Fréttablaðið - 26.11.2014, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 26.11.2014, Blaðsíða 12
26. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 12 Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 15:00 daginn áður Nú bjóðum við okkar frábæru pítur sem jólarétti fyrir öll stór og smá tilefni. Mini píturnar eru afgreiddar á mjög hentugum bökkum sem innihalda pítur með hamborgarahrygg, kalkúni/beikoni, reyktum laxi og villipate. Skipholti 50 C Pöntunarsími: 562 9090 Ny r og s kemm tilegu r jólak ostur www.pitan.is 12 mini pítur i i ít r 3.995.- áfanga- staðir 10 Alicante Frá kr. 14.990 Barcelona Frá kr. 14.900 Bodrum Frá kr. 29.990 Bologna Frá kr. 19.990 Krít Frá kr. 29.990 Las Palmas Frá kr. 24.900 Malaga Frá kr. 19.900 Mallorca Frá kr. 24.990 Salzburg Frá kr. 14.990 Tenerife Frá kr. 19.990 Flugsæti Aðra leið m/sköttum á primeraair.com BANDARÍKIN Þúsundir manna streymdu út á götur í mörgum helstu borgum Bandaríkjanna í fyrrinótt til að mótmæla því að lögreglumaðurinn Darren Wil- son sleppi við ákæru. Wilson varð Michael Brown, átján ára pilti, að bana 9. ágúst í sumar í bænum Ferguson. Sums staðar brutust út óeirð- ir, þótt víðast hvar hafi mótmælin farið friðsamlega fram. Í Ferguson, sem er eitt úthverfa borgarinnar St. Louis í Missouri, var kveikt í húsum og bifreiðum, rúður brotnar og fleiri spellvirki framin. Fyrstu dagana og vikurnar eftir að Wilson skaut Brown var efnt til fjöldamótmæla nánast daglega í Ferguson og víðar í Bandaríkjun- um, enda lögreglumaðurinn hvítur en pilturinn svartur á hörund. Mikil reiði braust út og nú síðustu dagana hefur mikil spenna verið að hlaðast upp meðan beðið var eftir niðurstöðu ákærukviðdóms- ins. Þegar niðurstaðan lá svo fyrir í gær brutust út óeirðir, sem urðu mun öflugri og harkalegri en fyrri mótmæli. Í yfirheyrslum sagðist Wilson hafa talið sig vera í lífshættu, þegar hann lenti í átökum við hinn vopn- lausa pilt. Wilson var með kylfu og piparúða á sér, en greip til byssunn- ar eftir að Brown hafði kýlt hann tvisvar í andlitið: „Hann var greini- lega stærri en ég og sterkari,“ sagði Wilson. „Þriðja höggið hefði getað riðið mér að fullu hefði hann sleg- ið rétt.“ Ákærukviðdómurinn taldi ekki nægar líkur á því að dómsmál myndi leiða til sakfellingar og ákvað því að ákæra yrði ekki lögð fram. Í Bandaríkjunum lýkur rannsókn- um á lögreglumönnum, sem skotið hafa fólk til bana, sjaldnast á sak- fellingu. „Lögreglumaður er ekki eins og almennur borgari sem hleypir af byssu sinni,“ hefur AP-fréttastof- an eftir Lori Lightfoot, lögmanni í Chicago, en hann starfaði um hríð við að rannsaka lögregluofbeldi þar í borg. „Það er fyrirfram gert ráð fyrir því að löggæslumaður, sem þar með hefur heimild til þess að beita banvænu valdi, hafi beitt því réttilega.“ gudsteinn@frettabladid.is Óeirðir í kjölfar sýknunar Allt logaði í mótmælum víða í Bandaríkjunum í gær eftir að niðurstaða kviðdóms var kynnt í máli lögreglu- manns sem varð Michael Brown að bana. Þúsundir streymdu út á götur en víðast var mótmælt friðsamlega. MÓTMÆLI Í LOS ANGELES Fólkið leggst í götuna til að minna á dauðsföll, sem lög- reglan hefur valdið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SKIPULAGSMÁL „Bæði húsin eru óaðskiljanlegur hluti elstu byggðar timburhúsa í hverfinu og því mik- ilvægt að þeim verði fundinn við- eigandi staður innan þess,“ segir Minjastofnun um áætlaðan flutning tveggja friðaðra húsa af Laugavegi og Grettisgötu. Flytja á húsin svo hægt verði að hlífa eitt hundrað ára silfurreyni, Grettisgötumegin á reitnum þar sem húsin standa, við að vera felld- ur til að rýma fyrir hóteli. Mikil andstaða var meðal íbúa í hverfinu við því að silfurreynirinn yrði látinn víkja. Friðuðu húsin sem flytja á eru bæði úr timbri. Bakhúsið Laugaveg- ur 36b er byggt 1896 og er því 118 ára gamalt. Grettisgata 17 er byggð 1902 og er þannig 112 ára. Minja- stofnun segist ekki leggjast gegn flutningi húsanna að því gefnu að þeim verði fundinn framtíðarstaður í nágrenninu. Margar athugasemd- ir bárust vegna breyttra áforma og verður málið tekið fyrir í skipulags- ráði í dag. - gar Friðuð hús víkja til að hlífa tré sem átti að fella: FÆR AÐ STANDA Skjaldborg hverfisbúa um silfurreyni á Grettisgötu 17 verður trénu til lífs. Silfureynir getur orðið tvö hundruð ára. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM UMFERÐARMÁL Þrettán vegfarend- ur slösuðust í sex umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Meðal slysa var hjólreiðaslys á Hverfisgötu þar sem hjólreiða- maður lenti á bifreið. Þá varð 12 ára drengur á hjóli fyrir bifreið á Breiðholtsbraut. Kona slasað- ist á bílastæði við Húsgagnahöll- ina á Bíldshöfða þegar bíll ók á hana. Á föstudag var strætisvagni ekið í gegnum grindverk. Sjö voru í vagninum og kvörtuðu undan minniháttar meiðslum. Sama dag hjólaði maður á steintyppi á Lækjar torgi. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild. Stuttu seinna varð kona svo fyrir bifreið sem bakkað var úr stæði við Krónuna í Vallakór og var flutt á slysadeild. - vh Fjölmörg umferðaróhöpp: Þrettán slasaðir í sex slysum Mega flytja hús á framtíðarstað þeirra LÖGREGLUMÁL Pólskur ríkis- borgari sætir nú gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla 24 pakkningum af kókaíni innvortis til landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Maðurinn var að koma frá Lundúnum þegar tollverðir stöðv- uðu hann í Leifsstöð vegna gruns um að hann væri með fíkniefni innvortis. Lögreglan á Suðurnesjum færði hann á lögreglustöð þar sem hann skilaði af sér pakkn- ingunum 24, sem innihéldu 120 grömm af kókaíni. Maðurinn sætir gæsluvarðhaldi til næst- komandi föstudags. Í tilkynningu frá lögreglu vegna málsins segir að rannsókn málsins sé á lokastigi. - sáp Situr í gæsluvarðhaldi: Reyndi að smygla kókaíni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.