Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.11.2014, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 26.11.2014, Qupperneq 27
KAFFI&HEITIR DRYKKIR MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2014 Kynningarblað Döðlur með beikoni Döðlur sem vafðar eru með beikoni er einfaldur forrétt- ur sem bragðast vel. Það sem þarf: 230 g döðlur 100 g möndlur 450 g beikonsneiðar Takið steininn úr döðlunum og setjið möndlu í staðinn. Vefj- ið beikoni yfir döðluna og sting- ið tannstöngli í gegn. Setjið í heit- an ofn og bakið í nokkrar mín- útur eða þar til beikonið fer að dökkna. Í staðinn fyrir möndlu má fylla döðluna með osti, til dæmis gráðaosti. New York-steik með kaffi Góð steik er alltaf vinsæl. Hér er uppskrift að New York-steik með kaffi sem Ina Garten var með í þætti sínum á stöðinni Food Net- work. Hún hefur fengið mikið lof í kommentakerfi heimasíðunnar fyrir þessa uppskrift og margir sem gefa henni fimm stjörnur. Uppskriftin miðast við tvo og hana er einfalt að gera. Uppskriftina má síðan stækka eftir þörfum. Það sem þarf: 1 msk. ólífuolía 350 g góð nautasteik Kryddblanda ½ msk. púðursykur ½ msk. nýmalaður pipar ½ msk. salt ½ msk. chili-flögur ½ msk. kaffiduft ½ msk. hvítlauksduft ½ msk. reykt paprika (duft) Nuddið ólífuolíunni í kjötið. Blandið saman öllu sem á að fara í kryddblönduna og hjúpið kjötið með henni. Látið standa í tvær klukkustundir. Best er að steikja kjötið á útigrilli en auðvitað er líka hægt að nota grillpönnu. Hitið grillið og steik- ið kjötið í um það bil tvær mín- útur á hvorri hlið. Færið kjötið þá á kaldari part á grillinu og látið standa í 20 mínútur. Látið kjötið síðan standa í 10 mínútur áður en það er skorið. Berið fram með frönskum kart- öflum og grænmeti. Tiramisu Tiramisu er ítalskur eftir- réttur sem flestum þykir af- skaplega góður. Hér er góð uppskrift af þessum ljúf- fenga eftirrétti. Það sem þarf: 6 eggjarauður ¾ bolli sykur 2/3 bolli mjólk 1 ¼ bolli rjómi ½ tsk. vanilludropar 1 box mascarpone-ostur ¼ bolli sterkt kaffi, aðeins kælt 2 msk. romm 2 pakkar Lady fingers 1 msk. kakó Hrærið eggjarauðu og sykur þar til blandan verður létt og ljós í potti. Bætið þá mjólkinni saman við og sjóðið við miðlungshita þar til suðan byrjar að koma upp. Hrærið allan tímann. Takið af hit- anum og kælið í klukkustund. Þeytið rjóma og bætið vanillu- dropum í hann. Hrærið mascarp- one saman við eggjablönduna þar til allt er mjúkt og fínt. Blandið kaffi og rommi saman. Dýfið kökunum í blönduna og raðið í fallegt glas eða ferkant- aða skál. Ostablandan er sett yfir, síðan rjóminn, síðan annað lag af kökum og svo framvegis þar til allt er búið. Dreifið kakói yfir. Kælið í ísskáp í 4-6 klukkustundir. Piparmintukaffi ½ bolli sterkt kaffi 1 msk. súkkulaðisíróp 2 msk. piparmintusíróp þeyttur rjómi súkkulaði til skrauts Setjið síróp og kaffi í bolla eða könnu. Setjið þeyttan rjóma á toppinn og skreytið með súkkulaði. Veisla með ljúffengu kaffibragði Í skammdeginu er nauðsynlegt að gera eitthvað sér til ánægju og gleði. Það er til dæmis skemmtilegt að bjóða gestum í mat, leggja fallega á borð og kveikja á kertum. Hér er uppástunga að veislu sem gestir munu falla fyrir og hrósa gestgjafanum. Í forrétt eru döðlur vafðar með beikoni, í aðal- og eftirrétt er notað kaffi. Síðan er gott piparmintukaffi með rjóma á eftir. Piparmintukaffi. MYNDIR/GETTY Tiramisu í glösum. Steik með frönskum og grænmeti.Döðlur með beikoni og möndlu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.