Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.11.2014, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 14.11.2014, Qupperneq 22
14. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 22TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRG SIGÞRÚÐUR SIGURÐARDÓTTIR (BOGGA) áður til heimilis að Norðurbraut 15, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu þann 9. nóvember. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þann 18. nóvember kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Björk Guðjónsdóttir Jón Hallur Jóhannsson Lovísa Guðjónsdóttir Tony Afzal Kjartan Ágúst Guðjónsson Sigríður Sigurðardóttir Signý Elínbjörg Guðjónsdóttir Bud Leffler Sigurlín Guðjónsdóttir Guðný Guðjónsdóttir Jón Hjaltason Guðjón Guðjónsson barnabörn og langömmubörn. Ástkær faðir, tengdafaðir, elskulegur afi og langafi, JÓN WILLIAM MAGNÚSSON forstjóri, Krossholti 6, Keflavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 7. nóvember, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 18. nóvember kl. 13.00. Magnús Jónsson Ella Björk Björnsdóttir Steinþór Jónsson Hildur Sigurðardóttir Guðlaug Helga Jónsdóttir Guttormur Guttormsson Davíð Jónsson Eva Dögg Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir og vinur okkar, ARUNAS RUDOKAS lést sunnudaginn 9. nóvember á heimili sínu. Útförin fer fram frá Maríukirkju, Raufarseli 8, 109 Reykjavík, mánudaginn 17. nóvember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á styrktarreikning Arnas sonar hans: 114-26-230399, kt. 230399-3019. Rasa Rudokiené Arnas Rudokas Gintautas Rudokas Henrikas Rudokas Nijole Rudokiené önnumst við alla þætti þjónustunnar með virðingu og umhyggju að leiðarljósi Þegar andlát ber að höndum Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is Við þjónum allan sólarhringinn MERKISATBURÐIR 1770 James Bruce finnur uppsprettu Nílarfljóts. 1918 Tékkóslóvakía verður lýðveldi. 1921 Kommúnistaflokkurinn er stofnaður á Spáni. 1948 Karl Bretaprins fæðist. 1973 Anna Bretaprinsessa giftist Markúsi Fillipusi. 2001 Norðurbandalagið nær völdum yfir borginni Kabúl í Afganistan. Hólmfríður Karlsdóttir varð ungfrú heimur á þessum degi fyrir tuttugu og níu árum. Keppnin fór fram í London á Englandi og 78 stúlkur kepptu til úrslita. Hólmfríður, sem hefur verið kölluð Hófí, var 22 ára gömul þegar keppnin fór fram en á þeim tíma starfaði hún sem fóstra. Keppnin var ekki sýnd í sjónvarpi á Ís- landi fyrr en daginn eftir að úrslitin voru kynnt en yfir hundrað milljónir manna víðs vegar um heiminn fylgdust með í beinni útsendingu þar sem Hólmfríður var krýnd fegursta kona í heimi. Hólmfríður fékk í verðlaun 1,8 milljónir króna en inni í þeirri fjárhæð var meðal annars greiðsla fyrir fyrirsætustörf. Hún ferðaðist í kjölfar sigursins um heiminn. ÞETTA GERÐIST: 14. NÓVEMBER 1985 Fegursta kona heims og stolt Íslands Hinn sigursæli knattspyrnuþjálf- ari Logi Ólafsson er sextugur í dag. „Ég er voðalega lítill afmælismaður,“ segir Logi þegar Fréttablaðið slær á þráðinn til hans. Hann segist ekki ætla að gera sér mikinn dagamun, en ætlar þó ekki alveg að horfa fram hjá tímamótun- um. „Ég er bara að fara eitthvað út að borða. Þetta verður nú ekkert meira en það,“ segir hann. Fleira verði ekki gert um helgina. „Ég ætlaði nú bara að keyra á svolítið lágum prófíl í þessum málum,“ segir hann. Þegar Logi er spurður að því hver hafi verið eftirminnilegasti afmælis- dagurinn hugsar hann sig um stundar- korn. „Ætli það hafi ekki verið tíu ára,“ segir hann svo. Logi á að baki glæstan feril í knattspyrnu. Hann fæddist þann 14. nóvember 1954. Hann var einungis þrjátíu og þriggja ára gamall þegar hann hóf þjálfun árið 1987. Þá þjálfaði hann kvennalið Vals í tvö ár. Síðan þjálfaði hann Víking frá 1990 til 1992 og var þjálfari liðsins þegar það vann Íslandsmeistaratitil árið 1991. Hann varð síðar þjálfari íslenska kvennalandsliðsins og var þjálfari þess á árunum 1993-1994. Árið 1995 þjálfaði Logi lið Skaga- manna í úrvalsdeild karla og það árið vann liðið Íslandsmeistaratit- il. Á árunum 1996-1997 stýrði hann íslenska landsliðinu. Hann tók aftur við liði ÍA árin 1997-1998. Hann hóf aftur að þjálfa íslenska landsliðið ásamt Ásgeiri Sigur- vinssyni árið 2003 og þjálfaði liðið til ársins 2005. Hann tók sér svo tveggja ára hlé frá þjálfun áður en hann tók við KR 2007-2010, svo Sel- fossi 2011-2012 og Stjörnunni 2013. jonhakon@frettabladid.is Logi Ólafsson er ekki mikið afmælisbarn Logi Ólafsson knattspyrnuþjálfari er sextugur. Hann segist ekki vera mikið afmælisbarn en ætlar að borða góðan mat með fjölskyldunni í tilefni tímamótanna. Næstum hálfa ævina hefur Logi fengist við þjálfun og tvisvar þjálfað landsliðið. Á VELLINUM Á árunum 2003- 2005 þjálfaði Logi íslenska landsliðið með Ásgeiri Sigurvins- syni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.