Fréttablaðið - 13.11.2014, Side 31

Fréttablaðið - 13.11.2014, Side 31
FIMMTUDAGUR 13. nóvember 2014 | SKOÐUN | 31 Ríkisstjórn Framsóknar- flokks og Sjálfstæðis- flokks hefur nú verið við völd í nokkuð á annað ár. Stjórnarflokkarnir gáfu stór kosningaloforð í kosn- ingabaráttunni vorið 2013. Framsókn lofaði að færa niður fasteignalán almenn- ings um 2-300 milljarða og ná í því skyni peningum af þrotabúum föllnu bank- anna. Stjórnarflokkarn- ir báðir lofuðu skattalækkunum, m.a. lækkun á sköttum atvinnu- lífsins svo sem á tryggingagjald- inu. Og báðir flokkarnir lofuðu að leiðrétta að fullu kjaragliðn- un þá, sem aldraðir og öryrkjar urðu fyrir á krepputímanum. Og þeir lofuðu einnig að afturkalla að fullu kjaraskerðingu þá, sem líf- eyrisþegar urðu fyrir 1. júlí 2009. Og þannig mætti áfram telja. Lof- orðin voru fleiri. Lítil lækkun fyrirtækjaskatta Hvernig hefur tekist til? Hvern- ig hefur ríkisstjórninni tekist að standa við stóru orðin? Henni hefur tekist það illa. Stóra kosn- ingaloforðið um hundraða millj- arða lækkun fasteignalána skrapp saman og verður að tæpum 80 milljörðum kr. Þeir fjármunir verða ekki teknir af þrotabúum bankanna heldur af skattgreiðend- um! Eða m.ö.o. þeir verða færðir úr einum vasa í annan. Almennir skattar atvinnulífsins hafa lítið lækkað enn. Tryggingagjaldið var lækkað um 0,1% fyrir ári. Það var svo lítil lækkun, að hún fannst varla. En að vísu var veiðigjald- ið lækkað. Í stað þess að lækka tryggingagjaldið myndarlega en það hefði komið öllum fyrirtækj- um til góða var ráðist í verulega lækkun veiðigjalds, sem gagnað- ist auðugum útgerðarfyrirtækjum. Einkennileg forgangsröðun það. Ekki staðið við loforð Ríkisstjórnin hefur ekki staðið við stóru kosningaloforðin, sem stjórnarflokkarnir gáfu öldruðum og öryrkjum. Loforðið um leiðrétt- ingu á kjaragliðnun krepputím- ans hefur ekki verið efnt. Hækka þarf lífeyri aldraðra og öryrkja um a.m.k. 20% til þess að fram- kvæma umrædda leiðréttingu. Það mundi hækka lífeyri ein- hleypra ellilífeyrisþega, sem ein- ungis hafa tekjur frá almanna- tryggingum, um tæpar 44 þús. kr. á mánuði fyrir skatt. Kostnaður við þessa leiðréttingu hjá öldruð- um og öryrkjum er um 17 millj- arðar króna. Stjórnarflokkarnir lofuðu að færa þessa fjármuni til lífeyrisþega, ef þeir næðu völd- um. Því miður bendir allt til þess, að þeir ætli að svíkja þetta loforð. Varðandi afturköllun kjaraskerð- ingarinnar frá 1. júlí 2009 er það að segja, að einungis hluti henn- ar hefur verið afturkallaður, þ.e. frítekjumark vegna atvinnutekna aldraðra hefur verið leiðrétt svo og útreikningur á grunnlífeyri lífeyr- isþega. Hætt hefur verið að reikna greiðslur úr lífeyrissjóði með tekjum við útreikning á grunn- lífeyri. Þriðja skerðingin, aukin skerðing tekjutryggingar, rann út af sjálfu sér um sl. áramót, þar eð lögin þar um giltu ekki lengur. Þrjár aðrar skerðingar frá 2009 eru óleiðréttar svo og leiðrétting vegna kjaragliðnunarinnar. Stjórnin tók við góðu búi Talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa undanfarið státað af því, að flest- ir hagvísar séu orðnir mjög hag- stæðir og hafa þeir gefið til kynna, að þetta væri núverandi ríkisstjórn að þakka. Sannleikurinn er hins vegar sá, að fyrri rík- isstjórn, þ.e. stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, tókst mjög vel að skapa hagvöxt, draga úr verðbólgu og atvinnuleysi o.fl., þannig að núverandi stjórn tók við góðu búi. Þegar árið 2011 var orðinn myndarlegur hagvöxtur hér eða 2,7%. Var það mun meiri hagvöxtur en í flestum öðrum löndum V-Evrópu nema í Noregi. Árið 2012 var hagvöxtur 1,5% og árið 2013 var hagvöxtur 3,3%. Verðbólgan var 18,6%, þegar ríkisstjórn Jóhönnu tók við en var komin í 3,4% þegar stjórnin fór frá. Ríkissjóðshallinn var yfir 200 milljarðar í ársbyrjun 2009 en var kominn niður í einn milljarð 2013. Vöruskiptajöfnuðurinn var óhag- stæður í ársbyrjun 2009 en varð snemma hagstæður á valdatíma- bili Jóhönnu. Þótt gengisfall krón- unnar í kjölfar bankahrunsins hafi komið illa við almenning hjálpaði gengisfallið útflutningsatvinnuveg- unum og ferðaiðnaðinum. Góðar makrílveiðar hjálpuðu einnig upp á þjóðar búskapinn. Ójöfnuður eykst Enn sem komið er hefur núver- andi ríkisstjórn valdið mörg- um vonbrigðum. Hún hefur ekki staðið undir væntingum. Því miður hefur stjórnin aukið nokkuð ójöfnuð í þjóðfélaginu á ný. Breytingar þær, sem ríkis- stjórnin gerði á skattkerfinu, juku ójöfnuð. Veiðigjöld útgerð- arinnar voru lækkuð en gróði hefur verið í hæstu hæðum hjá útgerðinni sl. tvö ár. Auðlegðar- skattur felldur niður. En skattar voru ekki lækkaðir á þeim lægst launuðu. Stjórnin ekki staðið við stóru orðin FJÁRMÁL Björgvin Guðmundsson viðskiptafræðingur ➜ Ríkisstjórnin hefur ekki staðið við stóru kosninga- loforðin, sem stjórnar- fl okkarnir gáfu öldruðum og öryrkjum. Loforðið um leiðréttingu á kjaragliðnun krepputímans hefur ekki verið efnt. Hækka þarf líf- eyri aldraðra og öryrkja um a.m.k. 20% til þess að fram- kvæma umrædda leiðrétt- ingu. tamaris.eu tamaris.eu

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.