Fréttablaðið - 26.11.2014, Page 32

Fréttablaðið - 26.11.2014, Page 32
FÓLK|FERÐIR Skemmtileg hefð hefur myndast á Laugarvatni undanfarna áratugi en þá hittast íbúar bæjarins og nærsveitungar á fyrsta sunnudegi í aðventu og fleyta friðarkertum út á Laugarvatn. Þessi athöfn er hluti af dagskrá sem kvenfélagið og Lionsfélag- ið skipuleggja í sameiningu og er fyrir löngu orðinn fastur liður í jólahaldinu þar um slóðir. Kvenfélagið er með ár- legan jólabasar og vöfflukaffi þennan dag þar sem íbúar geta leigt borð og selt eigin vörur að sögn Hilmars Ein- arssonar, fyrrverandi byggingafulltrúa uppsveita Árnessýslu, auk þess sem Lionsklúbburinn selur friðarkerti fyrir athöfnina síðar um daginn. „Seinni part dags er farið í Bjarnaskóg og kveikt á jólatré. Að því loknu, yfirleitt um kl. 17, röltir hópurinn niður að vatni með kertin sem keypt voru af Lionsklúbbn- um fyrr um daginn, kveikt er á þeim og þau látin fljóta út á vatnið. Í góðu veðri er þetta virkilega falleg sjón og ekki skemmir fyrir að á sama tíma er spiluð falleg jólatónlist við bakka Laugarvatns sem eykur enn frekar áhrifin.“ Fjöldi friðarkerta er mismikill milli ára en Hilmar segir að alla jafna séu keypt um 110-120 kerti hjá Lions- klúbbnum ár hvert sem fleytt er út á vatnið. „Einstaka sinnum er vindáttin þannig að þau sigla í rólegheitunum frá bakkanum út á vatnið. Svo hefur að minnsta kosti einu sinni verið svo brjálað veður að það var ekki nokkur leið að láta loga á kertunum. Það er ekkert öruggt á þessu landi þegar veðurfarið er annars vegar. Stemningin er þó alltaf góð þrátt fyrir misjafnt veður og falleg jólatónlistin skipar þar líka stóran sess. Okkur heimamönnum þykir þessi kertafleyting náttúrlega eðlilegasti hlutur í heimi en mörgum aðkomumönnum þykir þetta afar til- komumikil sjón.“ Aðspurður segist hann ekki vita um sambærilega hefð hérlendis á þessum tíma árs. „Það eru svo mörg ár síðan þetta byrjaði að uppruninn er óljós. Mig minnir þó að upphaflega hafi hugmynd- in kviknað þegar friðarkertum var fleytt út á Tjörnina í Reykjavík fyrir löngu síð- an. Þá kom þessi hugmynd upp hér, að gera eitthvað sambærilegt og úr varð þessi skemmtilegi og fallegi siður okkar. Um tíma settum við líka marglitar jóla- ljósaslöngur utan á Héraðsskólann sem ljómaði upp þegar hópurinn gekk niður að vatninu. Það var virkilega falleg sjón í skammdegisrökkrinu.“ Um 100 erlendir gestir munu heim- sækja gufubaðið á Laugarvatni þennan daginn að sögn Hilmars. „Það verður gaman að sjá hvernig þeir upplifa kertafleytinguna okkar. Vonandi fá þeir gott veður og ekki verður verra ef hóp- urinn kaupir líka kerti með okkur. Þá gæti þetta orðið ansi eftirminnileg sjón fyrir okkur og ekki síður ferðalangana.“ ■ starri@365.is HÁTÍÐLEG STUND VIÐ LAUGARVATN FALLEGT Á LAUGARVATNI Friðarkerti fljóta út á Laugarvatn fyrsta sunnudag í aðventu hvert ár. Þessi fallegi siður laðar til sín fjölda fólks og margir líta á hann sem upphaf jólaundirbúnings á þessum slóðum. FEGURÐ Í fallegu veðri er útsýnið og stemningin engu lík. MYND/PÁLMI HILMARSSON Hilmar Einarsson, fyrr- verandi byggingafulltrúi uppsveita Árnessýslu. GAMAN Kertafleytingin er alltaf stór stund hjá yngstu kynslóðinni. MYND/PÁLMI HILMARSSON Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.