoo.com greindi frá.
„Þeir buðu honum 43 milljónir
króna fyrir að leika í myndinni
en hann sagði nei,“ sagði Peter
Farr elly. „Hann vildi fá 50 millj-
ónir. Þá héldu þeir að sér höndum.
Svo kom Ace Ventura út, sem var
fyrsta myndin hans og hún fór í
efsta sætið. Þá sagði kvikmynda-
verið: „Ókei, þú færð 50 milljón-
ir“. Þá sagði hann: Nei, ég vil 62
milljónir.“
Til að gera langa sögu stutta
hélt Ace Ventura toppsæti sínu
á vinsældalistanum og þegar
launaviðræðunum lauk voru laun
Carr eys komin upp í 870 milljónir
króna, sem er það mesta sem gam-
anleikari hafði þá fengið greitt.
Hvað Daniels varðar þá fékk
hann borgaða þessa smáaura fyrir
sitt hlutverk vegna þess að kvik-
myndaverið vildi ekki ráða hann
til að byrja með. „Þeir sögðu:
„Gerið það, einhvern annan en
hann. Náið í gamanleikara“,“
sagði Bobby Farrelly, sem vildi
ráða Daniels eftir að hafa séð
hann í myndinni Something Wild.
„Þannig að þeir buðu honum, að
mig minnir, sex milljónir króna,
og þeir bjuggust við því að hann
myndi neita vegna þess hve Carr-
ey fékk mikið greitt. En hann tók
þessu.“
Að sögn Peters Farrelly var það
Carrey sjálfur sem lagði til fyrir
nokkrum árum að ráðist yrði í
gerð Dumb and Dumber To en í
millitíðinni hafði hin misheppn-
aða Dumb and Dumberer komið út
með öðrum aðalleikurum og leik-
stjóra. „Jim var á hóteli, kveikti
á sjónvarpinu, og horfði á hana
frá upphafi til enda og hugsaði
með sér: Við verðum að gera aðra
mynd.“ freyr@frettabladid.is
Fékk mörg hundruð
milljónum meira
Gríðarlegur launamunur var á Jim Carrey og Jeff Daniels þegar upptökur á
Dumb and Dumber fóru fram fyrir um tuttugu árum. Framhaldið er komið í bíó.
LLOYD CHRISTMAS OG HARRY DUNNE Heimskingjarnir snúa aftur á hvíta tjaldið
tuttugu árum eftir að Dumb and Dumber kom út.
Í Dumb and Dumber To fara þeir Lloyd og Harry í ferðalag til að finna
barn Harrys sem hann vissi ekki að hann ætti. Eins og í Dumb and
Dumber leikstýra Farrelly-bræðurnir myndinni. Þrátt fyrir orðróm um
annað mun Jennifer Lawrence ekki leika feluhlutverk í henni. Að sögn
Bobby var þetta feluhlutverk aldrei kvikmyndað og það næsta sem þeir
komust stjörnunni var að snæða með henni kvöldverð í Atlanta þegar
hún var að taka upp The Hunger Games.
Leita að barni Harrys
BÍÓFRÉTTIRAFMÆLISBARN DAGSINS
Quentin Tarantino segist ætla að
hætta að leikstýra eftir að hann
lýkur við sína tíundu kvikmynd.
„Maður á ekki að vera uppi á
sviði þangað til fólk grátbiður
mann að fara í burtu,“ sagði Tar-
antino við áhorfendur á kvik-
myndaráðstefnunni American
Film Market í Santa Monica.
Hann er þessa dagana að kynna
sína nýjustu mynd, vestrann The
Hateful Eight, sem verður frum-
sýndur á næsta ári. „Ég geri tvær
í viðbót á eftir þessari. Mér finnst
það góð tilhugsun að hætta eftir
tíu myndir. Þetta er ekki fastneglt
en ég stefni að þessu,“ sagði hinn
51 árs leikstjóri.
Hann bætti við að leikstjórn
væri fyrir ungt fólk og hann ætl-
aði að semja leikrit og bækur í
staðinn. „Ég hef gaman af þeirri
tilhugsun að áhorfendur vilji fá
aðeins meira. Mér finnst að ungt
fólk eigi að vera í leikstjórn og
ég er skotinn í þeirri hugmynd að
naflastrengur verði á milli fyrstu
og síðustu myndarinnar minnar.
Ég er ekki að reyna að gera lítið
úr neinum sem hefur aðra skoð-
un, en ég vil hætta á meðan ég er
enn sterkur.“
Þeir sem voru með honum á
ráðstefnunni gerðu dálítið grín
að honum, þar á meðal leikarinn
Samuel L. Jackson. „Hvað ætlar
Quentin að gera við sjálfan sig ef
hann ætlar að standa við þetta?“
sagði Jackson, sem hefur starfað
með Tarantino í myndum á borð
við Pulp Ficton og Jackie Brown.
Leikstjórinn ætlaði í janúar að
hætta við að gera The Hateful
Eight eftir að handriti myndar-
innar var lekið á netið. Síðar meir
hætti hann við og ákvað að búa
myndina til, aðdáendum hans til
mikillar ánægju.
Hættir eft ir tíu myndir
Quentin Tarantino ætlar ekki að eldast í faginu.
TARANTINO OG TRAVOLTA Leikstjórinn ætlar að gera tvær myndir í viðbót fyrir
utan þá nýjustu, The Hateful Eight. NORDICPHOTOS/GETTY
Mér finnst að ungt
fólk eigi að vera í leik-
stjórn og ég er skotinn í
þeirri hugmynd að
naflastrengur verði á
milli fyrstu og síðustu
myndarinnar minnar.
ht.is
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700 • GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600 • GLERÁRGÖTU 30 AKUREYRI S: 460 3380 • KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 • ÞJÓÐBRAUT 1 AKRANESI S: 431-3333 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500
með Android
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
Engin venjuleg upplifun
Við kynnum
Philips Ambilight
9000 sjónvörpin
Ultra HD með Android