Fréttablaðið - 14.11.2014, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 14.11.2014, Blaðsíða 32
8 • LÍFIÐ 14. NÓVEMBER 2014 S igríður Eyrún Friðriks- dóttir, betur þekkt sem Sigga Eyrún, hefur vakið verðskuldaða athygli í ís- lensku tónlistarlífi eftir að hafa flutt lagið Lífið kvikn- ar á ný í Söngvakeppni Sjón- varpsins á árinu. Lagið naut mik- illa vinsælda og ekki síður dans- inn sem saminn var sérstaklega fyrir lagið. Lagið samdi Sigga Eyrún ásamt sambýlismanni sínum, Karli Olgeirssyni upp- tökustjóra. Texti lagsins flétt- aðist á skemmtilegan hátt við líf Siggu Eyrúnar sjálfrar sem hún segir að sé dásamlegt ferða- lag en oft á tíðum hafi hún þurft að hvetja sig áfram þegar ekk- ert virtist ætla að ganga upp. Siggu Eyrúnu var þó ekki ætlað að fara í Söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva að þessu sinni en lagið lenti í öðru sæti á eftir Pollapönkslaginu, Enga for- dóma. Sigga Eyrún hefur ekki setið auðum höndum síðan þá og kemur á næstu dögum út plata sem hún vann með Karli auk þess sem þau eiga vona á barni í des- ember. Það eru því spennandi LÍFIÐ KVIKNAR ENN Á NÝ SIGRÍÐUR EYRÚN FRIÐRIKSDÓTTIR sló svo eftirminnilega í gegn í Söngvakeppni Sjónvarpsins fyrr á árinu. Þessa dagana bíður hún í ofvæni eftir nýrri plötu sem og barni sem hún á von á með tónlistarmanninum Karli Olgeirssyni. Hún sleit barnsskónum í Breiðholtinu en ferðaðist heimshorna á milli og sankaði að sér eftirminnilegri reynslu úr leikhúsheiminum. Nú er Sigga komin heim og spennandi tímar fram undan. Friðrika Hjördís Geirsdóttir Umsjónarkona Lífsins tímar fram undan hjá þessari orkumiklu og duglegu konu. Listagyðjan kallaði Sigga Eyrún sleit barnsskónum á milli Breiðholtsins og Óðinsvéa í Danmörku. Hún segist strax hafa haft mikinn áhuga á leik- og söng- list enda mikið um listrænt fólk í föðurfjölskyldunni. „Pabbi og hans fjölskylda eru mikið söng- fólk, ætli ég hafi ekki áhugann þaðan. Þegar ég minnist mín sem barns þá var ég sísyngjandi,“ segir Sigga Eyrún. Fljótlega í grunnskóla fór hún að leika í skólaleikritum og syngja á skóla- skemmtunum. „Sumir myndu segja að ég hefði verið ansi ráð- rík á þessum tíma,“ segir Sigga Eyrún og hlær. „Ég vil þó meina að ég hafi bara verið ákveðin og verið að redda leikritinu, sjá til þess að hlutirnir væru í lagi,” segir hún. Sigga Eyrún tók þátt í fyrstu Skrekkskeppninni, sem hald- in var, með misgóðum árangri að eigin sögn. „Þetta var alveg hræðilegt, við mæmuðum eitt- hvert agalegt væl,“ segir hún, ranghvolfir augunum og hlær. Á táningsárunum leiddi Sigga Eyrún hugann að öðru og það var ekki fyrr en að hún byrjaði í Menntaskólanum við Sund að hún beindi augum sínum aftur að listagyðjunni og tók þátt í leiklist- inni af fullum krafti. „Það varð í rauninni ekki aftur snúið eftir menntaskólann, söng- og leiklist- in skyldi liggja fyrir mér,“ segir Sigga Eyrún. Eftir að hafa lokið námi í grunnskólakennaramenntun við Háskóla Íslands, Söngskóla Reykjavíkur og Tónlistarskóla FÍH, lá leið okkar konu til Surrey í Bretlandi, nánar tiltekið í nám við söngleikjadeild Guildford School of Acting. „Þetta er mik- ilsvirtur, gamaldags breskur leik- listarskóli sem mikið af góðum listamönnum hefur útskrifast úr, meðal annars Halla Vilhjálms og Ian McKellen,“ segir Sigga Eyrún. Þess má geta að skól- inn hefur verið valinn einn af tíu bestu leiklistarskólum í Bret- landi. Sigga Eyrún kláraði meist- aranám úr söngleikjadeildinni en var ekki tilbúin að koma heim að svo stöddu og hélt því til Toronto í Kanada. „Ég var svo heppin að kynnast henni Maju Árdal, leik- konu og þekktum leikstjóra í Tor- onto. Hún er af íslenskum upp- runa en hefur alið manninn er- lendis og náð góðum árangri á sínu sviði. Hún opnaði fyrir mér heim leiklistar í borginni,“ segir hún. Sigga Eyrún dvaldi samtals fimm ár í Kanada og sankaði að sér reynslu úr leikhúsheiminum auk þess sem hún hlaut raddþjálf- un hjá einum besta raddþjálfun- arkennara þar í landi. „Ég var mjög heppin að kom- ast að hjá góðum raddþjálfunar- kennara sem meðal annars þjálf- aði leikara fyrir söngleikina Hair spray og Chicago,“ segir Sigga Eyrún. Meðan á dvöl henn- ar stóð í Toronto komst Sigga Eyrún langt í prufum fyrir söng- leikinn Lord of the Rings. „Ég var komin það langt í valinu að ég var komin á launaskrá. Þar sem ég er rétt undir 1,60 cm á hæð þá var ég í hobbitahópnum. Þetta var mjög skemmtileg og góð reynsla sem ég fékk þarna og bý að í dag.“ Sló í gegn á Gay Pride Eftir að Sigga Eyrún sneri heim fékk hún fastráðningu í Stúdíói Sýrlandi þar sem hún vinnur að hluta enn í dag. „Ég fæ mikla útrás í því að talsetja og hef tal- sett fjöldann allan af teiknimynd- um. Meðal annars er ég rödd Die- gos, Gurru gríss, Hvells keppnis- bíls og Eydísar systur Finnboga og Felix,“ segir hún og bætir við að stundum óski hún sér að geta leikið þessa litríku karaktera á sviði. Meðfram vinnu sinni í Sýr- landi tók Sigga Eyrún þátt í upp- setningum á sýningum og gjörn- ingum í Borgarleikhúsinu. „Ég var fengin til þess að vera í sýn- ingunni Gretti þar sem önnur hver leikkona var ólétt og svo tók ég líka þátt í Jesus Christ Super star og söng Superfragil- isticexpialidocious, lagið sívin- sæla í Mary Poppins, en það var ógleymanleg lífsreynsla og skemmtileg. Fyrir utan þessi verk í Borgarleikhúsinu tók ég líka þátt í uppsetningunni á Vesa- lingunum í Þjóðleikhúsinu en það var einstök upplifun,“ segir hún. Sigga Eyrún var einnig í hópi nokkurra leikara sem fengnir voru til þess að búa til óvissuferð um leikhúsið. „Við vorum nokk- ur sem fengum það skemmtilega hlutverk að búa til óvissuferð um leikhúsið. Við fengum frjáls- ar hendur við að búa til ýmsa karaktera sem tóku á móti gest- um. Í einu horninu voru Hitler og Lína Langsokkur á spjalli og í „Ég er sett 20. desember og þetta er drengur, ætli ég skíri hann ekki bara Jesú.“ IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk. opið til 22 alla daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.