Fréttablaðið - 26.11.2014, Side 28
KYNNING − AUGLÝSINGKaffi og heitir drykkir MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 20142
Flóuð mjólk er kjörinn drykkur til að slá botninn í góðan dag.
Mjólk inniheldur kalk sem svefnspekúlantar vilja meina að
hjálpi okkur að slaka á. Þá inniheldur mjólk tryptophan sem lík-
aminn umbreytir í melatonín, hormón sem gerir okkur syfjuð.
Bjóddu upp á ilmandi heita vanillumjólk að kvöldi og værð fær-
ist strax yfir mannskapinn. Tryptophan finnst líka í hunangi.
Heit vanillumjólk með kanil
4 bollar mjólk
¼ bolli sykur
1 ½ tsk. vanilludropar
Malaður kanill til að strá yfir
1 tsk. hunang ef vill
Hellið mjólkinni í pott og sykrinum út í. Látið suðuna koma upp við meðalhita og hrærið
stöðugt í eða þar til sykurinn leysist upp. Hrærið þá vanilludropunum út í. Hellið heitum
drykknum í fjórar fallegar könnur eða glös og stráið kanil yfir.
uppskriftin er fengin af www.marthastewart.com.
www.dailymail.co.uk
Sjóðheit vanillumjólk
Vissir þú til dæmis:
… að koffínlaust kaffi inniheldur jafn
mikið af andoxunarefnum og hefð-
bundið kaffi.
… að nær engar kaloríur finnast í
kaffi. Í einum bolla af uppáhelltu
svörtu kaffi eru þær tvær. Það sem
er sett út í kaffið inniheldur hins
vegar gjarnan margar kaloríur. Má
þar nefna mjólk, sykur og síróp.
… að kaffi hefur verið þekkt í yfir
ellefu aldir en það voru eþíópískir
geitahirðar sem uppgötvuðu það
fyrst. Þeir tóku eftir því að geiturnar
þeirra urðu hressar og tóku jafnvel
til við að dansa eftir að hafa japlað
á rauðum berjum sem innihéldu
kaffibaunir.
… að kaffibaunin er í raun fræ inni í
stóru rauðu beri.
… að Finnar, Svíar, Norðmenn og
Danir drekka mest kaffi per íbúa
í heimi. Finnar tróna þar á toppnum.
… að sala á koffínlausu
kaffi er mest í janúar.
Það er rakið til
nýársheita.
… að tón-
skáldið
Johan
Se-
basti-
an Bach samdi grínóperu um konu
sem var háð kaffi í kringum 1730.
… að New York-búar drekka um það
bil sjö sinnum meira kaffi en íbúar
annarra borga í Bandaríkjunum
… að kaffi er önnur algengasta
söluvara í heimi á eftir olíu.
… að yfir 40 prósent af öllu kaffi í
heiminum kemur frá Afríku, Brasilíu
og Kólumbíu.
… að kaffiberin eru tínd, þurrkuð og
skræld. Það sem eftir stendur er
græn baun. Baunin er svo ristuð
við 260 gráðu hita. Þá poppar hún
og stækkar um helming. Nokkrum
mínútum síðar poppar hún á ný og
þá er baunin tilbúin.
… að kaffibaunir eru tvenns konar;
Arabica og Robusta. 70% kaffi-
unnenda drekka Arabica-kaffi sem
er milt. Restin drekkur Robusta
sem er bitrara á bragðið. Robusta
inniheldur tvöfalt meira koffín.
… að
kaffiberin
voru upp-
haflega borðuð.
Síðar voru þau
marin og þeim
blandað saman
við fitu og
búnar til litlar
orkukúlur. Eins
eru heimildir um að búið hafi verið
til eins konar vín úr berjunum. Það
var ekki fyrr en á 13. öld sem farið
var að rista kaffibaunirnar inni í
berjunum..
… að hinn almenni kaffiunnandi
drekkur 3,1 kaffibolla á dag.
… að Creme Puffe, elsti köttur
veraldar sem náði 38 ára aldri, var
alinn á kaffi. Hann fæddist 1967 og
dó 2005. Eigandi hans, Jake Perry
frá Texas, gaf honum kaffi daglega.
Hann átti fyrir köttinn Grandpa Rex
Allen. Sá varð 34 ára. Hann var líka
alinn á kaffi.
… að banvænn skammtur af kaffi er
áætlaður um það bil 100 bollar í
einu.
Kaffi var upphaflega borðað
Kaffi er önnur algengasta söluvara í heimi. Það hefur fylgt mannkyninu um aldir. Því tengjast ýmsar skondnar staðreyndir.
Grýla, Leppalúði og Leiðindaskjóða
Ljúfari en
þig grunar
Grýla
Leppalúði
Leiðindaskjóða
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
4
41
93
Það eru nær engar kaloríur í svörtu kaffi. NORDICPHOTOS/GETTY