Fréttablaðið - 26.11.2014, Blaðsíða 44
26. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 24
Árni Freyr Gunnarsson píanó-
leikari og Nína Hjördís Þorkels-
dóttir flautuleikari koma fram á
Háskólatónleikum í hádeginu í dag.
Flutt verða verk eftir Inga Garð-
ar Erlendsson, Atla Ingólfsson,
Salvatore Sciarrino og Árna Frey
Gunnarsson en verk hans, Veisla
í farángrinum, verður frumflutt á
tónleikunum.
Árni Freyr og Nína Hjördís eru
nýflutt heim til Íslands eftir langa
dvöl á Ítalíu. Því þykir þeim tilvalið
að setja saman blandaða efnisskrá
sem annars vegar er byggð á nýlegri
ítalskri tónlist og hins vegar enn
yngri íslenskri tónlist. Öll verkin
eru samin eftir 1980 og endurspegla
afar ólíka strauma síðustu 35 ára.
Tónleikarnir fara fram í Hátíða-
sal Háskóla Íslands og hefjast
klukkan 12.30. Enginn aðgangseyr-
ir er að tónleikunum og allir eru vel-
komnir. fridrika@frettabladid.is
Ítölsk og íslensk tónlist
Hádegistónleikar verða í Hátíðasal Háskóla Íslands í dag. Þar verður meðal
annars frumfl utt nýtt íslenskt verk eft ir Árna Frey Gunnarsson.
NÝKOMIN Árni Freyr og Nína Hjördís eru nýflutt heim til Íslands eftir langa dvöl á
Ítalíu. MYND/ÚR EINKASAFNI
➜ Verk eftir Inga Garðar
Erlendsson, Atla Ingólfsson,
Salvatore Sciarrino og Árna
Frey Gunnarsson.
Sjöunda Höfundakvöld Gunnarshúss verður haldið annað kvöld klukk-
an 20. Þá mæta þau Bryndís Björgvinsdóttir og Sigurður Pálsson, lesa
upp og svara spurningum Kristínar Svövu Tómasdóttur um nýút-
komnar bækur sínar, Hafnfirðingabrandarann og Táningabók.
Allir velkomnir á meðan stólar leyfa.
Bryndís og Sigurður á
höfundakvöldi í Gunnarshúsi
TÁNINGA-
BÓK Sig-
urður Páls-
son er annar
höfundanna
í Gunnars-
húsi annað
kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/
HARI
FYRIR
AÐSTOÐ
INNANLANDS
gjofsemgefur.is
9O7 2OO2
„Ég vinn mikið með hár, manns-
hár og gervihár. Áður reyndi ég að
temja það, til dæmis með fléttum,
en nú geri ég það villtara!“ segir
Hrafnhildur Arnardóttir myndlist-
arkona. Hún er í óða önn að setja
saman listaverkin sín eftir flutning
á þeim til Íslands frá New York því
sýning er fram undan í Hverfisgall-
eríi á Hverfisgötu 4.
„Þau hárverk sem ég er með
hér eru gerð undir sterkum áhrif-
um frá skandinavískum rýjavegg-
verkum. Ég klippi niður marglitt
gervihár og plokka það í gegnum
net með mjög fínni heklunál, svo-
lítið eins og þegar strípur eru settar
í hár. Það er fyndið hvernig hlutir
síast inn og dúkka svo upp í alveg
nýju samhengi. Útkoman er eins
og pönkgærur eða mosa- og gróð-
urstemning þótt litirnir séu aðrir en
í náttúrunni.“
Efnisleikur
Hrafnhildur er líka með skúlptúra
sem hún setur á standa og býr til
karaktera úr. Samheitið yfir þá er
Tilfelli. „Þeir eru búnir til úr því
sem til fellur eða einhverju sem
kveikir í mér, þar sem ég rekst á
það,“ útskýrir hún. Lavalíki nefn-
ir hún einn flokk listaverkanna,
veggverk sem líta út eins og hellu-
hraun en eru í raun ruslapokar sem
hún hefur hitað, brætt og spreyjað.
„Það er gaman að nota ómerkileg-
an efnivið í eitthvað sem fær nýja
meiningu. Þetta er voða mikill efn-
isleikur. Við erum öll að reyna að
losna við þetta fjöldaframleidda,
endalausa dót.“
Hrafnhildur hefur búið í New
York í tuttugu ár. Af hverju kýs
hún það? „Ég fór til New York 1994
til að fara í framhaldsnám í mynd-
list í School of Visual Arts. Þar
var ég í tvö ár og hafði rétt á dval-
arleyfi í ár í viðbót svo ég fór að
vinna á veitingahúsi í Soho. Það var
eiginlega enskuskóli fyrir mig. Svo
kynntist ég manninum mínum sem
er Pólverji en er búinn að dvelja
lengi í New York og nú hef ég búið
þar hálfa ævina. Þótt ég sé með
brjálæðislega sterkar rætur hér
þá er ég líka búin að skjóta rótum
þar. Hef líka alltaf haft gaman af
öfgum, eins og sést í mínum verk-
um, þar sem bæði er áhersla á feg-
urð og ljótleika. Kannski má segja
að New York og Ísland passi vel
inn í þær öfgar; poppmenningin í
Ameríku og norræn handverkshefð
að heiman. Þannig verður til eitt-
hvað nýtt.“
Býr í eldgamalli kirkju
Hrafnhildur er móðir tveggja
barna, sjö og tíu ára. Fjölskyld-
an býr í 150 ára gamalli kirkju í
Greenpoint sem var afhelguð fyrir
löngu og fyrst gerð að smíðaverk-
stæði. „Þetta er nánast eins og að
búa í hlöðu úti í sveit en samt erum
við í miðju Brooklyn,“ segir Hrafn-
hildur sem kveðst vera líka með
gott stúdíó í gömlu kirkjunni. Hún
kveðst koma með alla fjölskylduna
til Íslands árlega en vera ein á ferð
núna. „Ég fer út aftur 3. desember.
Bý bara hjá mömmu og pabba núna
og leik gráhærðan ungling,“ segir
hún hlæjandi. „Svo er ég svo hepp-
in að Brynhildur Þorgeirsdóttir
myndlistarkona lánaði mér vinnu-
stofuna sína til að undirbúa sýn-
inguna. Þetta er örugglega besta
vinnustofa á Íslandi, með útsýni
til Esjunnar og hér geng ég í allt.
Mér finnst líka gaman að vinna
með þessu nýja galleríi, Hverfis-
galleríi.“
Sýningin verður opnuð á laug-
ardaginn, 29. nóvember, milli
klukkan 16 og 18 og á sunnudaginn
klukkan 14 ætlar Hrafnhildur að
hefja spjall við gesti en sýningin
stendur út janúar 2015.
Gráhærður unglingur
í foreldrahúsum
Hrafnhildur Arnardóttir myndlistarkona opnar sýninguna Tilfelli og Ný loðverk í
Hverfi sgalleríi á laugardag. Þar takast á fegurð og ljótleiki með léttum undirtóni.
Hrafnhildur hefur sýnt reglulega á Íslandi og í söfnum og galleríum víðs-
vegar um heim, meðal annars í MoMA í New York, Museum für Ange-
wandte Kunst í Frankfurt í Þýskalandi og á Liverpool-tvíæringnum í
Englandi. Árið 2011 hlaut hún Norrænu textílverðlaunin og sama ár veitti
Svíakonungur henni orðu Prins Eugen fyrir framlag hennar til myndlistar.
SÝNIR HINGAÐ OG ÞANGAÐ
LISTAKONAN „Það er gaman að nota ómerkilegan efnivið í eitthvað sem fær nýja meiningu. Þetta er voða mikill efnisleikur,“
segir Hrafnhildur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EITT VERK-
ANNA
„Mosa- og
gróðurstemn-
ing þótt litirnir
séu aðrir en í
náttúrunni.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
MENNING