Fréttablaðið - 26.11.2014, Side 34

Fréttablaðið - 26.11.2014, Side 34
 | 8 26. nóvember 2014 | miðvikudagur „Ég ætlaði svo sem aldrei að ráða mig í vinnu hér en svo sá ég þessa spennandi hluti sem eru í gangi og hitti þetta skemmtilega fólk og langaði þá að vera með,“ segir Birgir Jónsson, aðstoðarforstjóri Wow air. Birgir tók við starfi nu í síðustu viku en hann hafði þá unnið hjá Wow sem ráðgjafi í tvo mánuði og sinnt verkefnum við endurskipu- lagningu og stefnumótun fyrir- tækisins. „Í kjölfarið fór Skúli Mogensen að orða þetta starf við mig og ég hafði þá þann lúxus að ég þekkti innviði fyrirtækisins áður en ég tók ákvörðunina,“ segir Birgir. Hann hefur í nógu að snúast þessa dagana. Fyrir utan að sjá nú um daglegan rekstur fl ugfélags- ins er Birgir trommari þunga- rokkshljómsveitarinnar Dimmu og fjögurra barna faðir. „Dimma er að spila á Græna hattinum á Akureyri um næstu helgi og helgina eftir það eigum við að hita upp fyrir Slash í Laug- ardalshöllinni. Það er draum- ur að fá að hitta átrúnaðargoðið sem hefur verið í uppáhaldi síðan maður var lítill pjakkur.“ Birgir er með sveinspróf í prentun, háskólagráðu í rekstr- arhagfræði og MBA-gráðu frá University of Westminster í Bret- landi sem hann lauk árið 2000. Það ár var Birgir ráðinn forstöðu- maður netþróunar Íslandsbanka og árið 2001 tók hann við starfi svæðisstjóra Össurar hf. í Asíu. „Ég ferðaðist alveg svakalega mikið í því starfi og þetta voru mjög spennandi tímar hjá Öss- uri. Svo kom ég hingað til lands árið 2004 þegar ég var ráðinn for- stjóri Iceland Express. Þar var ég í rúm tvö ár en fl utti svo til Rúm- eníu árið 2006 þegar ég varð for- stjóri Infopress Group sem er ein stærsta prentsmiðja Austur-Evr- ópu með 1.300 starfsmenn og var í eigu Kvosar, móðurfélags Prent- smiðjunnar Odda,“ segir Birgir. Hann er giftur Lísu Ólafsdóttur, eiganda verslunarinnar Madison Ilmhús í Aðalstræti, en fjölskyldan var með annan fótinn í Rúmeníu í þau fjögur ár sem hann starfaði fyrir Kvos. „Síðan þá hef ég starfað sjálf- stætt og meðal annars sinnt verk- efnum fyrir Prentsmiðjuna Odda. Svo er alltaf nóg að gera í tónlist- inni en hún er stór hluti af mínu lífi og frítíminn fer nánast allur í hana. Við í Dimmu höfum verið að spila nánast hverja einustu helgi, í á þriðja ár, og hljómsveitin hefur gefi ð út tvær stórar plötur, dvd- diska og fl eira. Þetta er því lífsstíll fyrir mig og þar af leiðandi einnig fyrir fjölskylduna.“ Hittir átrúnaðargoðið Slash í Höllinni Birgir Jónsson tók við starfi aðstoðarforstjóra Wow air í síðustu viku. Hann er með MBA-gráðu frá University of Westminster í London og er trommari þungarokkshljómsveitarinnar Dimmu. Stýrði prentsmiðju í Austur-Evrópu. LEMUR HÚÐIRNAR Birgir Jónsson hefur einnig spilað með hljómsveitunum Stafrænn Hákon og XIII. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Hr. Már Guðmundsson, seðlabankastjóri Seðlabanka Íslands Árið 2006 fjárfestum við fyrir umtalsverða upphæð á Íslandi með kaupum á hlut í Marel hf., matvæla- vinnslufyrirtæki skráðu í Reykjavík. Í gegn um fjárfestingafélag okkar höfum við tekið virkan þátt í stjórnun félags- ins þar sem ég tók sæti í stjórn og hef lagt vexti þess lið sem forystufyrirtæki í matvælavinnslugeiranum í heiminum. Fjárfestingar af þessum toga eru ein- mitt þær sem Evrópureglum um fjár- málamarkaði var ætlað að auðvelda. Þegar hagkerfi Íslands hrundi árið 2008 var komið á fjármagnshöftum til þess að vernda og endurreisa hagkerfi landsins. Við höfum skilning á að hag- kerfi Íslands hafi verið ógnað og að það hafi réttlætt takmarkanir á einni af helgustu reglum Evrópu: frjálsu fl æði fjármagns. Þegar frá líður, með hverju farsælu skrefi sem tekið hefur verið í átt að efnahagsbata á Íslandi, hefur reynt á þolrif þessa skilnings. Ég trúi því nú fastlega að viðvarandi notkun gjaldeyr- ishafta geti valdið óafturkræfum skaða á framtíðarefnahagshorfum Íslands. Þótt færa megi fyrir því rök að íslenskt efnahagslíf sé enn að ná sér, þá á hið sama við um mörg önnur Evrópulönd. Þau lönd, Kýpur þar á meðal, geta hins vegar ekki reitt sig á gjaldeyrishöft og torvelt að sjá af hverju Ísland ætti að geta það. Á meðan íslenskt efnahags- líf hefur styrkst hröðum skrefum hefur greining mín á stöðunni breyst í for- undran á því hvernig íslenskir stjórn- málamenn hafa í raun tekið forráð yfi r eignum sjálfstæðs erlends fjárfestis í landinu. Sama fjárfestis og hefur tekið virkan þátt í að leggja efnahagslífi nu lið. Staðan er um margt tekin að minna á þjófnað. Ný erfðalög breyttu stöðunni Eins og þú veist vel gerði, árið 2012, grundvallarbreyting á því hvernig erfðalög í Danmörku meðhöndla skráð hlutabréf það að verkum að fyrirtæki mitt er í hættu statt, komi til þess að ég fái ekki komið fjárfestingu minni aftur til föðurlandsins áður en ég fell frá. Ég er nú 73 ára og sú stund nálg- ast óðum að fyrirtæki mitt gengur að erfðum. Þessar aðstæður liggja að baki umsókn okkar til Seðlabanka Íslands í ágúst 2013 um undanþágu frá fjár- magnshöftum. Í ljósi áhyggna af því að vandinn sem hér er lýst gæti leitt til þess að mörg störf glötuðust í Danmörku, funduðu sendiherra Danmerkur og konsúll með þér 20. september 2013. Á þeim fundi sagði samstarfskona þín, Ingibjörg Guð- bjartsdóttir, að umsókn okkar virtist uppfylla skilyrði undanþágu, en ákveðn- ar ótilteknar upplýsingar vantaði. Seðla- banki Íslands ynni að því að fá þessar upplýsingar frá Brussel. Ekki liggur fyrir hverjar þessar upplýsingar sem upp á vantaði gætu hafa verið. Niðurstaðan er að þrátt fyrir mikil skrifl eg samskipti milli mín og skrif- stofa þinna og þrátt fyrir fjögurra vikna innri afgreiðslufrest Seðlabank- ans til vinnslu umsókna, þá hefur tekið yfi r þrett- án mánuði að fá stuttlega höfnun. Í höfnunarbréfi þínu segir að hagsmun- ir mínir séu ekki nægi- lega áríðandi til að „réttlæta undanþágu fram yfi r aðra í sömu stöðu“. Sem er tölu- verð yfi rlýsing, svona með það í huga að þú hefur nú haft fjár- muni okkar í haldi í meira en sex ár. Raunar má segja að sá, sem er í sömu stöðu og ég – stöðu sem gæti haft jafn skaðlegar afl eiðingar – uppfyllir ekki kröfu um undanþágu, liggur í augum uppi að undanþágurnar eru sjónarspil. Stjórnvöld í rússneskri rúllettu Að það hafi tekið þrettán mánuði, fjölda slælegra afsakana, þar með taldar end- urteknar spurningar og lítilfjörlegar skýringar, áður en þú sagðir okkur á endanum það sem þú hefur allan tímann vitað, endurspeglar að fullu þá slæmu meðferð sem ég og aðrir fjárfestar hafa orðið fyrir. Meðferð sem er orðin almennt kunn meðal hugsanlegra fjár- festa í öðrum löndum. Með slíkri fram- komu við fjárfesta gerir þú þá fráhverfa Íslandi og gref- ur undan mörg- um framtíðar- möguleikum Íslands á umtals- verðri erlendri fjárfestingu. Með því að gefa út undanþáguna sem við uppfyllum skilyrðin fyrir væri tekið gott skref í átt til efl ingar trausts og endurbyggingar brúa sem brenndar hafa verið. Aðgerða er hins vegar þörf nú þegar. Fjármagnshöftin eru enn við lýði á sínu sjö- unda ári og í ljósi nýlegr- ar skoðunar yfi rvalda í Evrópu, sem nú gera sér stöðuna ljósa, þá vinnur tíminn ekki með Íslendingum. Íslensk stjórnvöld leika rússneska- rúllettu með aðgang Íslands að fjár- magnsmörkuðum Evrópu og að því líður að aðildarríki Evrópusambands- ins og stjórnmálamenn þeirra taka að spyrja hvers vegna Íslandi sé enn heim- ill aðgangur að innri markaði Evrópu á meðan landið hunsar eina af helgustu greinum Samningsins um evrópska efnahagssvæðið (bann við fjármagns- höftum). Yðar einlægur, Lars Grundtvig Skilið okkur peningunum! Opið bréf Lars Grundtvig Með slíkri framkomu við fjárfesta gerir þú þá fráhverfa Íslandi og grefur undan mörgum framtíðar- möguleikum Íslands á umtalsverðri erlendri fjár- festingu. BRÉFIÐ SEM LARS GRUNDTVIG SENDIR MÁ GUÐMUNDSSYNI. Það er draum- ur að fá að hitta átrúnaðargoðið sem hefur verið í uppá haldi síðan maður var lítill pjakkur. „Biggi er snill- ingur og gleði- maður og við höfum brallað margt síðan við vorum samtíða í London fyrir um 20 árum. Hann er einstaklega vel giftur og við hjónin skemmtum okkur alltaf konunglega með þeim Lísu, gjarnan yfir góðum mat og drykk. Biggi er farsæll í því sem hann tekur sér fyrir hendur hvort sem það er uppgangur íslenskra fyrirtækja í Asíu og Austur-Evrópu eða að spila á trommur. Hann hefur lag á að ná til fólks og vinnur það á sitt band með einlægni og áhuga. Wow hefði ekki getað fengið betri mann til liðs við sig.“ Arnar Þór Másson, skrifstofu- stjóri í forsætisráðuneytinu „Birgir er kraft- mikill karakter með leiftrandi svartan húmor fyrir sjálfum sér og lífinu. Þessi húmor getur verið torskilinn fyrir styttra komna og ég hef oft séð Birgi beinlínis engjast af hlátri inni í sér meðan aðrir viðstaddir eru eitt stórt spurningarmerki. Undir kæruleysislegu og svölu yfirborðinu er Birgir skarpgreindur og hefur einstakan hæfileika til að lesa í fólk og aðstæður. Hann hefur opið hugarfar og víðsýni þess er víða hefur ratað og er fljótur að sjá stóru myndina þar sem aðrir sjá aðeins smáatriðin. Hann er ekkert að eyða of miklum tíma í hluti sem honum finnast ekki áhugaverðir en í þeim verkefnum sem hann hefur ástríðu fyrir er nákvæmlega ekkert sem stöðvar hann.“ Jón Ómar Erlingsson, framkvæmdastjóri Prentsmiðjunnar Odda. KRAFTMIKILL KARAKTERSVIPMYND Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.