Fréttablaðið - 26.11.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 26.11.2014, Blaðsíða 38
USD 124,07 GBP 194,55 DKK 20,74 EUR 154,32 NOK 18,23 SEK 16,66 CHF 128,37 JPY 1,05 Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Gengi gjaldmiðla FTSE 100 6.731,14 +1,35 (0,02%) Viðskiptavefur Vísis @VisirVidskipti STJÓRNAR - MAÐURINN @stjornarmadur Stjórnarmaðurinn hefur fylgst með hræringum kringum útgáfufélag DV, sem lauk nú í síðustu viku með kaupum Vef- pressu Björns Inga Hrafnssonar í félaginu. ÓHÆTT er að segja að gustað hafi um DV en að vatnaskil hafi orðið við brotthvarf Reynis Traustason- ar. Engu er líkara en við það hafi skapast vinnufriður til þess að taka nauðsynlegar ákvarðanir um framtíð félagsins. STJÓRNARMANNINUM þykir merkilegt hvað fjölmiðlamenn á Íslandi eyða mörgum dálksentí- metrum í að fjalla um kollega sína. Þannig voru fjölmiðlar, og kannski einkum blaðamenn DV, duglegir að fjalla um málið og mátti sjá rök á þá leið að hluthafar DV hefðu með athöfnum sínum ráðist gegn frjálsri fjölmiðlun í landinu. ÞETTA er gamalgróin saga sem iðulega heyrist þegar hagræða á eða skipta um fólk á fjölmiðlum. Engum dettur hins vegar í hug að skrifa frétt um að annarlegar ástæður ráði, þegar t.d er skipt um kerstjóra í Álverinu í Straumsvík. BLAÐAMENN eru einnig gjarnir á að stilla sér í sveit gegn eigendum fjölmiðla. Bollaleggingar um mis- notkun eigendavalds voru hins vegar óþarfar á DV, enda eigend- urnir sjálfir sem skrifuðu leiðar- ana! Í þessu felst kannski einnig sú hugmynd að fjölmiðlar eigi að vera í hugsjónastarfsemi en ekki hefðbundin félög, rekin hluthöfum sínum til fjárhagslegs ávinnings. Hætt er þó við að slíkar hug- sjónir séu frekar í orði en á borði, a.m.k. í tilfelli DV. Félagið gefur út áskriftarblað, og rekur vefsíðu sem notast við gjaldvegg. Á báða miðla eru seldar auglýsingar. Þrátt fyrir þetta var tap af rekstri félagsins rúmar 83 milljónir árið 2011, 65 milljónir 2012 og 37 millj- ónir árið 2013 – linnulaus tap- rekstur. FÓLKI er vitaskuld frjálst að hafa skoðanir á persónum og leikend- um. Hins vegar er ljóst að sam- kvæmt öllum rekstrarlegum mæli- kvörðum blikkaði rauða ljósið. Því er auðvelt að færa rök fyrir því að með því að skipta út skip- stjóranum sem ekki fiskaði hafi hluthafar DV staðið vörð um hags- muni félagsins. DV Reynis Traustasonar gat held- ur ekki skýlt sér á bak við það að ekki sé hægt að reka fjölmiðil með ávinningi á Íslandi, enda dæmi í fortíð og nútíð um ágætlega ábata- saman rekstur í þeim geira. Við það bætist að á DV er ástunduð svokölluð „tabloid“-blaðamennska, en það er líklega sú tegund sem best fiskar í fjárhagslegu tilliti, sbr. t.d. Daily Mail og The Sun í Bretlandi. BJÖRNS INGA bíður því erfitt verk- efni, en ekki ómögulegt. DV skútan strandaði Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00 F A S TU S _E _5 0. 11 .1 4 Veit á vandaða lausn Hörðu pakkarnir • frá Dualit • Við undirbúning í eldhúsi og við matreiðslu er fátt betra en að vinna með vönduð og góð tæki. Dualit tækin eru ekki einungis vönduð og traust heldur eru þau líka fallega hönnuð sem eykur enn á ánægjuna við að vinna með þau. Kynntu þér breiða vörulínu Dualit í verslun Fastus í Síðumúla 16. Dualit vörurnar eru margverðlaunaðar og hafa fengið m.a. stimpilinn frá Good Housekeeping Institute. Handþeytari • kraftmikill 400W • margir aukahlutir • auðvelt að þrífa Kr. 16.900,- Brauðrist • 2 brauðsneiðar • auðvelt að þrífa • tímastillir Kr. 32.944,- Töfrasproti • kraftmikill 700W • 6-blaða hnífur • margir aukahlutir Kr. 19.453,- Hraðsuðuketill • 1,7l • snúrulaus ketill • ryðfrítt stál Kr. 20.331,- Mjólkurfreyðir • köld og heit froða • ryðfrítt stál • auðvelt að þrífa Kr. 18.198,- 25.11.2014 Það þýðir ekkert að tala um þessi efnahagslegu áhrif. Þau gætu verið mjög lítil en þau gætu orðið eitthvað meiri. Það er ekki fyrr en þetta skýrist meira hjá íslenskum dómstólum og í túlkunum og umræðum milli lögfræðinga að það er meira hægt að sjá fram á það. [...] Sá sem er búinn að vera með verðtryggð lán í mörg ár, hann hlaut að vita hvernig þau virkuðu. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri. Tölur um atvinnuhúsnæði Í október síðastliðnum var þinglýst 117 skjölum (kaupsamningum og afsölum) vegna atvinnuhúsnæðis á landinu öllu, 70 á höfuðborgar- svæðinu og 47 utan þess. Fram kemur í nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands að heildar- fasteignamat seldra eigna á landinu hafi verið 3.806 milljónir króna. 3,8 MILLJARÐAR Hagnaður af rekstri fasteignafélagsins Regins fyrstu níu mánuði ársins nam 1.182 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi. Fram kemur í árshlutauppgjöri sem félagið skilaði í gær að heildareignir samstæð- unnar hafi í lok tímabilsins numið 52,9 milljörðum króna. Eigið fé félagsins var 16,8 milljarðar króna að meðtöldu hlutafé upp á 1,4 milljarða. Í lok september var eiginfjárhlutfall félagsins 32 prósent. Hagnaður félagsins fyrstu níu mánuði ársins jókst samkvæmt upp- gjörinu um 8,3 prósent. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi dregst hins vegar saman um rúman fimmtung á milli ára, eða um 22,5 prósent. Hagnaður á fjórðungnum fór úr 557 í 432 milljónir króna. 1.182 MILLJÓNA GRÓÐI Samdráttur hjá Regin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.