Fréttablaðið - 26.11.2014, Side 4
26. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Winston Royale úr
21.990.-
KJARAMÁL Kennsla í tónlistarskólum hófst
að nýju í gær eftir um fimm vikna verk-
fall tónlistarskólakennara. Samningarnir,
sem undirritaðir voru klukkan hálfsex í
gærmorgun eftir um 16 klukkustunda lang-
an samningafund hjá Ríkissáttasemjara,
eru sambærilegir við aðra samninga sem
gerðir hafa verið við kennara, að því er
Inga Rún Ólafsdóttir, formaður samninga-
nefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga,
greinir frá.
Á heimasíðu Sambands íslenskra sveitar-
félaga var greint frá því fyrir helgi að tón-
listarskólakennarar hefðu krafist hærri
launa en leik- og grunn-
skólakennarar eða launa-
hækkana sem næmu um 21
prósenti.
Slíkt væri óásættan-
legt. Tónlistarskólakenn-
arar lögðu til nýja nálgun
í fyrradag, að því er segir
á heimasíðu Kennarasam-
bands Íslands.
Inga Rún vill ekki greina
frá efnisatriðum nýja samningsins þar sem
hann hafi ekki verið kynntur tónlistar-
skólakennurum.
Nýi kjarasamningurinn gildir frá 1.
nóvember til loka október á næsta ári.
Þar sem atkvæðagreiðsla um leiðarvísi
um vinnumat og breytingar á kjarasamn-
ingi grunnskólakennara verður í febrúar á
næsta ári var ákveðið að gera kjarasamn-
ing við tónlistarskólakennara til skamms
tíma.
„Við erum ekki að fara með aðra kenn-
arasamninga lengra fyrr en það kemur í
ljós hvort framhald verður á samningum
við grunnskólakennara. Þetta hangir allt
saman,“ segir Inga Rún.
- ibs
Verkfalli tónlistarskólakennara aflýst eftir undirritun kjarasamninga að loknum maraþonfundi:
Svipaður samningi grunnskólakennara
INGA RÚN
ÓLAFSDÓTTIR
LEIÐRÉTT
Röng frétt
Lesendur Fréttablaðsins eru beðnir vel-
virðingar á að í gær var birt frétt, með
fyrirsögninni: „Pabbinn samdi Rocky
Horror“. Fréttin var röng. - ritstj.
493,8 stig mældist launavísitalan
hér á landi í síðasta mánuði.
Hún mældist 463,1 stig á sama tíma
á síðasta ári.
STJÓRNSÝSLA Gísli Freyr Valdórs-
son, fyrrverandi aðstoðarmaður
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur inn-
anríkisráðherra,
þarf ekki að
greiða ríkinu til
baka laun sem
hann fékk eftir
að hann var
ákærður fyrir
að leka trúnað-
argögnum úr
ráðuneytinu. Þetta kom fram hjá
RÚV. Gísli var ákærður 15. ágúst
síðastliðinn en játaði ekki fyrr en
11. nóvember. Þá var hann sendur
í tímabundið leyfi en hélt launum
allan þann tíma. Í svari við fyrir-
spurn fréttastofu RÚV til innan-
ríkisráðuneytisins segir að opin-
berir starfsmenn séu ekki krafðir
um endurgreiðslu launa nema í
þeim tilvikum þar sem laun hafa
verið ofgreidd vegna mistaka,
þeir hafi svikið út laun eða dregið
sér fé. - ak
Gísli Freyr heldur laununum:
Þarf ekki að
greiða til baka
VELFERÐARMÁL Hlutfall feðra sem
taka fæðingarorlof hefur farið
minnkandi frá hruni og stefnir í
að hlutfall feðra sem tók fæðing-
arorlof 2013 verði með því lægsta
í yfir áratug.
Árið 2009 tóku
níu af hverjum
tíu feðrum fæð-
ingarorlof en
það stefnir nú
í að lækka um
13 prósentustig,
niður í 77 pró-
sent. Kristín
Ástgeirsdóttir
jafnréttisstýra telur eðlilegt að
staldra við og íhuga hvað hægt sé
að gera til að hækka hlutfall karla
sem taka fæðingarorlof.
„Við höfum verið að sjá breyt-
ingar á fæðingarorlofinu á síðustu
árum. Sú þróun sem er að eiga sér
stað er afleiðing þess efnahags-
hruns sem Ísland gekk í gegnum,“
segir Kristín. Hún vill sjá grein-
ingu á því hvers konar feður taka
ekki fæðingarorlof. „Sá ávinning-
ur sem náðist með fæðingarorlof-
inu er að einhverju leyti að ganga
til baka. Það væri fróðlegt að sjá
og skoða hvaða feður þetta eru
sem skila sér ekki í fæðingarorlof.
Er þetta almennt yfir línuna, eða
feður af höfuðborgarsvæðinu eða
tekjuháir einstaklingar sem veigra
sér við að taka fæðingarorlof? Það
eru spurningar sem þarf að svara
í þessum efnum sem geta skýrt
fyrir okkur myndina og til hvaða
ráðstafana hægt sé að taka til að
auka hlutdeild feðra á nýjan leik.”
Eygló Harðardóttir félagsmála-
ráðherra telur málið alvarlegt og
vill fá breiða sátt um að bæta úr
stöðunni. „Fæðingum hefur fækk-
að og lægra hlutfall feðra tekur
fæðingarorlof. Ég hef sett á fót
starfshóp um framtíðarskipan
fæðingarorlofs. Ég tel mikilvægt
að bæta stöðuna. Fæðingarorlof
á Íslandi er styttra en á hinum
Norðurlöndunum. Það sem skiptir
máli er að aðilar vinnumarkaðar-
ins komi að borðinu og þetta verði
hluti af samningaviðræðum um
nýja kjarasamninga eftir áramót.“
Eygló segir einnig tekjuhærri
feður líklegri til að taka orlof en
tekjulægri. „Það sem gæti skýrt
þetta að einhverju leyti er ástand
á vinnumarkaði. Tekjulágir feður
eru hræddari um störfin sín. Því
er mikilvægt að aðilar vinnumark-
aðarins séu með í ráðum hvað
þetta varðar.“
Leó Þorleifsson, forstöðumað-
ur fæðingarorlofssjóðs, segir þær
lagabreytingar sem farið var í
á síðasta kjörtímabili á fæðing-
arorlofssjóðslögunum vera meg-
inskýringu þess að feður taki
sér síður fæðingarorlof en áður.
„Íslenska fæðingarorlofskerfið
þótti lengstum vera fyrirmynd.
Hafði fæðingarorlofstaka feðra til
að mynda aukist jafnt og þétt fram
að efnahagshruninu haustið 2008
þegar um 90 prósent feðra nýttu
einhvern hluta réttar síns. Eftir
efnahagshrunið 2008 hefur komið
töluvert bakslag í nýtinguna sem
að öllum líkindum verður rakið
til þeirra lagabreytinga sem þá
var ráðist í og þá fyrst og fremst
lækkunar á hámarksgreiðslum úr
sjóðnum ásamt breytingum sem
urðu á íslensku samfélagi.“
Kristín telur einmitt lækkun
hámarksgreiðslna hamla feðrum
frekar en áður að taka fæðingaror-
lof. „Þakið er allt of lágt og mikil
kjaraskerðing sem bæði konur og
karlar verða fyrir á þessu tímabili.
Ástandið á vinnumarkaði hefur
einnig gert það að verkum að fólk
hefur verið hrætt um starfið sitt.
Það á kannski sérstaklega við um
karla. Að mínu mati þarf að slá í
klárinn, fyrst og fremst hækka
hámarksgreiðslur að nýju.“
sveinn@frettabladid.is
Færri feður í fæðingarorlof
Hlutfall feðra sem fara í fæðingarorlof hefur minnkað eftir hrun. Tekjulágir feður eru líklegri en feður með
háar tekjur til að sleppa fæðingarorlofi. Félagsmálaráðherra vill fæðingarorlof inn í kjaraviðræður launþega.
KJARAMÁL Boðuðu verkfalli
Félags prófessora við ríkishá-
skóla, sem standa átti dagana
1.-15. desember, hefur verið frest-
að. Gengið var frá kjarasamn-
ingi við samninganefnd ríkisins í
gærkvöldi. Samningurinn verður
kynntur félagsmönnum á næstu
dögum og síðan haldin atkvæða-
greiðsla í framhaldinu. Þetta
þýðir að jólaprófin við Háskóla
Íslands, sem hefjast í næstu viku,
fara fram með eðlilegum hætti.
- bá
Jólapróf með óbreyttu sniði:
Verkfalli frestað FEÐUR FARA SÍÐUR Í ORLOF Félagsmálaráðherra vill fæðingarorlof inn í kjaravið-ræður launþega. NORDICPHOTOS/GETTY
KRISTÍN
ÁSTGEIRSDÓTTIR
Það sem gæti skýrt þetta að einhverju
leyti er ástand á vinnumarkaði. Tekjulágir
feður eru hræddari um störfin sín. Því er
mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins séu
með í ráðum hvað þetta varðar.
Eygló Harðardóttir,
félagsmálaráðherra.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
HÁLKA gæti orðið á landinu í dag og á morgun þar sem hitastigið er heldur að falla
og verður nálægt frostmarki víða um land. Nokkur úrkoma er í kortunum fyrir helgina
og má þá búast við rigningu eða slyddu.
1°
5
m/s
3°
7
m/s
3°
4
m/s
5°
8
m/s
Strekkingur
með SA- og
S-strönd
annars
hægari
vindur.
Vaxandi
vindur,
strekkingur
eða
hvassviðri.
Gildistími korta er um hádegi
9°
22°
2°
14°
17°
3°
12°
7°
7°
23°
10°
19°
21°
12°
11°
5°
7°
5°
1°
3
m/s
4°
5
m/s
1°
4
m/s
1°
6
m/s
1°
6
m/s
2°
8
m/s
-3°
9
m/s
3°
6°
2°
4°
4°
7°
1°
4°
-1°
3°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FÖSTUDAGUR
Á MORGUN
100%
80%
60%
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013
87,65%
87,17%
87,68%
88,52%
90,97%
85,83%
83,63%
80,67%
80,39%
77,77%
➜ Hlutfall feðra sem taka fæðingarorlof