Fréttablaðið - 14.11.2014, Blaðsíða 10
14. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
SVEITARSTJÓRNIR Sveitarstjórn
Hörgársveitar samþykkti að Mold-
haugahálsinn, norðan Akureyrar,
yrði nánast allur nýttur í efnis-
námu. Íbúi í grennd við hálsinn
er afar ósáttur og segir að þetta
muni gerbreyta ásýnd svæðisins.
Formaður Landverndar telur að
fara þurfi varlega.
Hörgársveit á land frá Akureyri
í Eyjafirði og liggur bæjarfélagið
inn Öxnadal og Hörgárdal. Malar-
nám hefur verið í sveitarfélaginu
við Hörgá um áratugaskeið. Síð-
ustu árin hefur efnistaka einnig
verið í Moldhaugahálsi, rétt ofan
við þjóðveg eitt. Með samþykkt
sveitarstjórnar, frá því í fyrra,
gefst verktökum kostur á að vinna
efni úr hálsinum næstu fimmtíu
árin. Verði það að veruleika munu
sjónræn áhrif efnistökunnar verða
mikil víða. Íbúar eru margir hverj-
ir ósáttir við það. Þeir sem Frétta-
blaðið hefur rætt við segjast ekki
hafa vitað nógu vel hversu mikil
efnistaka er fyrirhuguð í hálsin-
um. Væntanleg malarnáma sé í
alfaraleið og sjónmengun af henni
verði mikil.
Hjörvar Kristjánsson, íbúi á Ósi
í Hörgársveit, undrast þessa til-
högun. „Mér finnst hálfundarlegt
að þessi ráðstöfun skuli ganga í
gegnum allt kerfið án þess að
nokkur segi neitt. Þetta mun hafa
mikil áhrif. Ég tel þetta ekki Hörg-
ársveit til hagsbóta að leyfa svona
stórfellda efnistöku í Moldhauga-
hálsinum.“
Í umhverfismati sem gert
var segir að nokkur sjónræn
áhrif verði af framkvæmdinni.
„ … svæðið liggur nærri hringveg-
inum og er sýnilegt af honum en
mestra sjónrænna áhrifa gætir
af Ólafsfjarðarvegi og í nágrenni
hans. Landslag á svæðinu telst ein-
kennalítið og verndargildi lands-
lags ekki mikið. Beinna áhrifa á
landslag gætir þegar á hálsinum
og aukin efnistaka mun stækka
raskað svæði til suðvesturs. Áhrif-
in á náttúrulegt landslag á hálsin-
um munu aukast og eru áhrifin
bein og varanleg.“
Guðmundur Sigvaldason, sveit-
arstjóri Hörgársveitar, segir
svæðið og efnistökuna hafa geng-
ið í gegnum öll lögformleg ferli.
Umhverfismat hafi verið gert þar
sem ítarlega hafi verið farið ofan í
saumana á svæðinu. „Þessi efnis-
taka er þannig skipulögð að verk-
taki þarf að undirgangast mjög
ströng skilyrði sem ég held að séu
líklega með þeim strangari hér á
landi. Sveitarstjórn getur fyrir-
skipað stöðvun efnistöku með sjö
daga fyrirvara ef ekki er farið
að settum skilyrðum,“ segir Guð-
mundur. Hann segir að reynt verði
að minnka sjónræn áhrif fram-
kvæmdanna. „Þessi áhrif geta
valdið einhverjum sjónrænum
áhrifum frá vissum stöðum.“
Guðmundur Hörður Guðmunds-
son, formaður Landverndar, telur
að menn þurfi að stíga varlega til
jarðar þegar malarnám er annars
vegar. „Ingólfsfjall til að mynda er
víti til að varast. Margir Selfyss-
ingar, Sunnlendingar og aðrir sjá
enn eftir þeirri ráðstöfun að hafa
leyft malarnám í Ingólfsfjalli.
Það sár sem sést þar er fyrir allra
augum og menn ættu í þessu til-
viki að íhuga hlutina vandlega.“
sveinn@frettabladid.is
Margir
[...] sjá enn
eftir þeirri
ráðstöfun að
hafa leyft
malarnám í
Ingólfsfjalli. Það sár sem
sést þar er fyrir allra
augum og menn ættu í
þessu tilviki að íhuga
hlutina vandlega.
Guðmundur Hörður Guðmundsson,
formaður Landverndar
AUSTARI
STÓRI-KLETTUR
VESTARI
STÓRI-KLETTUR
Akureyri
Þelamörk
Dalvík
ÞELAMÖRK HÉR SÉST FYRIRHUGAÐ EFNISTÖKUSVÆÐI
Leyfa stórfellt malarnám í
50 ár í landi Hörgársveitar
Skiptar skoðanir eru um leyfi sveitarstjórnar Hörgársveitar til að leyfa efnistöku í Moldhaugahálsi við Akureyri.
Sjónræn áhrif verða mikil verði allt landið nýtt. „Ingólfsfjall víti til að varast,“ segir formaður Landverndar.
HEILSA Hjartaheill og SÍBS buðu
ókeypis mælingu á blóðþrýstingi,
blóðsykri, blóðfitu og súrefnis-
mettun um síðustu helgi. Met-
fjöldi mætti í mælingu, en af 866
manns sem mældir voru reyndust
532 eða 61% vera með háþrýst-
ing, og þar af voru 48 manns
eða 5,5% á hættusvæði. Það
voru hjúkrunarfræðinemar við
Háskóla Íslands ásamt starfsfólki
Hjartaheilla og SÍBS sem unnu
að mælingunum. Fjölda fólks var
bent á að fara til læknis í frekari
skoðun í kjölfar mælinga. - sáp
Mældu blóðþrýsting:
Margir með of
háan þrýsting
DÓMSMÁL Ein umsókn barst um
setningu í embætti dómara við
Hæstarétt frá 1. janúar 2015 til
15. september 2017. Starfið var
auglýst laust til setningar og var
umsóknarfrestur til 13. október
síðastliðins. Ingveldur Einars-
dóttir, settur dómari við Hæsta-
rétt, var eini umsækjandinn. Í
frétt á vef innanríkisráðuneytis-
ins segir að umsóknin hafi verið
send dómnefnd sem metur hæfni
umsækjenda um embætti dómara,
skv. ákvæðum laga nr. 15/1998
um dómstóla. Ingveldur var sett
hæstaréttardómari til tveggja ára
frá 1. janúar 2013. - aí
Dómari við Hæstarétt:
Ein sótti um
KÓPAVOGUR „Sérstaklega undr-
ast ég framgöngu aðstoðarmanns
húsnæðismálaráðherra og hrein-
lega spyr um hæfi hans,“ segir í
bókun Ármanns Kr. Ólafssonar
bæjarstjóra í tilefni af umræðu í
bæjarstjórn Kópavogs um félags-
legt húsnæði.
Vísar Ármann til bókunar
Matthíasar Imsland og fleiri um
skort á slíku húsnæði. „Það getur
ekki verið markmið bæjarins að
fela vandamálið heldur hlýtur
að vera markmiðið að veita þá
þjónustu sem fólk á rétt á,“ bók-
uðu Matthías og aðrir fulltrúar
minnihlutans. Matthías er aðstoð-
armaður félagsmálaráðherra.
„Nær væri að fulltrúinn snéri sér
að ráðherra sínum og aðstoðaði
hana við að vinna að framgangi
húsnæðismála í samræmi við
skýrslu sem hún sjálf lét vinna,“
bókaði Ármann. - gar
Bæjarstjórinn í Kópavogi ósáttur við gagnrýni vegna félagslegra íbúða:
Efast um hæfi aðstoðarmanns
METFJÖLDI Margir mættu í ókeypis
mælingu.
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSON
MATTHÍAS
IMSLAND
ATVINNUMÁL „Ég sótti um verk-
efnastjórastöðu í þjónustuveri og
fékk hana ekki en hins vegar er ég
í tímabundinni ráðningu sem verk-
efnastjóri stefnumótunar. Og hluti
af því starfi er að veita upplýsing-
ar bæði út á við og inn á við,“ segir
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir,
fyrrverandi bæjarstjóri og núver-
andi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.
Á bæjarráðsfundi í Kópa-
vogi í gær var lögð fram fyrir-
spurn varðandi ráðningu Guð-
rúnar Ágústu hjá Strætó bs. sem
upplýsingafulltrúa. Karen Elísa-
bet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi
fyrir Sjálfstæðisflokk, lagði fyr-
irspurnina fram. Þar spyr hún
hvernig starfið hafi verið auglýst,
hvort ráðningarferlið hafi verið
opið og gagnsætt og hvort um
tímabundna ráðningu hafi verið að
ræða. Bendir Karen á í fyrirspurn-
inni að siðareglur bæjarfulltrúa og
stjórnenda í Kópavogi hefðu mein-
að viðkomandi að taka við starfinu
ef viðkomandi væri bæjarfulltrúi
eða formaður stjórnar Strætó.
Guðrún Ágústa er fyrrverandi
formaður stjórnar Strætó bs. Sjálf
segir Guðrún Ágústa að ráðningin
sé tímabundin til eins árs. - vh
Fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar ráðinn tímabundið hjá Strætó bs.:
Spyr um ráðningu Guðrúnar
GUÐRÚN ÁGÚSTA Var ráðin tímabund-
ið sem verkefnastjóri stefnumótunar
hjá Strætó bs. en í starfinu felst meðal
annars að sinna upplýsingagjöf.
Ég sótti um verkefna-
stjórastöðu í þjónustuveri
og fékk hana ekki en hins
vegar er ég í tímabundinni
ráðningu sem verkefna-
stjóri stefnumótunar.
GEIMVÍSINDI Könnunarfarið Philae
er nú stöðugt á yfirborði hala-
stjörnu eftir að hafa fyrst mistekist
að skorða sig fast á yfirborði henn-
ar. Myndir hafa borist frá könn-
unarfarinu og ræða vísindamenn
nú næstu skref. Fyrstu upplýsing-
ar bentu til að farið hafi þrívegis
reynt að lenda á halastjörnunni án
árangurs, en skutlum farsins mis-
tókst að festa farið á yfirborðinu.
Philae lenti á halastjörnunni í
gær eftir tíu ára ferðalag, en vís-
indamenn vonast til að farið geti
veitt innsýn í upphaf sólkerfis
okkar. - aí
Könnunarfarið er nú lent á halastjörnunni:
Stöðugt á yfirborði
PHILAE
Hér má sjá
könnunar-
farið sem er
nú stöðugt
á yfirborði
halastjörnu.
NORDICPHOTOS/
GETTY
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
dæmt Hrannar Pál Róbertsson í
fangelsi í 5 og hálft ár fyrir til-
raun til manndráps, þrjá þjófnaði
og akstur undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. Þá hefur hann verið
sviptur ökuréttindum ævilangt.
Hrannar játaði fyrir dómi þjófn-
aðina og akstur undir áhrifum.
Hann neitaði hins vegar að hafa
gerst sekur um tilraun til mann-
dráps en honum ert gert að sök að
hafa stungið mann.
- skh
Fimm og hálfs árs fangelsi:
Tilraun til
manndráps
Það getur ekki verið
markmið bæjarins að fela
vandamálið.
Úr bókun minnihlutans í félagsmálaráði
KJARAMÁL Pattstaða er enn í deilu
tónlistarkennara og sveitarfélaga.
Verkfall tónlistarkennara hefur
nú staðið í á fjórðu viku og sátt
virðist ekki í sjónmáli. Viðsemj-
endur hafa ekki fundað með ríkis-
sáttasemjara síðan á mánudag.
Meðan á verkfalli stendur eru tón-
listarkennarar með um 180 þús-
und krónur á mánuði eða 6 þúsund
krónur á dag. Ríkissáttasemjari
segir að ekki sé ástæða til að boða
til fundar með deiluaðilum fyrr en
eitthvað nýtt komi fram. - vh
Verkfall tónlistarkennara:
Ekkert þokast
í viðræðum