Fréttablaðið - 13.11.2014, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 13.11.2014, Blaðsíða 86
13. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 66 BESTI SKYNDIBITINN R E Y K J AV Í K | A K U R E Y R I ALLIR SÓFAR Á TAXFREE TILBOÐI* BRIGHTON 3JA SÆTA SÓFI Litir: Koníaksbrúnt, dökkbrúnt og svart. Vandað ekta leður. Stærð: 3ja 204 x 80 H: 77 cm. 2ja sæta 150 x 80 H: 77 cm. AÐEINS KRÓNUR 254.972 Fullt verð kr. 319.990 3JA SÆTA. LEÐUR. AÐEINS KRÓNUR 215.131 Fullt verð kr. 269.990 2JA SÆTA. LEÐUR. Stærð: 186x84 H: 83 cm. Slitsterkt áklæði í þremur litum, ljósgrátt, blátt og ólívugrænt. Viðarlappir. EGGERT 3JA SÆTA AÐEINS KRÓNUR 79.673 Fullt verð kr. 99.990 AÐEINS KRÓNUR 286.845 Fullt verð kr. 359.990 LONDON HORNSÓFI 2H2 – ÁKLÆÐI Slitsterkt áklæði. Stærð: 220 x 220 H: 86 cm. *TAXFREE TILBOÐIÐ GILDIR BARA Á SÓFUM OG JAFNGILDIR 20,32% AFSLÆTTI. Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar. „Blue Hawaii er lag sem blandar tveimur sólum Starwalkers full- komlega saman í eina geimþoku,“ sagði rafpoppstvíeykið Starwalker við tónlistarveituna Stereogum en í dag kom út myndband við nýtt lag þeirra, Blue Hawaii. Starwalker er samstarfsverk- efni Barða Jóhannssonar úr Bang Gang og Jean-Benoit Dunckel úr Air. „Við vorum gríðarlega ánægð- ir með það,“ segir Barði í samtali við Fréttablaðið en myndbandið hæfir svo sannarlega nafni Star- walker þar sem kapparnir eru staddir úti í geimi. Ragnar Bragason leikstýrir en hann hefur unnið mikið af mynd- böndum Bang Gang. Framleiðslu- fyrirtækið Trickshot sá um tækni- brellurnar. „Þeir sáu um að koma okkur út í geiminn,“ segir Barði en Aron Bergmann Magnússon ann- aðist listræna stjórnun. Þeir kappar munu gefa út eigin plötur hvor fyrir sig eftir áramót, Barði nýja Bang Gang-plötu en Dunckel sólóplötuna Darkel. Eftir þær útgáfur mun Starwalker gefa út fyrstu plötu sína, sem er að sögn Barða tilbúin. „Við tókum upp meirihlutann af plötunni í hljóð- veri Air í París, sem var gríðar- lega fallegt,“ segir Barði. - þij Air og Bang Gang staddir úti í geimi Starwalker gefur út nýtt myndband í leikstjórn Ragnars Bragasonar. BLUE HAWAII Barði og Dunckel eru staddir úti í geimi í myndbandinu. MYND/SKJÁSKOT „Chipotle allan daginn! Mér líður eins og ég sé að borða hollasta mat í heimi þó það sé örugglega ekki málið. Hef farið þrisvar sama dag- inn með félögunum og sé ekki eftir neinu. ENGU!“ Þorsteinn Sindri Baldvinsson, tónlistarmaður og YouTube-stjarna. „Okkur hefur fundist vanta vett- vang fyrir ungar konur, sem eru að gera spennandi hluti, til þess að mynda tengslanet og þróa sínar hugmyndir áfram,“ segir Erla Björnsdóttir. Hún og Þóra Hrund Guðbrandsdóttir vinna að stofnun samtaka fyrir ungar konur með hugmyndir sem þær vilja framkvæma. Um helgina kemur fyrsta verk- efnið þeirra, jóladagatal fjöl- skyldunnar, út. „Jóladagatal- ið fékk miklu betri viðtökur en við bjuggumst við og í kjölfarið fórum við að ræða að það vantaði svona samtök. Á endanum ákváð- um við bara að stofna þau sjálf- ar,“ segir Erla. Markmið samtakanna verð- ur að mynda samstöðu á meðal ungra kvenna og skapa samfé- lag þar sem konur geta myndað tengslanet og miðlað upplýsing- um. „Okkur langar að vera með fyrirlestraröð og fá konur með skemmtilegar og góðar hugmynd- ir sem geta sagt frá sinni reynslu til þess að koma og flytja fyrir- lestra,“ segir hún. Samtökin eru ekki enn komin með nafn enda er nóg um að vera þessa dagana. „Við erum á fullu að vinna í þessu. Sitjum sveittar við dag og nótt að sinna jóladagatalinu okkar og erum líka að vinna í dagbók sem á að koma út desember.“ Auk alls þessa reka Erla og Þóra sín eigin fyrirtæki, Betri svefn og ReykjavikNow. - gló Ákváðu að taka málin í sínar eigin hendur Erla Björnsdóttir og Þóra Hrund Guðbrandsdóttir stofna samtök fyrir ungar konur með góðar hugmyndir. ERLA OG ÞÓRA Þeim fannst vanta vettvang fyrir ungar konur með góðar hugmyndir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Uppskeruhátíð Fatahönnunar- félags Íslands verður haldin föstu- daginn 21. nóvember. Í ár verð- ur hátíðin einstaklega vegleg og verður áherslan lögð á uppbygg- ingu tískufyrirtækja á norrænum slóðum. „Í ár fáum við hinn sænska Rol- and Hjort, yfirhönnuð og eig- anda fatamerkisins WHYRED, til okkar. Hann mun deila sinni reynslu, en fyrirtæki hans fagn- ar 15 ára starfsafmæli í ár. Að auki kemur hin færeyska Barb- ara í Gongini til okkar og mun hún segja sína sögu af stofnun og rekstri tískufyrirtækis á norræn- um slóðum,“ segir Sif Baldursdótt- ir, meðstjórnandi Fatahönnunar- félags Íslands og verkefnastjóri uppskeruhátíðarinnar. Auk þeirra munu forsvarsmenn Nordic Fash- ion Association koma og fjalla um uppbyggingu tískubransans í heild á Norðurlöndunum. Tilgangur hátíðarinnar er að efla samheldni innan fagsins, sem er frekar ungt hér á landi, og skapa vettvang fyrir faglega umræðu. Á hverju ári útskrif- ast fjöldi ungra hönnuða bæði frá Listaháskóla Íslands og frá skólum erlendis. „Margir fatahönnuðir vilja ná sér í reynslu erlendis eða stofna sín eigin tískufyrirtæki á Íslandi. Markaðurinn hér heima er óneit- anlega lítill og því er mikilvægt fyrir íslenska hönnuði að komast inn á erlendan markað líka. Því þykir okkur afar mikilvægt að fá til landsins reynslumikið fólk úr faginu sem getur deilt sinni reynslu og stækkað tengslanet hönnuðanna,“ segir Sif. Hún segir þó nokkra vitund- arvakningu hafa orðið meðal almennings um fatahönnun á Íslandi og um hönnun almennt. „Við finnum fyrir því að almenn- ingur hefur meiri áhuga á íslenskri fatahönnun og hefur betri þekk- ingu á henni. Einnig hefur Hönn- unarmars skipt sköpum við að vekja áhuga almennings á hönnun almennt.“ adda@frettabladid.is Þekktir fatahönnuðir á leið til landsins Uppskeruhátíð Fatahönnunarfélags Íslands verður haldin 21. nóvember næst- komandi. Roland Hjort, yfi rhönnuður fatamerkisins WHYRED, og Barbara í Gongini verða gestir hátíðarinnar og munu deila reynslu sinni með gestum. VERKEFNASTJÓRI Sif Baldursdóttir verkefna stjóri segir hátíðina einstaklega veglega í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Michael H. Berkowitz. Var hjá Calvin Klein í 15 ár og vinnur nú fyrir Nike, Tom Ford og fleiri. Ingvar Helgason, annar hönnuður tvíeykisins Ostwald Helgason. Helga Björnsson, starfaði í 20 ár sem hönnuður við haute couture hjá Louis Feraud í París. Alice Smith og Cressida Pye hjá tískuráðgjafafyrirtækinu Smith&Py, sem vinnur meðal annars fyrir Alexander McQueen og Louis Vuitton. ➜ Fyrirlesarar sem hafa verið á uppskeruhátíð: Blue Hawaii er lag sem blandar tveimur sólum Star- walkers fullkomlega saman í eina geim- þoku– Stereogum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.