Fréttablaðið - 26.11.2014, Síða 48

Fréttablaðið - 26.11.2014, Síða 48
26. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 28 BAKÞANKAR Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Öllu verður tjaldað til á tónleikum Ásgeirs Trausta í Sheperd’s Bush Empire í London í kvöld. Lúðra- hljómsveit frá Íslandi fór með flugi út til að spila á tónleikunum, auk ljósamanns. Þegar mest lætur verða 25 manns á sviðinu en stað- urinn tekur um tvö þúsund manns. Stephan Stephensen úr GusGus verður einnig á svæðinu sem sér- legur ráðgjafi enda hefur hann mikla reynslu af stórum tónleikum sem þessum. Uppselt er á tónleika Ásgeirs í óperuhúsinu í Sydney og í Liquid Room í Tókýó í janúar og hefur aukatónleikum verið bætt við á báðum stöðum. 25 manns á sviði í London Sá yðar sem syndlaus er Það er ekki upp á þjóð mína logið þegar hún finnur lykt af pólitísku blóði. Þessi kalda upplifun mín hreiðrar um sig í hjarta mínu, meðan ég fylgist með umfjöllun um lekamálið svokallaða. Vissulega er ég kátur yfir því að málið skuli til lykta leitt. Að sannleikurinn hafi litið dagsins ljós. En það eru viðbrögðin við þessum mannlega harm- leik, sem þarna átti sér stað, sem hrella mig. BÚIÐ er að koma fórnarlömbum í hringinn eins og syndugu konunni forðum. Þótt Gísli Freyr hafi gengist við mistökum sínum og Hanna Birna hafi sagt af sér, þá er kastað og kastað. Stærstu hnullungarnir koma á kommentakerfum. En mér finnst eins og völur fljúgi úr höndum fjölmiðlamanna. Við erum ekki aðeins að tala um pólitískt skítkast sem búið er að finna bólusetn- ingu við fyrir löngu heldur stendur nú einnig lítt reynt fólk í skotlínunni. ÞEIR sem hafa efni á því að kasta, hljóta að vera menn sem aldrei hafa gert mistök, sem sá fékk að gjalda fyrir sem síst skyldi. Þeir hafa því aldrei og myndu væntanlega aldrei láta sér til hugar koma að reyna að hylma yfir slík mistök. ÞETTA hlýtur að vera fólk sem kann að gefast upp í fullkominni auðmýkt. Kann að gera andstæðingi sínum til geðs, þegar það játar sig sigrað. ÞETTA hlýtur að vera fólk sem ekki hefði dottið í hug að veita aðstoðar- manni ráðherra þessar margumræddu upplýsingar. Það hefði stoppað aðstoðar- manninn af, sagt honum að koma með skriflega beiðni frá ráðherranum sjálf- um. ÞETTA hlýtur að vera fólk, sem aldrei hefur sagt neitt, sem í fyllingu tímans virtist svo kannski rangt eða óþægi- legt. Það getur því sveiflað gömlu tíma- riti eins og snöru um höfuð þess sem breyskari er í þessum efnum. ÞETTA hlýtur að vera fólk sem lætur ekki breyskleikann afvegaleiða sig. Það sér alla hluti fyrir. EN það sem ég skil ekki er af hverju þetta flekklausa fólk, sem svona kastar, þessir sem eru fullnuma í stjórnsýslu og mannlegum samskiptum, skuli eiga svona hræðilega erfitt með að fyrirgefa. TÓNLIST ★★★★★ Rökrétt framhald Grísalappalísa 12 TÓNAR Rökrétt framhald er önnur breiðskífa Grísalappalísu en fyrsta skífan, Ali, féll nokk- uð í skugga framúrskarandi frammistöðu hljómsveitar- innar á fjölmörgum tón- leikum undanfarin miss- eri, sem hafa vakið verðskuldaða athygli. Var sveitin til að mynda mesta uppáhald David Fricke, ritstjóra Rolling Stone-tímaritsins, á nýafstaðinni Airwaves-hátíð, sem kemur ef til vill ekki á óvart ef tekið er tillit til standpín- unnar sem Hr. Fricke hefur haft yfir Gunn- ari Ragnarssyni söngvara, allt frá tímum Jakobínarínu. En hei, það er ekkert nema skiljanlegt. Tónlist, og sérstaklega tónleikar, Grísalappalísu er hlaðin óútskýranlegri orku, mystískri og kynferðislegri. Fyrsta lagið á plötunni er einmitt stútfullt af hómó erótískri ást í samfaratakti, „Sam- býlismannablús“. Grátbroslegur textinn segir frá brothættu en jafnframt fallegu sambandi tveggja karlmanna sem gefur tóninn fyrir skífuna alla, sem er glettinn óður til djamms- ins og Reykjavíkurborgar – sem allir vilja flýja að lokum, þótt flóttinn geti verið fullur af ævintýrum. „Allt má (má út) II: Íslands er lag“ er af sama meiði, inniheldur línurnar „ég dreg létt andann / drekk landann / sef út og snúsa vandann“. Yndislegt! Það má einnig sérstak- lega minnast á trommur og slagverk í laginu. Greinilegum áhrifum þýsku krautrokksveit- innar Can er vel komið til skila og engu lík- ara en Jaki Liebezeit sé sjálfur að (mjúklega) lemja húðirnar. Lagið „ABC“ sýnir breidd sveitarinnar þegar hún bregð- ur sér í ska-gír; partíið er að byrja, ástin liggur í loftinu og þér er boðið að vera með, því allt getur skeð. Hér með er mælt með því að sem flestir þekkist boðið, ekki síst þar sem næsta lag, „Flýja“, er hreint út sagt meistaraverk. Flótti frá Reykjavík og gljá- lífi hennar er uppistaða textans en galdurinn er hvernig flótt- inn dansar við taktinn, við mel- ódíuna, einhvers konar Neu!-leg Hallagallo-veisla. Það er eins og setið sé í bíl sem er á leið út í buskann á þýskri hraðbraut; Bílferðin endalaus, taktföst, fábreytt og stór- brotin á sama tíma, hæg jafnt sem hröð. Þá eru ónefndar strengjaútsetningarnar í seinni hluta lagsins sem eru á við frambærileg- ustu spretti L’histoire de Melody Nelson eftir Gainsbourg. Þetta er lag sem menntaskóla- nemendur framtíðarinnar eiga eftir að „upp- götva“ kynslóð eftir kynslóð. Bravó! Í næstu lögum kemur þriðja þemað nánar í ljós, sem er ástin. Póstmódernísk, brotin frá upphafi, lituð af tilfinningum sem gátu ekki enst, minningum sem hurfu, eða aldrei urðu. Þetta er sérstaklega áberandi í laginu „Vonin blíð“ sem er melódískt og fallegt en það er texti Baldurs Baldurssonar sem grípur hlustandann. Nú hefur flóttinn frá Reykjavík verið fullkomnaður, sólarströndin blasir við: „Campari sólsetur / við völdum okkur leið – áfram / en drógumst aftur úr,“ einlægar línur um ást sem er að renna úr greipum elskend- anna. Rökrétt framhald er rökrétt framhald. Grísalappalísa sýnir meiri breidd en á fyrri plötu og vopnabúr sveitarinnar er spikfeitt. Krafturinn sem einkennir sveitina á tón- leikum kemst vel til skila án þess að dregið sé úr mikilvægi þess fyrir tónlistarperra að berja hana augum. Skífan er ekki gallalaus en hæstu punktar hennar eru á við það besta í íslenskri tónlistarsögu. Björn Teitsson NIÐURSTAÐA: Rökrétt framhald er rökrétt fram- hald. Hæstu punktar skífunnar eru með því besta í íslenskri tónlistarsögu. Viltu ekki vera með? GRÍSALAPPALÍSA Gunnar Ragnarsson og Baldur Baldursson eru meðlimir hljómsveitarinnar. Almenningur er hvattur til að taka þátt í örmyndahátíð sem stendur yfir á netinu þangað til um miðjan desember. Um er að ræða mynd- bönd sem eru fimm mínútna löng eða styttri. Halldóra Baldursdóttir og Harpa Fönn Sigurjónsdóttir eru umsjónar menn keppninnar. „Það eru allir að taka upp örmyndir á símana sína í dag. Tæknin er orðin þannig að það geta í raun allir tekið upp sínar hugmyndir,“ segir Hall- dóra en hægt er fylgjast með henni á Facebook-síðu keppninnar og á vefsíðu RÚV. Hátíðin var í fyrsta sinn haldin í fyrra og þá bar Heimir Gestsson sigur úr býtum fyrir myndina Kjöt. „Í fyrra voru send 72 myndbönd í heildina og ég held að það sé verið að slá það met núna,“ segir hún. - fb Örmyndir á símana Almenningur er hvattur til að senda inn myndbönd. HALLDÓRA OG HARPA FÖNN Umsjónar- menn örmynda- hátíðar sem er haldin í annað sinn í ár. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is ÁSGEIR TRAUSTI Tónlistarmaðurinn spilar í London í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI THE MATCH FACTORY presents a PROTON CINEMA production IN CO-PRODUCTION WITH POLA PANDORA, CHIMNEY, FILMPARTNERS, ZDF/ARTE, FILM I VAST Cast ZSÓFIA PSOTTA, LUKE AND BODY, SÁNDOR ZSÓTÉR, SZABOLCS THURÓCZY, LILI MONORI, LÁSZLÓ GÁLFFI Director KORNÉL MUNDRUCZÓ ∙ Screenplay KATA WÉBER, KORNÉL MUNDRUCZÓ, VIKTÓRIA PETRÁNYI ∙ Cinematographer MARCELL RÉV ∙ Music ASHER GOLDSCHMIDT Production Designer MÁRTON ÁGH ∙ Costume Designer SABINE GREUNIG ∙ Hair/Make Up OLIVER ZIEM-SCHWERDT ∙ Sound THOMAS HUHN, GÁBOR BALÁZS Editor DÁVID JANCSÓ ∙ Animal coordinator TERESA ANN MILLER ∙ Hungarian lead trainer ÁRPÁD HALÁSZ ∙ Producer VIKTÓRIA PETRÁNYI ∙ Co-producers KARL BAUMGARTNER, MICHAEL WEBER, VIOLA FÜGEN, FREDRIK ZANDER, GÁBOR KOVÁCS, JESSICA ASK ∙ Executive Producer ESZTER GYÁRFÁS ∙ Associate Producer MALTE FORSSELL, ALEXANDER BOHR ∙ Line Producer JUDIT SÓS Supported by the HUNGARIAN NATIONAL FILM FUND, EURIMAGES, MEDIENBOARD BERLIN-BRANDENBURG, SWEDISH FILM INSTITUTE 2014 © Proton Cinema, Pola Pandora, Chimney a film by KORNÉL MUNDRUCZÓ W HI T E G ODL’ELISER D’AMORE KL. 19.15 MOCKINGJAY PART1 KL. 5.15 - 8 - 10 DUMB AND DUMBER KL 5.15 - 8 - 10.45 ST. VINCENT KL. 10.30 NIGHTCRAWLER KL. 5.15 - 8 GRAFIR OG BEIN KL. 10.30 MOCKINGJAY KL. 5.15 - 5.45 - 7 - 8 - 8.30 - 10.40 - 23.10 MOCKINGJAY LÚXUS KL. 5.15 - 8 - 10.40 DUMB AND DUMBER KL.4.30 - 5.30 - 8 - 10.20 GONE GIRL KL.10 KASSATRÖLLIN ÍSL TAL 2D KL. 3.30 ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK EMPIRE NEW YORK POST T.V. SÉÐ & HEYRT TIME OUT LONDON 5:30, 8, 10:30(P) 5:40, 8, 10:20 8, 10:30 5:50

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.