Fréttablaðið - 13.11.2014, Blaðsíða 32
13. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 32TÍMAMÓT
Það er svo þægilegt að
vera handverkskona og
þurfa ekki að vera á stalli
sem listamaður.
Lára GunnarsdóttirElskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
BRYNDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR
Bólstaðarhlíð 34, Reykjavík,
lést á líknardeildinni í Kópavogi
miðvikudaginn 5. nóvember sl. Útförin fer
fram frá Háteigskirkju föstudaginn
14. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á hjúkrunarþjónustu Karitas, karitas.is.
Jónína Gissurardóttir Bragi Ragnarsson
Símon Már Gissurarson Mariam Heydari
Hulda Kristinsdóttir
Örn Sigurjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN ÓLAFSSON
Lindarflöt 42, Garðabæ,
lést að Hrafnistu í Boðaþingi þann
9. nóvember. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. nóvember
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á Ljósið, Langholtsvegi 43.
Áslaug Sigurgrímsdóttir
Brynja Guðjónsdóttir Sveinn Þór Hallgrímsson
Unnur Þóra Jökulsdóttir Árni Einarsson
afabörn og langafabarn.
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
RÓSINKRANS KRISTJÁNSSON
leigubílstjóri,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn
7. nóvember. Útför verður auglýst síðar.
Sigurlín Ester Magnúsdóttir (Edda)
Örn Sævar Rósinkransson Helga Gunnarsdóttir
Unnur Rut Rósinkransdóttir Hörður Finnbogason
Kristján Friðrik Rósinkransson Birgitta Pétursdóttir
Linda Rósinkrans Nikulás Þorvarðarson
Magnús Sverrisson Ásta Ragnarsdóttir
Jóhann Magni Sverrisson Leidy Karen Steinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ÁGÚSTA SIGURÐARDÓTTIR
Hólabergi 84, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
10. nóvember sl. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju, miðvikudaginn 19. nóvember kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið við Langholtsveg.
Kristján R. Knútsson Hrönn Laufdal
Sigurður M. Knútsson Þórunn Sigurðardóttir
Valgerður Knútsdóttir Guðmundur Sigurðsson
Jón S. Knútsson
Agnar Einar Knútsson
og fjölskyldur
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓHANNA H. CORTES
lést 5. nóvember á Landspítalanum í Foss-
vogi. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykja-
vík föstudaginn 14. nóvember kl. 13.00.
Jónína Kolbrún Cortes
Björg Cortes Andrés Sigvaldason
Óskar Torfi Cortes Viggósson
Páll Snorri Cortes Viggósson Rie Miura
Jóhanna Cortes Andrésdóttir
Brynja Cortes Andrésdóttir
Ísabella María, Viggó Snorri, Aron, Andrés Illugi, Karen og
Steingrímur
Davíð
Ósvaldsson
útfararstjóri
Óli Pétur
Friðþjófsson
útfararstjóri 551 3485 • www.udo.is
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HALLA LÍNBERG KRISTJÁNSDÓTTIR
sem lést 29. október verður jarðsungin frá
Hofsóskirkju, laugardaginn 15. nóvember
kl. 14.00.
Hólmfríður J. L. Runólfsdóttir Steinn Gunnar Ástvaldsson
Inga P. L. Runólfsdóttir Einar Guðmundsson
Kristján Þ. L. Runólfsson Ragnhildur Guðmundsdóttir
María L. Runólfsdóttir
Sigurður Ásgeir L. Runólfsson Belinda Mirandilla
Sigríður L. Runólfsdóttir Halldór Sverrisson
Birna L. Runólfsdóttir
Björg L. Runólfsdóttir
Róbert L. Runólfsson Freydís Aðalbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Ég vinn eingöngu úr íslensku birki
sem ég kaupi hjá Skógræktinni. Það
hefur verið minn efniviður í tuttugu
ár,“ segir Hólmarinn Lára Gunnars-
dóttir, sem hlaut Skúlaverðlaunin á
nýafstaðinni sýningu Handverks og
hönnunar. Þau eru kennd við Skúla
Magnússon fógeta sem var frumkvöð-
ull smáiðnaðar í Reykjavík.
„Handverksvinna mín hófst eigin-
lega um leið og verkefnið Handverk
og hönnun var sett á laggirnar fyrir
tuttugu árum og fór að auglýsa sam-
keppnir og sýningar. Þá hætti ég í
myndsköpun sem ég hafði verið í fram
að því,“ lýsir Lára sem lauk námi frá
grafíkdeild Myndlista-og handíðaskól-
ans „í gamla daga“, eins og hún orðar
það. „Í mörg ár vann ég með grafík,
teikningu, vatnsliti og fleira þar til ég
sneri mér að því að móta hluti úr tré.
Það er svo þægilegt að vera handverks-
kona og þurfa ekki að vera á stalli sem
listamaður,“ segir hún glaðlega. „Það
sem ég bý til er ekki fjöldaframleiðsla,
heldur er nostrað við hvern hlut,“ segir
hún og kveðst hafa selt í Safnabúð
Þjóðminjasafnsins, Kirkjuhúsinu, Epal
Design í Leifsstöð, í Stykkishólmi og
á mörkuðum Handverks og hönnunar.
Spurð hvort hún hafi selt alla sína
framleiðslu síðustu tuttugu árin svarar
hún: „Já, Handverk og hönnun leggur
oft svolítið línurnar með því að gefa
fólki kost á að senda inn hluti á sýn-
ingar sem hafa ákveðið þema. Nýsköp-
unin hjá mér hefur því stundum farið
eftir þeim skilyrðum sem þar eru sett.
Ég byrjaði að gera fugla í fyrra sem ég
tálga og sýndi á Ráðhúsmarkaðinum í
maímánuði í vor en þegar keppt er um
Skúlaverðlaunin verða þátttakendur
að koma með alveg nýja hluti sem ekki
hafa sést áður. Því lagði ég hausinn í
bleyti og bjó til þessa fugla sem hlutu
náð fyrir augum dómnefndar,“ segir
Lára sem kallar tré muni sína smávini
og er með heimasíðuna smavinir.is.
gun@frettabladid.is
Nostrað við hvern hlut
Handgerðir smáfuglar úr birki skiluðu Láru Gunnarsdóttur Skúlaverðlaununum 2014 á
sýningunni Handverk og hönnun sem haldin var í Ráðhúsi Reykjavíkur um síðustu helgi.
VIÐ AFHENDINGUNA Lára Gunnarsdóttir verðlaunahafi, Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Ólöf Erla Bjarnadóttir leir-
listamaður sem hlaut viðurkenningu fyrir Möttulkviku, kökudisk á fæti, og Sunneva Hafsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar.
SMÁVINIR Þessir fuglar slógu í gegn hjá dómnefndinni.
MERKISATBURÐIR
1742 Konunglega danska vísinda-
félagið er stofnað.
1939 Þýska flutningaskipinu Par-
ana er sökkt út af Patreksfirði og
áhöfnin tekin til fanga af bresku
herskipi.
1946 Flugvöllur er tekinn formlega
í notkun í Vestmannaeyjum.
1973 Alþingi samþykkir formlega
samning við Bretland um lausn
landhelgisdeilunnar vegna útfærslu
íslensku landhelginnar í 50 mílur.
1994 Svíar kjósa að ganga í ESB í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
2004 Lög eru sett á verkfall grunnskólakennara sem staðið
hefur í tvo mánuði.
2013 Nýr turn á lóð Tvíburaturnanna í New York er vígður með
viðhöfn, 72 hæðir og 297,7 metrar á hæð.