Fréttablaðið - 26.11.2014, Side 18
26. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og systir,
JENSÍNA NANNA EIRÍKSDÓTTIR
ljósmóðir,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
síðastliðinn laugardag. Útför fer fram
frá Digraneskirkju föstudaginn
28. nóvember næstkomandi kl. 13.00.
Aðstandendur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓN ÞORGEIRSSON
Hrafnhólum 2, Reykjavík,
andaðist á Hrafnistu, Boðaþingi laugar daginn
22. nóvember. Útförin fer fram frá Ríkissal
Votta Jehóva, Hraunbæ 113, föstudaginn
28. nóvember kl. 15. Sérstakar þakkir fær
starfsfólk Hrafnistu, Boðaþingi fyrir góða umönnun og hlýju.
Jón Jónsson María Elsa Erlingsdóttir
Vilborg Jónsdóttir Ari Þórólfur Jóhannesson
Þorsteinn Yngvi Jónsson Virginia G. Isorena
barnabörn og barnabarnabörn.
Maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
ÞORVALDUR HEIÐDAL JÓNSSON
fyrrum bóndi á Tréstöðum,
Víðilundi 16A, Akureyri,
lést á Dvalarheimilinu Hlíð mánudaginn
24. nóvember. Útförin auglýst síðar.
Þórunn Jóhanna Pálmadóttir
Gerður G. Þorvaldsdóttir Hermann A. Traustason
Rósa K. Þorvaldsdóttir Ólafur Jósefsson
Jón Á. Þorvaldsson Gyða H. Sigþórsdóttir
Gestheiður B. Þorvaldsdóttir Hermann H. Kristjánsson
afabörn, langafabörn og systkini hins látna.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR
Selvogsgrunni 14, Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn
20. nóvember. Útför hennar fer
fram frá Háteigskirkju mánudaginn
1. desember kl. 13.00.
Kristín Ragnarsdóttir
Arne Nordeide
Þórunn Ragnarsdóttir Snorri Egilson
Málfríður Ragnarsdóttir
Einar Ragnarsson Claudia Gluck
Guðmundur Ragnarsson Þóra Friðriksdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar,
HLAÐGERÐUR ODDGEIRSDÓTTIR
frá Grenivík og Raufarhöfn, til heimilis að
Furugerði 1, Reykjavík, lést mánudaginn
24. nóvember á líknardeild Landspítalans.
Útför hennar verður frá Fossvogskirkju
föstudaginn 28. nóvember kl. 15.00.
Börn Hlaðgerðar og fjölskyldur þeirra.
Ástkær faðir, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
JÓN GUÐJÓNSSON
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
10. nóvember sl. Útför hans fer fram
frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
27. nóvember klukkan 13.00.
Viktor Jacobsen
Guðjón Jónsson Þuríður Erlendsdóttir
Sigríður Jónsdóttir Hörður Jónsson
Anna María Jónsdóttir
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
LAUFEY GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hofstöðum,
lést fimmtudaginn 20. nóvember á
sjúkrahúsinu í Stykkishólmi. Jarðsungið
verður frá Stykkishólmskirkju laugardaginn
29. nóvember kl. 14.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og langömmubörn.
Ástkær sambýliskona
mín og ættmóðir,
STEINUNN ÞORSTEINSDÓTTIR
(Nenna)
Háaleitisbraut 37,
sem lést miðvikudaginn 19. nóvember
verður jarðsungin frá Garðakirkju
fimmtudaginn 27. nóvember kl. 15.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð
hjartadeildar Landspítalans
Geir Ragnar Gíslason
Arnlín Þuríður Óladóttir Magnús Rafnsson
Óli Jón Ólason Guri Hilstad Ólason
Elín Sigríður Óladóttir Heimir Heimisson
Guðrún M.Ó. Steinunnardóttir Guðni Kristinsson
Þorsteinn Gísli Ólason Halla Björk Magnúsdóttir
Ágúst Ólason
ömmubörn og langömmubörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRARINN HALLGRÍMSSON
húsasmíðameistari,
Útgarði 6, Egilsstöðum,
sem lést 17. nóvember, verður jarðsunginn
frá Egilsstaðakirkju föstudaginn 28. nóvember kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Hollvinasamtök
Sjúkrahúss Seyðisfjarðar.
Björg S. Jónasdóttir
Málfríður Þórarinsdóttir Sigurgeir Þorgeirsson
Hrafnhildur S. Þórarinsdóttir Borgþór Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Mikill bruni varð á Húsavík aðfaranótt
þessa dags árið 1902. Þar brunnu öll
hús verslunar Örums & Wulffs, átta að
tölu, en íbúðarhúsi verslunarstjórans
tókst þó að bjarga.
Miklar verslunarbirgðir urðu þarna
eldinum að bráð, þótt vasklega væri
gengið fram við björgunarstörf. Alls var
560 tunnum af ýmiss konar matvöru
bjargað en næstum annað eins brann.
Tjón verslunarinnar og ýmissa annarra
var áætlað 90 til120 þúsund krónur.
Örum & Wulff var danskt verslunar-
fyrirtæki sem hóf verslun á Íslandi árið
1798 í Útkaupstað á Eskifirði. Örum &
Wulff var víða með verslanir á landinu,
til dæmis á Bakkafirði, Seyðisfirði og
Flatey á Skjálfanda.
Fréttaritara Suðra á Akureyri
blöskraði að ekki skyldi hægt að bjarga
húsunum í brunanum. Hann kenndi því
um að húsin hefðu staðið allt of þétt
saman, „að eigi er líft í sundunum milli
þeirra“, sérstaklega með tilliti til þess
að tækjakostur til slökkvistarfs væri svo
lélegur. „Áhöld eru engin nema vatns-
fötur og önnur smáhylki“, segir enn
fremur í Suðra.
ÞETTA GERÐIST: 26. NÓVEMBER 1902
Gífurlegt tjón í bruna á Húsavík
Í haust fór Þekkingarmiðstöð Sjálfs-
bjargar af stað með jafningjafræðslu
fyrir hreyfihamlaða í formi fyrirlestra
á netinu. „Við fórum af stað með þetta
verkefni þar sem það hefur frá upphafi
verið markmið Þekkingarmiðstöðvar
Sjálfsbjargar að standa fyrir öflugri
fræðslustarfsemi og jafningjafræðslu,
ásamt því að efla þekkingu á málefnum
hreyfihamlaðs fólks og vinna að hugar-
farsbreytingu í samfélaginu,“ segir
Rannveig Bjarnadóttir, forstöðumaður
Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar, en
verkefni sem þetta hafði verið í undir-
búningi í talsverðan tíma.
„Við vorum búin að velta fyrir okkur
í hvaða formi væri best að hafa þetta
til þess að geta náð til sem flestra og
þá líka þeirra sem búa úti á landi líka
og í framhaldinu kom þessi hugmynd
að birta fyrirlestrana á netinu“ segir
Rannveig, en nemendur Kvikmynda-
skóla Íslands hafa lagt fram aðstoð
sína við að taka upp fyrirlestrana.
„Okkur fannst mikilvægt að gefa ein-
staklingum færi á að deila sinni pers-
ónulegri reynslu og gefa góð ráð um
ýmis málefni sem snerta alla á ein-
hvern hátt,“ segir Rannveig, en fyrir-
lesararnir eru ekki fagfólk, heldur
hreyfihamlaðir einstaklingar sem
segja sína sögu.
„Með því að hafa fyrirlestrana á net-
inu eru þeir aðgengilegir öllum óháð
búsetu, en þetta er líka okkar leið til
þess að ná til þeirra sem ættu annars
erfitt með að koma á fyrirlestur hjá
okkur,“ segir hún. Fyrirkomulag sem
þetta er nýtt og veit Rannveig ekki til
þess að slíkt hafi verið gert hér áður.
„Við erum búin að gera tvo fyrirlestra
sem hafa fengið gríðarlega góðar við-
tökur, og búið er að taka upp tvo til við-
bótar. Þetta er verkefni sem er komið
til að vera og vonandi getum við haldið
áfram að setja inn fyrirlestra,“ segir
Rannveig.
Fyrirlestrarnir eru aðgengilegir
öllum inni á síðu Þekkingarmiðstöðv-
ar www.thekkingarmidstod.is.
adda@frettabladid.is
Rödd hreyfi hamlaðra
nýtur sín á netinu
Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar fór af stað með jafningjafræðslu í formi fyrirlestra á
netinu, en þeir eru öllum aðgengilegir. Tveir fyrirlestrar hafa þegar fengið góð viðbrögð.
KOMIÐ TIL AÐ
VERA Rannveig
vonar að þetta
verkefni sé
komið til að vera.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR