Fréttablaðið - 26.11.2014, Side 2
26. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Þorgils, er sveitarstjórinn úti
að aka?
„Og ekki er hann bara staur/hann
fer oft fram og til baka/
og fær þess vegna aur.“
Minnihlutinn í hreppsnefnds Rangárþings
ytra vildi fella út 2,8 milljóna króna greiðslu
sem sveitarstjórinn fær árlega fyrir akstur
en meirihlutinn hafnaði því. Þorgils Torfi
Jónsson er oddviti.
ÍSRAEL, AP Benjamín Netanjahú,
forsætisráðherra Ísraels, segist
enn staðráðinn í að fá þingið til að
samþykkja hið umdeilda frumvarp
um að ísrael verði skilgreint ríki
gyðinga.
Tsipi Livni, dómsmálaráðherra,
segir að það gæti orðið stjórninni
að falli. Hún tók jafnframt fram,
að ætli Netanjahú sér að refsa
henni fyrir að vera andvíg frum-
varpinu, þá geti það einnig kostað
stjórnina þingmeirihluta.
Arabískir íbúar Ísraels hafa
andmælt þessum áformum harð-
lega, og margir ísraelskir gyðingar
sömuleiðis. - gb
Stjórnaslit yfirvofandi:
Netanjahú
hvikar hvergi
SPURNING DAGSINS
Komdu inn
úr kuldanum
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hluti af öruggri vetrarumferð
HEILBRIGÐISMÁL Kristján Þór Júlí-
usson heilbrigðisráðherra skipaði
í gær Birgi Jakobsson í embætti
landlæknis til fimm ára, frá ára-
mótum.
Birgir var sjö ár sjúkrahús-
stjóri á Karólínska sjúkrahús-
inu í Svíþjóð og var læknir þar í
tuttugu ár. Hann hefur búið í Sví-
þjóð í næstum fjóra áratugi og
er spenntur að koma heim. „Mér
finnst mjög spennandi að koma
eftir 36 ára veru erlendis. Ég hef
fylgst mjög vel með málum hér
heima og hef haldið kunnings-
skap við alla mína gömlu vini,“
segir Birgir. Það verði spennandi
að takast á við þau verkefni sem
liggja fyrir hér.
„Íslenskt heilbrigðiskerfi stend-
ur sig mjög vel. Það eru vafalaust
tímabundnir erfiðleikar núna. En
íslenskt heilbrigðiskerfi hefur
alltaf verið mjög gott miðað við
önnur heilbrigðiskerfi,“ segir
Birgir. Það standi sig jafnvel í
samanburði við það sænska. „Það
er ekki mjög ósvipað. Maður hugs-
ar svipað í þessum tveimur lönd-
um, merkilegt nokk. Það er gífur-
lega mikil kunnátta hér, fjölhæft
starfsfólk og Íslendingar hafa
notið góðs af því að geta sent
sitt fólk til annarra landa,“ segir
Birgir. Það séu gífurlegir mögu-
leikar á að hafa toppþjónustu hér.
Geir Gunnlaugsson hefur gegnt
embætti landlæknis í fimm ár
og sóttist eftir skipun í embætt-
ið að nýju. Nefnd sem mat hæfi
umsækjenda komst að þeirri nið-
urstöðu að af fimm umsækjend-
um væru Birgir og Geir hæf-
astir. Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra ákvað síðan
að skipa Birgi í embættið. „Þetta
var niðurstaða mín eftir viðtöl
við umsækjendur. Birgir er yfir-
burðamaður og hefur gríðarmikla
og farsæla stjórnunarreynslu í
heilbrigðiskerfinu,“ segir Krist-
ján.
Kristján segir að það muni
koma í ljós hvaða breytingar verði
á embættinu. „Við ætlum að hitt-
ast fljótlega og fara yfir áherslur
í starfinu. Það er bara óumflýjan-
legt að það fylgja breytingar nýju
fólki,“ segir Kristján.
Kristján segist meta öll verk
Geirs Gunnlaugssonar á þeim
umbrotatímum sem ríktu þegar
hann var landlæknir. Hann hafi
sinnt þessum verkefnum mjög vel.
„Það er ekkert einföld ákvörðun
að gera upp á milli tveggja ein-
staklinga sem eru metnir hæfir,“
segir hann.
Kristján segir að reynsla Birg-
is af stjórnun hafi vegið þungt.
„Ég gerði mjög stífar kröfur um
reynslu af stjórnun og það koma
alltaf upp þær aðstæður að það
kann að vera rétt að skipta um og
gefa færi á nýjum áherslum. Þann-
ig háttar til í þessu tilviki,“ segir
Kristján. jonhakon@frettabladid.is
Snýr heim til Íslands
eftir 36 ára fjarveru
Birgir Jakobsson, verðandi landlæknir, segir íslenska heilbrigðiskerfið standast
samanburð við það sænska. Hann hefur starfað á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokk-
hólmi í 20 ár. Birgir hlakkar mikið til að fást við verkefni landlæknis hér heima
NÆSTI LANDLÆKNIR Birgir Jakobsson hefur búið í Svíþjóð í 36 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það er
ekkert einföld
ákvörðun að
gera upp á
milli tveggja
einstaklinga
sem eru
metnir hæfir.
Kristján Þór Júlíusson,
heilbrigðisráðherra.
HONG KONG, AFP Lögreglan í Hong Kong þurfti að hafa sig alla við til
að halda mótmælendum í skefjum í gær í hverfinu Mongkok. Mót-
mælin hafa nú staðið í um það bil tvo mánuði, eða síðan í lok septem-
bermánaðar.
Mikill órói var í Hong Kong í gær og voru um áttatíu manns hand-
teknir. Lögreglan beitti meðal annars piparúða til þess að reyna að ná
tökum á þessum mikla óróa sem skapaðist.
Girðingar sem notaðar eru til þess að halda mótmælendum í skefj-
um tókust á loft og má segja að ástandið sé mjög slæmt. - glp
Mótmælin í Hong Kong hafa staðið í um tvo mánuði:
Piparúða beitt til að ná tökum
PIPARÚÐI NOTAÐUR Mótmælin í Hong Kong standa enn og þurfti lögreglan meðal
annars að nota piparúða til að hafa tök á aðstæðum. NORDICPHOTOS/AFP
EFNAHAGSMÁL Almenn útlán Íbúða-
lánasjóðs í október voru 273 millj-
ónir króna, en uppgreiðslur eldri
lána hins vegar 2,3 milljarðar
króna í sama mánuði. Í október í
fyrra námu ný útlán 900 milljón-
um króna.
Útlán Íbúðalánasjóðs hafa dreg-
ist saman um nokkurra mánaða
skeið. Sigurður Erlingsson, for-
stjóri sjóðsins, segir að samdrátt-
urinn í október sé hluti af því. En
fleira komi til. „Þessi umræða um
framtíðarskipan húsnæðismála
hefur klárlega áhrif. Menn hugsa
kannski með sér að ef það eigi að
fara að breyta íbúðalánum þá vita
þeir ekkert hvaða þjónustustig
verður í framtíðinni,“ segir Sig-
urður.
Fólk viti ekkert hvort lánið
þeirra verði selt og hvert það verði
þá selt. Þá vilji menn hugsanlega
fara þangað sem meiri vissa er
um framtíðina. „Varan er óbreytt,
vaxtakjörin hafa verið óbreytt í
nokkuð langan tíma. Vextir ann-
arra hafa verið að hækka á mark-
aðnum og færast nær okkar vöxt-
um þannig að í raun og veru getum
við sagt að við séum samkeppnis-
hæfari,“ segir Sigurður.
Skýringuna sé því líklegast að
finna í ytra umhverfi og óvissu
með sjóðinn. „Þetta getur verið ein
birtingarmynd þess,“ segir Sigurð-
ur. - jhh
Uppgreiðslur á lánum Íbúðalánasjóðs eru tífalt hærri en ný fasteignalán:
Óvissan eykur vanda sjóðsins
HÚSNÆÐI Þeim fækkar sem taka lán
hjá Íbúðalánasjóði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVEITARSTJÓRNIR „Það var gert
samkomulag um starfslok. Það er
trúnaðarbrestur og það er hægt
að miklu leyti að rekja til þessara
mála sem hafa verið í umræðu í
fjölmiðlum,“ segir Bryndís Har-
aldsdóttir, formaður stjórnar
Strætó bs., um starfslok Reyn-
is Jónssonar, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Samkomulag stjórnar við Reyni
felur í sér að hann fær níu mán-
aða uppsagnarfrest borgaðan
eða um tíu milljónir króna. Frá
þeirri upphæð dregst tjón upp
á um milljón sem Reynir olli á
bíl sem hann hafði til umráða en
var í eigu fyrirtækisins. Bryn-
dís segir trúnaðarbrest hafa
orðið milli framkvæmdastjóra
og stjórnar en lögfræðingar hafi
ráðlagt stjórninni að ljúka mál-
inu á þennan hátt þar sem ólík-
legt teljist að Reynir hafi sam-
kvæmt lögum gerst brotlegur í
starfi sínu. „Stjórnin er búin að
sitja yfir þessu og leita sér ráð-
gjafar hjá lögfræðingum og við
erum búin að fara yfir þetta mál.
Þetta eru þær ráðleggingar sem
við fáum og sú leið sem við telj-
um besta fyrir Strætó til fram-
tíðar,“ segir hún. „Það er uppi
mjög mikil lagaleg óvissa um
þessi atriði. Lagalega óvissan
er það mikil að þeir ráðleggja
okkur að ljúka þessu með þess-
um hætti,“ segir hún.
Bryndís telur stjórnina ekki
hafa brugðist. „Það er frekar að
við séum að taka á þeim málum
sem hafa komið upp. Þetta eru
mál sem gerðust á síðustu mán-
uðum og eru að komast upp
núna. Við teljum að með þess-
ari leið sem við erum að fara sé
hagsmunum Strætó best borg-
ið. Við erum fyrst og fremst
að hugsa um það að stjórnin sé
hafin yfir allan vafa.“ Nú verður
farið í rekstrarúttekt á starfsemi
Strætó. „Við erum að fara í það
að ráða inn innri endur skoðanda.
Erum að fara yfir starfsreglur,
siðareglur og sjá til þess að þess-
ir hlutir sem gerðust, gerist ekki
aftur.“
- vh
Segir lagalega óvissu um það hvort Reynir hafi gerst brotlegur í starfi:
Stjórnin hafi ekki brugðist
BRYNDÍS
HARALDSDÓTTIR
REYNIR
JÓNSSON
VIÐSKIPTI Hagnaður N1 á þriðja
ársfjórðungi jókst um 35% miðað
við sama tímabil í fyrra, fór úr
690 milljónum króna í 932 millj-
ónir.
Í uppgjöri sem félagið birti í
gær kemur jafnframt fram að
hagnaður fyrstu níu mánuði árs-
ins hafi aukist á milli ára, var 794
milljónir króna í fyrra en er 1.329
milljónir á þessu ári. Aukning-
in nemur 67,4%. Rekstrarhagn-
aður fyrir afskriftir (EBITDA)
var 1.252 milljónir króna á þriðja
fjórðungi í ár. Var 1.161 milljón í
fyrra.
- óká
67,4% sveifla frá 2013:
Hagnaður N1
eykst milli ára
➜ Umræða um framtíðar-
skipan húsnæðismála fækkar
útlánum Íbúðalánasjóðs