Fréttablaðið - 26.11.2014, Side 22
| 4 26. nóvember 2014 | miðvikudagur
Íslensk heimili og fyrirtæki greiða á ári 200
milljarða aukalega vegna „gífurlegs vaxta-
kostnaðar sem skerðir lífskjör og þrengir að
atvinnulífi nu“ benda Samtök atvinnulífsins
á í nýrri samantekt.
Samtökin vekja þó í umfjöllun sinni
athygli á því að hlutir hafi færst til betri
vegar í efnahagslífi nu og því ætti að vera
rúm fyrir frekari vaxtalækkanir hér á landi
verði haldið áfram á sömu braut. Bent er á
að stýrivextir hér á landi séu nærri fjörutíu
sinnum hærri en í Evrópu.
Á fundi Viðskiptaráðs Íslands um pen-
ingamál fyrr í þessum mánuði fjallaði Arnór
Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri sér-
staklega um hvað til þyrfti að koma ætti
að draga hér úr vaxtamun við útlönd. Til
að gera það þyrfti að ná
niður verðbólgu og halda
jafnvægi í efnahagslíf-
inu yfi r mjög langan tíma.
Þar væri okkur hins vegar
ákveðinn vandi á höndum.
Gjaldmiðillinn væri mjög
lítill og gengisbreyting-
ar kæmu mjög hratt fram
í verðlagi. Laun sem hækkuðu hratt með
verðlagi aðlöguðust ekki endilega jafn hratt
niður á við þegar gengið styrktist. Því væri
ákveðin verðbólgubjögun innbyggð í lítinn
gjaldmiðil og ekki önnur leið til að draga úr
henni en reka efnahagsmál landsins jafn vel
og jafnvel betur en önnur lönd, eigi vaxta-
stig hér að verða eitthvað svipað og þar.
Þá sagði Arnór á fundinum að saga krón-
unnar hjálpaði ekki til í þessum efnum.
„Gildi krónunnar hefur rýrnað um nálægt
99,9 prósent gagnvart þeim gjaldmiðli sem
við vorum upphafl ega tengd við þegar krón-
an var sett á fl ot á sínum tíma. Gjaldmiðill
með slíka sögu þarf að búa við hærri vexti
til þess að fjárfestar vilji eiga skuldbinding-
ar í honum,“ benti hann á.
Samtök atvinnulífsins benda í umfjöll-
un sinni á að viðbótarútgjöld landsmanna
vegna hærri vaxta hér en annars staðar
jafngildi öllum útgjöldum ríkisins til heil-
brigðis og menntamála. Bent er á að lækki
vextir verði meira eftir af launum fólks,
atvinnulíf efl ist og lífskjör batni.
- óká
ARNÓR SIGHVATSSON
BIRTIR TIL? Samtök atvinnulífsins vekja á því athygli í
umfjöllun og auglýsingum þessa dagana að síðustu tólf
mánuði hafi náðst jákvæður árangur á vinnumarkaði
og í efnahagslífi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Efnahagsbati býr til rúm fyrir vaxtalækkanir, að mati SA. Háir vextir eiga rætur í óstöðugum gjaldmiðli, sagði aðstoðarseðlabankastjóri nýverið:
Vaxtakostnaðurinn skerðir hér lífskjörin
Dráttur sem verður á innleiðingu
fríverslunarsamnings EFTA við
Persafl óaríkin er bagalegur fyrir
fyrirtæki sem höfðu gert ráð fyrir
að hann tæki gildi um mitt þetta ár.
Að því er fram kemur í áliti Félags
atvinnurekenda (FA) höfðu þau lagt
í öfl un viðskiptasambanda vegna frí-
verslunarinnar.
Í tilkynningu sem utanríkisráðu-
neytið birti, eftir ábendingu FA,
segir að samningurinn sé á milli
EFTA og Samstarfsráðs arabaríkj-
anna við Persafl óa (GCC), en því til-
heyra Sádi-Arabía, Sameinuðu arab-
ísku furstadæmin, Barein, Óman,
Katar og Kúveit. Samningurinn
kveði á um lækkun eða niðurfell-
ingu tolla á iðnaðarvörur, sjávaraf-
urðir og unnar landbúnaðarvörur.
„Að auki gerðu Ísland og aðildarríki
GCC með sér tvíhliða samkomulag
um viðskipti með óunnar landbún-
aðarvörur,“ segir ráðuneytið.
Samningurinn gekk í gildi 1.
júlí síðastliðinn, en fram kemur að
aðildarríki GCC hafi nýlega upp-
lýst EFTA-ríkin um að dráttur hafi
orðið og muni áfram verða á fram-
kvæmd hans. Fram kemur að samn-
ingur komist jafnvel ekki til fram-
kvæmda fyrr en um mitt næsta ár.
FA kveðst vita um fyrirtæki sem
lent hafi í vandræðum af þessum
sökum, bæði vegna útfl utnings til
Persafl óaríkjanna og innfl utnings til
Íslands. „Fyrirtæki hafa lagt í vinnu
og fyrirhöfn til að afl a sér viðskipta-
sambanda á grundvelli samningsins
og það er afar bagalegt þegar í ljós
kemur að hann virkar ekki,“ segir
í umfjöllun FA, sem hvatt hefur
utanríkisráðuneytið til að beita sér
í málinu og reyna að stuðla að því
að fríverslunarsamningurinn verði
virkur sem fyrst. - óká
Viðskiptasambanda aflað á brostnum forsendum segir FA:
Seinkunin bagaleg
GÁMASTÆÐA
Fríverslun við
arabaríki við
Persaflóa seinkar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í næsta mánuði stendur til að
skandinavíska húsgagna- og hönn-
unarfyrirtækið NORR11 opni sýn-
ingarsal og verslun við Hverfi s-
götu 18a í Reykjavík.
Fram kemur í tilkynningu
NORR11 að fyrirtækið reki
sýningarsali í Kaupmannahöfn,
Berlín, London, Árósum, Lyngby
og Tallinn. Reykjavík verði því
sjöunda borgin þar sem opnaður
verður sýningarsalur.
Framkvæmdir standa yfi r í sýn-
ingarhúsnæðinu, sem er í portinu
beint á móti Þjóðleikhúsinu. Sýn-
ingarsalurinn verður á tveimur
hæðum í um 260 fermetrum.
Auk salarins stendur til að
starfrækja íslenska vefverslun
NORR11 og senda út um land allt.
- óká
Opnarsal á tveimur hæðum:
NORR11
til landsins
Í SAL NORR11 Opna á sýningarsal og verslun
við Hverfisgötu. MYND/NORR11
Setning
Steinþór Pálsson, formaður SFF
Efnahagssvið SA: Hver borgar?
Samkeppnisumhverfi fjármálafyrirtækja
Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður
efnahagssviðs SA
Oliver Wyman: Financial Market
Competitiveness
Carl Raining, partner at Oliver Wyman
Deutsche Bank: The Competitiveness of the
Icelandic Financial Sector
Jan Olsson, CEO Nordic Region
Stephen Westgate, Managing Director, Head
of Nordic Financial Institutions Group
Tommy Paxeus, Director, Head of Nordic
Capital Markets & Treasury Solutions
Pallborðsumræður um samkeppnishæfni
fjármálageirans
Þátttakendur
Heiðrún Jónsdóttir, stjórnarmaður í
atvinnulífinu
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá
Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP Banka
Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóri í
fjármála- og efnahagsráðuneytinu
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri SA
stjórnar pallborðsumræðum
Fundarstjóri
Margrét Sanders, formaður stjórnar Samtaka
verslunar og þjónustu
SFF DAGURINN 27. NÓVEMBER 2014
Hvað getur fjármálageirinn gert til þess að
efla samkeppnishæfni íslenska hagkerfisins?
14:00-16:15 Í STÓRA SAL ARION BANKA, BORGARTÚNI 19
Vinsamlega skráið ykkur með því að senda
póst á sff@sff.is
Hagfræðideild Landsbankans spáir
rúmlega fjögurra prósenta hag-
vexti á næsta ári en ekki 5,5 pró-
senta vexti eins og gert var ráð
fyrir í spá deildarinnar í maí síð-
astliðnum. Horfurnar fyrir næsta
ár séu því heldur lakari sem skýrist
að miklu leyti af mun verri horfum
fyrir loðnuveiðar en deildin reiknaði
áður með.
Þetta kemur fram í nýrri þjóð-
hagsspá bankans fyrir næstu þrjú
árin sem kynnt verður í dag.
„Samkvæmt spánni verður meðal-
hagvöxtur á spátímabilinu tæp 3,5
prósent samanborið við 3,9 prósent
í maíspánni. Að sama skapi eru verð-
bólguhorfurnar ágætar, að minnsta
kosti framan af, þó hagvöxturinn
verði nokkuð kröftugur allan tím-
ann,“ segir í þjóðhagsspánni.
Þar er því gert ráð fyrir að hag-
vöxtur verði heldur meiri á tíma-
bilinu en þau 2,9 prósent sem Seðla-
bankinn og Hagstofan gera ráð fyrir.
Spárnar eru þó í meginatriðum svip-
aðar en Landsbankinn er bjartsýnni
á þróun útfl utnings á komandi árum.
„Á næsta ári er útlit fyrir að enn
bæti í og vöxtur einkaneyslu verði
fjögur prósent. Þessi aukning verð-
ur meðal annars knúin af hækkun
ráðstöfunartekna og auknu veð-
rými vegna aðgerða ríkisstjórnar
til skuldalækkunar hjá lántakend-
um verðtryggðra húsnæðislána,
auknum kaupmætti launa, minnk-
andi atvinnuleysi og breytingum á
skattkerfi nu.“
Starfsmenn hagfræðideildarinnar
búast einnig við því að kaupmáttur
launa aukist í heild um 8,7 prósent
og að fasteignaverð haldi áfram að
hækka. Verðið hefur hækkað um
rúm sex prósent að nafnvirði frá
upphafi ársins en í spá bankans er
gert ráð fyrir að hækkunin nemi 8,5
prósentum við næstu áramót. Verðið
eigi svo eftir að hækka um 9,5 pró-
sent á árinu 2015, 6,5 prósent á árinu
2016 og 6,2 prósent á árinu 2017.
Í spánni er einnig gert ráð fyrir
að stýrivextir Seðlabankans verði
óbreyttir fram á mitt næsta ár og að
ólíklegt sé að aðstæður skapist fyrir
frekari lækkun vaxtanna.
„Þess vegna spáum við því að
stýrivextir hækki um 0,75 prósentu-
stig á spátímabilinu og verði 6,5 pró-
sent í lok árs 2016.“
Verri horfur um loðnuveiðar
lækka hagvaxtarspá bankans
Ný þjóðhagsspá Landsbankans gerir ráð fyrir rúmlega fjögurra prósenta hagvexti á næsta
ári. Kaupmáttur launa aukist um 8,7% á næstu þremur árum. Spáir hækkun stýrivaxta.
BANKINN Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að stýrivextir Seðlabankans verði
óbreyttir fram á mitt næsta ár. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
EFNAHAGSMÁL
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is