Fréttablaðið - 14.11.2014, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 14.11.2014, Blaðsíða 58
14. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 38 FÓTBOLTI Fram undan er topp- slagur við Tékka, einvígi tveggja efstu liðanna sem hafa ekki tapað stigi í fyrstu þremur leikj- um sínum. Íslenska liðið lá fyrir Belgum í vináttulandsleik í Bruss- el en við þurfum ekki að hafa allt- of miklar áhyggjur ef marka má þjálfaratíð Lars Lagerbäck. Æfingaleikirnir notaðir vel Undir stjórn Lars og Heimis Hall- grímssonar hefur íslenska liðið náð miklu betri árangri í leikj- unum sem skipta einhverju máli. Æfingarleikirnir hafa á sama tíma verið notaðir til að þróa og bæta liðið auk þess að gefa leikmönnum tækifæri til að sýna sig og sanna. Margir leikmenn fengu tæki- færi gegn Belgíu í fyrrakvöld og þótt að það sé ólíklegt að þeir komi inn í byrjunarliðið fyrir Tékkaleikinn þá eru þeir Lars og Heimir eflaust komnir með góða mynd af því hvenær þessir leik- menn geti hjálpað íslenska lands- liðinu á næstunni þegar leikbönn eða meiðsli herja á hópinn. Það er ekki bara að íslenska liðið sé betra í keppnisleikjum síðan Lars tók við heldur sýnir tölfræðin það að liðið er miklu betra. Íslenska landsliðið er búið að ná í 60 prósent stiga í fimm- tán leikjum í undankeppnum HM og EM síðan Lars Lagerbäck tók við en aðeins í 33 prósent stiga í vináttuleikjunum ef við reikn- um með að sams konar stigafjöldi hafi verið í boði í þeim leikjum. Vinna leikina í Dalnum Íslenska landsliðið hefur nefni- lega aðeins unnið 4 af 13 vináttu- landsleikjum sínum í þjálfaratíð Lagerbäcks, heimaleikina á móti Færeyjum (2 leikir; 2012 og 2013) og Eistlandi sem og útileik á móti Andorra í nóvember 2012. Liðið hefur unnið alla þrjá vináttuleiki sína á heimavelli án þess að fá á sig mark en er hins vegar búið að tapa 8 af 10 vináttulandsleikjum sínum utan Íslands. Íslenska liðið tapaði meðal ann- ars fjórum fyrstu leikjum sínum undir stjórn Lagerbäcks árið 2012 en fagnaði sínum fyrsta sigri í vináttuleik við Færeyjar á Laugardalsvellinum í ágúst. 8 sigrar í 15 leikjum Fyrsti keppnisleikurinn vannst á móti Noregi á sama stað rúmum þremur vikum síðar og alls hefur íslenska liðið unnið 8 af 15 leikjum sínum í undankeppni undir stjórn Svíans. Þeim árangri hefur enginn annar þjálfari íslenska liðsins náð. Íslenska liðið hefur líka verið að spila við sterkar þjóðir í vin- áttulandsleikjum enda eru leikir við Rússa, Frakka og Svía meðal annars að baki auk leiksins við Belga á miðvikudagskvöldið en Belgar eru sem stendur í fjórða sæti á FIFA-listanum. Gengið í keppnisleikjunum hefur verið sögulegt. Liðið komst í umspil um sæti á HM í fyrsta sinn í undankeppni HM í Brasilíu og er nú á toppi síns riðils eftir þrjá leiki í undankeppni EM 2016. Eins og sjá má í grafinu hér á síðunni er gengið nánast eins og spegilmynd þegar alvöru leik- ir eru bornir saman við æfinga- leiki. Markatalan í keppnisleikj- um er átta mörk í plús en sjö mörk í mínus í vináttulandsleikj- unum. Sigrarnir í keppnisleikjum eru átta alveg eins og töpin í vin- áttuleikjunum. Helst hefðin í Plzen Nú er bara að vona að hefðin hald- ist í Plzen í Tékklandi á sunnu- dagskvöldið og að strákarnir okkar nái þar hagstæðum úrslit- um og stigi einu skrefi nær því að komast í úrslitakeppni stórmóts í fyrsta sinn. ooj@frettabladid.is visir.is Meira um leiki gærkvöldsins Miklu betri þegar það telur Íslenska knattspyrnulandsliðið hefur náð sínum besta árangri í keppnisleikjum frá upphafi eft ir að Lars Lagerbäck tók við en gengið í vináttulandsleikjunum er ekki nærri því eins gott. Nýta vináttuleikina vel. DOMINO’S KARLA KEFLAVÍK - ÍR 87-82 (33-29) Keflavík: William Thomas Graves VI 39/6 fráköst/6 stoðsendingar/3 varin skot, Damon Johnson 16/7 fráköst/3 varin skot, Þröstur Leó Jóhannsson 12/6 fráköst, Valur Orri Valsson 5, Davíð Páll Hermannsson 4/5 fráköst, Guð- mundur Jónsson 3, Andrés Kristleifsson 2, Reggie Dupree 2, Arnar Freyr Jónsson 2, Eysteinn Bjarni Ævarsson 2. ÍR: Matthías Orri Sigurðarson 20/4 fráköst/6 stoðsendingar, Sveinbjörn Claessen 16/6 fráköst, Kristján Pétur Andrésson 16/6 fráköst, Vilhjálmur Theodór Jónsson 15/9 fráköst, Trey Hampton 13/11 fráköst, Ragnar Örn Bragason 2. SKALLAGR. - STJARNAN 94-85 (55-48) Skallagrímur: Davíð Ásgeirsson 23/4 fráköst, Tracy Smith Jr. 22/13 fráköst/10 stoðsendingar/4 varin skot, Sigtryggur Arnar Björnsson 21/4 fráköst/5 stoðsendingar, Daði Berg Grétarsson 14/7 stoðsendingar, Davíð Guðmundsson 12, Kristófer Gíslason 2. Stjarnan: Justin Shouse 25/6 fráköst, Dagur Kár Jónsson 22, Jarrid Frye 19/8 fráköst/6 stoðsendingar, Marvin Valdimarsson 10/6 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 7/8 fráköst, Tómas Þórður Hilmarsson 2. GRINDAVÍK - NJARÐVÍK 74-85 (32-46) Grindavík: Ólafur Ólafsson 23/12 fráköst, Rodney Alexander 18/12 fráköst, Oddur Rúnar Kristjáns- son 18/4 fráköst, Þorsteinn Finnbogason 6, Hilmir Kristjánsson 4, Daníel Guðni Guðmundsson 3, Björn Steinar Brynjólfsson 2, Nökkvi Harðarson. Njarðvík: Dustin Salisbery 30/15 fráköst, Logi Gunnarsson 15/7 stoðsendingar, Snorri Hrafnkels- son 14/5 fráköst, Ragnar Helgi Friðriksson 10, Mirko Stefán Virijevic 6/10 fráköst, Ágúst Orrason 5, Hjörtur Hrafn Einarsson 3/6 fráköst, Ólafur Aron Ingvason 2. STAÐAN KR 10 stig, Haukar 8, Tindastóll 8, Keflavík 8, Stjarnan 6, Njarðvík 6, Snæfell 6, Grindavík 4, Þór 4, ÍR 2, Fjölnir 2, Skallagrímur 2. OLÍS-DEILD KARLA ÍBV - FH 21-26 (10-13) Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson 5/1, Grétar Þór Eyþórsson 3, Hákon Styrmisson 3, Einar Sverrisson 3, Svavar Grétarsson 2, Andri Heimir Friðriksson 2, Bergvin Haraldsson 1, Guðni Ingvarsson 1, Magnús Stefánsson 1, Brynjar Karl Óskarsson 1. Mörk FH: Magnús Óli Magnússon 8, Ásbjörn Frið- riksson 6/2, Ísak Rafnsson 3, Andri Hrafn Hallsson 3, Benedikt Kristinsson 3, Steingrímur Gústafsson 1, Theodór Pálmason 1, Ragnar Jóhannsson 1. AKUREYRI - HK 23-18 (13-5) Mörk ÍBV: Brynjar Grétarsson 5, Kristján Jóhannsson 5/3, Ingimundur Ingimundarson 4, Þrándur Gíslason 2, Sigþór Heimisson 2, Heiðar Aðalsteinsson 2, Halldór Logi Árnason 1, Bergvin Þór Gíslason 1, Daníel Örn Einarsson 1. Mörk FH: Þorgrímur Ólafsson 7, Garðar Svansson 4, Daði Gautason 3, Leó Snær Pétursson 2, Björn Þ. Björnsson 1, Tryggvi Þór Tryggvason 1. VALUR - ÍR 30-25 (14-12) Mörk ÍBV: Kári Kristján Kristjánsson 9/2, Guð- mundur Hólmar Helgason 5, Finnur Ingi Stefáns- son 5, Elvar Friðriksson 5, Vignir Stefánsson 3, Geir Guðmundsson 2, Kristján Ingi Kristjánsson 1. Mörk FH: Björgvin Hólmgeirsson 7/1, Jón Heiðar Gunnarsson 5, Arnar Birkir Hálfdánsson 4, Sturla Ásgeirsson 3/1, Brynjar Valgeir Steinarsson 2, Bjarni Fritzson 2, Sigurjón Friðbjörn Björnsson 1, Davíð Georgsson 1. STJARNAN - AFTURELD. 22-28 (11-16) Markahæstir hjá Stjörnunni: Ari Magnús Þor- geirsson 6, Víglundur Jarl Þórsson 4. Markahæstir hjá UMFA: Jóhann Gunnar Einars- son 6, Gestur Ingvarsson 5. HAUKAR - FRAM 22-28 (11-16) JAFNT TAP 8 8 3 1 4 +8 SIGUR JAFNT TAP SIGUR 4 -7 GENGI ÍSLENSKA LANDSLIÐSINS 2012-14 Í KEPPNISLEIKJUM OG VINÁTTULANDSLEIKJUM ➜ Hér fyrir ofan er gengi íslenska liðsins í leikjum í undankeppni HM og EM undir stjórn Lars Lagerbäck og Heimis frá 2012 til 2014. Hér til hægri er síðan gengi íslenska liðsins í vináttuleikjum á sama tímabili. ➜ Íslenska landsliðið hefur náð í 60 prósent stiga í boði í keppnisleikjum frá 2012 til 2014 en væri aðeins með 33 prósent stiga í húsi ef sami stigaút- reikningur væri notaður yfir æfinga- landsleikina á þessu sama tímabili. M A R K A TA LA M A R K A TA LA 25-17 15-22 LEIKIR ÍSLANDS Í UNDANKEPPNI HM OG EM VINÁTTULANDSLEIKIR ÍSLENSKA LIÐSINS FÓTBOLTI Rúnar Kristinsson, fyrr- verandi landsliðsmaður í fótbolta, var loks formlega kynntur til sög- unnar sem nýr þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Lilleström í gær, en Rúnar skrifaði undir þriggja ára samning. Rúnar þekk- ir hvern krók og kima hjá félaginu, en hann spilaði með því við góðan orðstír frá 1997-2000. Undanfarin fjögur ár hefur Rúnar stýrt KR með góðum árangri, en hann gerði liðið tvívegis að Íslandsmeistara og bikarmeistara í þrígang. „Allt svona þarf að fara sínar leiðir og því hefur þetta tekið sinn tíma. En auðvitað er maður ekki einn inni í myndinni. Það voru fleiri þjálfarar sem þeir skoðuðu, en ég er ánægður með að mér var boðið þetta starf og jafnframt ánægður með að vera kominn hingað,“ sagði Rúnar við íþrótta- deild 365 í gær. Nafn Rúnars hefur verið lengi í deiglunni, en hann var orðaður við starfið í fyrra og þá kom hann ein- mitt til greina. „Það var haft samband við mig fyrir ári. Þjálfarinn sem var að hætta núna ætlaði sér að hætta þá en gerði það ekki og hélt áfram. Þá var ég einn af þeim sem komu til greina hjá félaginu, en ekkert varð úr því.“ Þegar Rúnar ákvað að stíga út úr skrifstofunni sem yfirmaður knattspyrnumála hjá KR um mitt sumar 2010 og gerast þjálfari liðs- ins ætlaði hann sér alltaf að fara út í þjálfun af fullum hug og komast eins langt og hann mögulega gæti. „Ég segi ekki að mig hafi dreymt alla tíð um að koma til Lilleström aftur og gerast þjálf- ari. Markmið mitt engu að síður þegar ég tók við KR 2010 var að komast til útlanda á stærra svið og það hefur mér tekist. Fyrsta markmið mitt í þjálfun var að standa mig vel með KR sem ég kann bestu þakkir fyrir það tækifæri sem það gaf mér. Hitt mark- miðið, að komast í atvinnumennsku, er að ganga upp núna þannig nú þarf ég að setja mér ný markmið,“ sagði Rúnar. Fjárhagur félagsins hefur mikið verið í fréttum í Nor- egi, en þar á bæ ætla menn að setja upp launaþak og lækka laun lykilmanna liðsins vilji þeir halda áfram hjá félaginu. „Það er gífurlega erfitt ár framundan. Félagið er í örlitlum fjárhagsvand- ræðum en hér er fullt af góðu fólki og ég þekki innviði félagsins vel líkt og fólkið hérna þekkir mig. Saman getum við vonandi náð árangri og gert þetta að góðum tíma,“ sagði Rúnar og bætti við: „Staðan er þannig í Nor- egi og víðar að mörg lið hafa lítið á milli hand- anna. Það eru því ekkert marg- ir klúbbar sem geta boðið þess- um leikmönnum sem við erum kannski að missa betri samninga. Möguleikar okkar á að halda þeim eru því töluvert miklir.“ Það eru fleiri lið en Lille ström sem eiga í vandræðum segir hann. „Það eru mörg önnur félög í norsku deildinni sem eru að draga saman seglin, en nafn Lilleström er oftast dregið inn í umræðuna.“ Lilleström kom á óvart í sumar og hafnaði í fimmta sæti, en hvað vill Rúnar gera með liðið á næstu árum? „Mig langar að fara með þetta lið aðeins hærra en gert hefur verið undanfarin tíu til tólf ár.“ - tom Mig langar að fara með þetta lið aðeins hærra Rúnar Kristinsson var kynntur til sögunnar sem nýr þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Lilleström í gær þar sem hann spilaði áður. ATVINNUMENNSKA Rúnar stýrir nú atvinnumönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 33% VINÁTTU- LEIKIR 60% HM OG EM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.