Fréttablaðið - 26.11.2014, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 26.11.2014, Blaðsíða 54
26. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 34 The Holy Mountain. Hún er mjög sjónrænt örvandi og veitir mér inn- blástur. Tanya Pollock tónlistarkona MIÐVIKUDAGSMYNDIN Halla Birgisdóttir listakona gerir jóladagatal Norræna hússins í ár, en 23 aðrir listamenn taka þátt í dagatalinu. Hún verður einnig með sýningu í anddyri Norræna hússins í tengslum við jóladagtalið. „Ég vinn mikið með samspil texta og mynda. Þannig að með því að teikna myndir og gera smá texta verða til litlar frásagnir,“ en umfjöllunarefni Höllu er mannfólk- ið á jólunum. „Mig langaði ekki að hafa þetta rosalega jólalegt, en þetta gerist um jólin. Þetta snýst um fólk en það er einhver alvarlegur undirtónn,“ útskýrir hún en persónurnar eru skáldaðar en eiga mögulega leynd- ar fyrirmyndir. „Það er til dæmis ein sem vill ekki fara of snemma í jólaskap. Með því að skoða þetta út frá mínu sjónarhorni langar mig líka til þess að hjálpa fólki að finna með sjálfu sér hvað því finnst jólin snúast um.“ Myndirnar teiknar Halla beint á veggina. „Mamma og pabbi voru að grínast með það að þegar ég var lítil teiknaði ég stórt krot á vegg- inn heima og fékk skammir fyrir. Ég fæ auðvitað ekki skammir núna, þannig að ég er svona að vinna rökræðurnar um hvort það megi teikna á veggi tuttugu árum síðar.“ Áratugagamlar rökræður eru þó ekki eina ástæða þess að Halla kýs að teikna á veggi. „Líka kannski að mér finnst þetta verða svolítið beinna. Kannski vekur þetta líka einhverjar spurningar hjá fólki.“ - gló Vinnur rökræðu um krot á veggi Halla Birgisdóttir listakona gerir jóladagatal Norræna hússins og teiknar á veggi. LISTAKONA Halla vinnur mikið með samspil texta og mynda. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Árlegur jólabasar Kattholts verður haldinn laugardaginn 29. nóvember. Halldóra B. Ragnars- dóttir, formaður Kattavinafélags Íslands, segir að að venju verði margs konar vörur í boði. „Það verða ýmsir fallegir munir, jóla- kort, kerti, sk raut og svo auðvitað dagatalið okkar. Einn starfs- maður hjá okkur, hún Helga Guðmundsdóttir, er búin að vera einstaklega sniðug í ár og gera kerti með kisumyndum og hanna myndir sem hún lét prenta á boli,“ segir Halldóra, en til eru þrjár útgáfur af bolum. „Á einum þeirra stendur heimili án kattar er bara hús, ég styð Katt- holt og svo er þriðji svartur með áletruninni The Catfather, sem er tilvísun í myndirnar um Godfather,“ segir Halldóra. Hún segir jóla- basarinn vera með stærri söfn- unum ársins og skipta miklu fyrir Kattholt og starf- semi þess. „Hjá okkur eru í kring- um 40-50 kisur í einu sem þarf að hugsa um og gefa að borða,“ segir Halldóra og minnir á hversu mikilvægt það sé að láta merkja kisurnar sínar. Jólabasarinn verður á laugardag- inn frá kl. 11-16 og eru allir vel- komnir. - asi Hannar Catfather boli fyrir Kattholt Jólabasar Kattholts verður haldinn á laugardaginn. VONAST TIL AÐ SJÁ SEM FLESTA Halldóra vonast til að sjá sem flesta á basarnum á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR „Þetta var flugslys sem varð í nóvember 1941 í Kol- grafafirði á Snæfells- nesi. Flugmenn sem eru að koma úr eft- irlitsflugi með kaf- bátum og herskipum Þjóðverja milli Græn- lands og Íslands taka feil á Faxaflóanum og fljúga inn Breiða- fjörðinn, síðan fljúga þeir áfram suður og rekast á þennan tind, Svartahnjúk,“ segir Hjálmtýr Heiðdal, leikstjóri heimildarmyndarinnar Svarta- hnjúks, sem fjallar um þennan myrka atburð í sögu Íslands. „Þeir farast allir, sex manns. Leitarflokkar eru sendir á vett- vang með íslenskum bændum sem finna aðeins fjögur lík. Þá komu upp ýmsar draugasögur en það voru iðu- lega tveir menn á gangi sem sáust þarna innst í Kolgrafa- firði. Íslensk þjóðtrú bætir upp söguna.“ Hjálmtýr hefur unnið að myndinni seinustu fjögur árin ásamt hand- ritshöfundinum Karli Smára Hreinssyni. Í myndinni eru tekin við- töl við eldra fólk á Snæ- fellsnesi sem lifði þessa atburði ásamt fólki sem ólst upp með leitarmönn- unum. „Síðan fórum við til Englands til að hitta breska flugmenn sem voru hér í stríðinu. Þá fundum við ættingja mannanna sem fórust. Við erum dálítið búin að grafast fyrir um þennan atburð frá öllum hliðum má segja. Við fórum upp á fjallið á Snæ- fellsnesi til að skoða flakið og meira að segja draugarnir sjálfir koma fyrir í einni senunni. Við vorum að fjalla um draugana í viðtali á staðn- um þar sem líkin voru borin niður af fjallinu, þá kom svakalegur vind- ur sem feykti öllu um koll,“ segir Hjálmtýr og hlær. Aðstandendur myndarinnar halda nú úti söfnun á Karolina Fund af því að notað var meira af gömlum kvikmyndum úr stríðinu en var upprunalega áætlað. „Þess vegna reyndist það dýrara og því settum við af stað þessa söfnun, sem er komin vel á veg.“ thorduringi@frettabladid.is Íslensk draugatrú bætti upp söguna Heimildarmyndin Svartihnjúkur fj allar um myrkan atburð í sögu landsins. Við fórum upp á fjallið á Snæfellsnesi til að skoða flakið og meira að segja draugarnir sjálfir koma fyrir í einni senunni. GRÓFUST FYRIR UM ATBURÐINN FRÁ ÖLLUM HLIÐUM Hjálmtýr og félagar leituðu uppi ættingja þeirra sem fórust. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA JOHN EWART SPEAK flugstjóri vélarinnar sem fórst við Svartahjnúk. hjá okkur eru í kringum 40-50 kisur í einu sem þarf að hugsa um og gefa að borða. Halldóra B. Ragnarsdóttir. FLOTTIR BOLIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.