Fréttablaðið - 14.11.2014, Blaðsíða 40
Lífi ð
BLOGGARINN STÍLSTI OG TÍSKUBLOGGARI
Pernille Teisbæk
lookdepernille.com
Pernille Teisbæk er búin að vinna í
tískubransanum síðan árið 2005.
Hún hefur unnið bæði fyrir framan
og aftan myndavélina, fyrst sem
fyrir sæta á vegum Elite í Danmörku
og svo sem tískuritstjóri danska
tímaritsins Woman. Eftir það tók við
starf hjá tímaritinu Alt og svo var
hún ráðin tískuritstjóri Eurowom-
an árið 2011. Hún hætti þar árið
2013 og í dag starfar hún sem stíl-
isti í fullu starfi auk þess að vinna
sem tískuráðgjafi fyrir afar vinsæl-
an þátt í danska sjónvarpinu sem
heitir Go’morn DK. Hún heldur úti
vinsælu tískubloggi sem hún kallar
Look de Pernille þar sem hún birt-
ir myndir af sjálfri sér og nýjustu
fötunum auk þess að birta mynd-
ir af þeim verkefnum sem hún vinn-
ur að hverju sinni. Fallegt blogg
hjá Pernille sem gaman er að fylgj-
ast með. Margret Zhang
instagram.com/
margaret__zhang
Margaret Zhang hefur starfað sem
rithöfundur, stílisti, ljósmyndari og
listrænn stjórnandi, Hún er auk
þess að klára lögfræði í háskólan-
um í Sydney. Síðan hún byrjaði í
tískubransanum 2009 hefur hún
unnið með fyrirtækjum eins og Net-
a-Porter, Nike, VISA, Blackberry
Ltd, Shopbop og Mulberry. Hún
er með fallegan stíl og það kemur
bersýnilega í ljós á Insta gramminu
hennar ásamt fallegum myndum af
mat og ferðalögum.
Alexa Chung
www.pinterest.com/
AlexaChung1
Ofurfyrirsætan og tískudrottning-
in Alexa Chung er með Pinterest-
síðu uppfulla af tísku. Hún er með
fjöldamörg albúm sem ná yfir allt
hennar tískuveldi. Hún birtir per-
sónulegar myndir af sér, myndir af
sér á tískusýningum og á forsíðum
allra helstu tímarita. Hún pinnar
líka það sem henni finnst flott og
það er hægt að gleyma sér á síð-
unni hennar tímunum saman.
Julie Sarinana
twitter.com/sincerelyJules
Julie Sarinana hefur haldið úti
heimasíðunni Sincerely Jules frá
því í febrúar 2009. Síðuna notar
hún til þess að fá tjá sig um hugs-
anir, fá útrás fyrir sköpunarþörf og
deila innblæstri. Hún hefur fengið
umfjöllun í öllum helstu tímatritum
heims fyrir flottan stíl og skemmti-
lega síðu. Hún heldur einnig úti
vinsælli Twitter-síðu sem vert er að
fylgjast með. Hún er dugleg að
uppfæra hana og birtir myndir af
sér í múnderingum dagsins við mik-
inn fögnuð aðdáenda sinna.