Fréttablaðið - 26.11.2014, Page 10
26. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
SJÁVARÚTVEGUR Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar, furðar sig á
því að forystumenn Sjómanna-
sambands Íslands ákváðu að taka
ekki þátt í að reikna hlut sjó-
manna sem hlutfall af söluverði
afurðar. Reynt var að byggja á
samvinnu við Sjómannasamband-
ið án árangurs.
„Við höfðum verið í allmörg ár
með fyrirkomulag þar sem fisk-
verð til uppsjávarskipa var hlut-
fall af söluverði afurðar. Þar
var allt uppi á borðum og full-
trúar sjómanna og forsvarsmenn
þeirra gátu komið hvenær sem
var og skoðað sölur og sannreynt
útreikninga okkar. Forystumönn-
um sjómanna var boðið að koma,
en þeir mættu aldrei. Í tvígang
skoðaði Verðlagsstofa skipta-
verðs útreikninga okkar og fann
að allt var gert rétt,” segir Sigur-
geir Brynjar.
Hólmgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannasam-
bands Íslands, segir rétt að þeim
hafi boðist að koma og skoða
gögn. „Við fórum ekki til Vest-
mannaeyja, það er alveg rétt. Við
áttum með þeim fund hins vegar á
skrifstofum LÍÚ einu sinni. Hins
vegar var aldrei á hreinu hversu
djúpt við mættum kafa í bókhald-
ið og því ákváðum við að taka ekki
þessu tilboði þeirra.“
Fréttablaðið sagði frá því í gær
að úrskurðarnefnd sjómanna og
útvegsmanna hafi úrskurðað að
verð sem Vinnslustöðin greiddi
fyrir síld til tveggja skipa sinna
hafi verið of lágt. Skipin sem um
ræðir er Kap VE 5 og Sighvatur
Bjarnason VE 81. Telur Sigur-
geir Brynjar úrskurðinn illa rök-
studdan og vill fá ítarlegri svör
frá úrskurðarnefndinni. Einn-
ig bendir hann á að í haust hafi
Vinnslustöðinni verið vísað til
úrskurðarnefndar af hálfu sjó-
mannaforystunnar en var vísað
frá dómi. Hann telur Verðlags-
stofu skiptaverðs ekki sjá málin
í réttu samhengi. „Þegar kaup-
endur kaupa bestu síldina, sem
er norsk-íslensk síld, kaupa þeir
hana á hæsta verðinu. Íslensk síld
er ekki eins góð, hún hefur ekki
sama fituinnihald, ekki sama þétt-
leika holds og nýtist ekki með
sama hætti. Nefndin er eina stofn-
unin í heiminum sem er þeirrar
skoðunar að íslensk síld sé verð-
mætari en norsk-íslensk síld, án
rökstuðnings,” segir Sigurgeir
Brynjar.
sveinn@frettabladid.is
Vinnslustöðin bauð
sjómönnum samráð
Framkvæmdastjóri VSV gagnrýnir Sjómannasambandið fyrir að hafa ekki viljað
samvinnu. Bauð forystu sambandsins að skoða bækur fyrirtækisins. Því tilboði var
ekki tekið. „Rétt að við mættum ekki til Eyja,“ segir Sjómannasamband Íslands.
VINNSLUSTÖÐIN Bauð Sjómannasambandinu að skoða öll sín gögn. Sjómannasambandið mætti ekki til Eyja. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Eina
stofnunin í
heiminum
sem er þeirrar
skoðunar að
íslensk síld sé
verðmætari
en norsk-íslensk síld.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri SVS.
VIÐSKIPTI Engar eignir fundust upp í
rúmlega 188,3 milljóna króna kröf-
ur í þrotabú hönnunarfyrirtækisins
ELM ehf.
Fyrirtækið var tekið til gjald-
þrotaskipta í aprílbyrjun 2012 og
lauk skiptum 10. þessa mánaðar.
ELM var stofnað árið 1999 og
voru vörur hönnuðanna sem að
fyrirtækinu stóðu seldar í um 140
verslunum víða um heim, en fyrir-
tækið rak einnig tvær verslanir,
aðra í Reykjavík og hina í Ósló. Auk
hönnuðanna þriggja sem stofnuðu
fyrirtækið átti fjárfestingarsjóður
Auðar Capital hlut í fyrirtækinu.
- óká
188 milljóna gjaldþrot ELM:
Ekkert fékkst
upp í kröfur
SÝNING 2006 Hönnun ELM vakti um árabil
athygli víða um heim. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Mikið úrval
frábært verð!
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Verðdæmi 125 mm hjól f / 90 kg
670 kr.
vrnr: J71125
NISSAN NV200 SENDIBÍLL
Nýskr. 01/14, ekinn 25 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.790 þús.
Rnr. 282223.
RENAULT MEGANE SP. TOURER
Nýskr. 06/13, ekinn 55 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.990 þús.
Rnr. 142531.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
HYUNDAI SANTA FE III
Nýskr. 11/12, ekinn 48 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Rnr. 120526.
SUZUKI SWIFT 4WD
Nýskr. 06/13, ekinn 39 þús km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.490 þús.
Rnr. 142447.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 06/13, ekinn 36 þús km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 4.130 þús.
Rnr. 142545.
HYUNDAI i20
Nýskr. 09/13, ekinn 39 þús. km.
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 1.990 þús.
Rnr. 120479.
DACIA DUSTER 4x4
Nýskr. 06/13, ekinn 55 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.960 þús.
Rnr. 142534.
Frábært verð!
5.890 þús.
GOTT ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
Skoðaðu úrvalið á
bilaland.is
ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!