Fréttablaðið - 26.11.2014, Side 50
26. nóvember 2014 MIÐVIKUDAGUR
| SPORT | 30
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
HANDBOLTI Ísland átti fulltrúa
á HM í handbolta í Katar löngu
áður en íslenska landsliðið fékk
sætið „gefins“ á föstudaginn. Aron
Kristjánsson, þjálfari íslenska
handboltalandsliðsins, verður
nefnilega einn af fjórum íslensk-
um þjálfurum á mótinu.
Guðmundur Guðmundsson var
fyrstur inn á mótið þegar hann
tók við danska landsliðinu af Ulrik
Wilbek eftir EM í Danmörku í árs-
byrjun.
Patrekur Jóhannesson bætt-
ist í hópinn í júní þegar austur-
ríska landsliðið sló Norðmenn út í
umspili um sæti á mótinu. Austur-
ríki tryggði sér sætið með því að
ná jafntefli í seinni leiknum í Nor-
egi.
Dagur Sigurðsson varð sá þriðji
þegar hann tók við þýska landslið-
inu í ágústmánuði en Þjóðverjar
höfðu þá fengið gefins sæti á HM
þrátt fyrir að hafa ekki komist í
gegnum umspilið í júní.
Aron og íslenska landsliðið
fengu síðan farseðilinn sinn á
föstudaginn var og um leið átti
Ísland flesta þjálfara á 24. heims-
meistaramótinu í handbolta karla.
Fyrir ákvörðun framkvæmda-
ráðs IHF og áður en Sameinuðu
arabísku furstadæmin hættu við
þátttöku áttu Spánverjar flesta
þjálfara á móti eða fjóra talsins,
einum fleiri en Ísland.
Spánverjar misstu einn þjálfara
eftir fund framkvæmdaráðs IHF
en Króatar voru nú komnir með
þrjá þjálfara eins og Spánn. Ísland
var hins vegar komið á toppinn
með fjóra HM-þjálfara og verð-
ur þar væntanlega fram að móti
verði engar breytingar á þjálfara-
stöðu landsliðanna 24.
Guðmundur Guðmundsson er
elstur af íslensku þjálfurunum á
HM í Katar en hinir þrír eiga það
sameiginlegt að hafa spilað fyrir
Guðmund á stórmóti. Patrekur,
Dagur og Aron voru allir undir
stjórn Guðmundar á EM 2002 og
HM 2003 og Patrekur og Dagur
spiluðu fyrir hann á EM 2004.
Dagur var síðan síðastur af þeim
þremur til að spila fyrir Guðmund
á stórmóti þegar hann var fyrir-
liði íslenska landsliðsins á Ólymp-
íuleikunum í Aþenu 2004.
Dagur, Patrekur og Guðmund-
ur hafa allir eða eru að fara skrifa
sig inn í íslensku handboltasög-
una.
Dagur Sigurðsson varð fyrstur
íslenskra þjálfara til að fara með
aðra þjóð á stórmót þegar hann
stýrði austurríska landsliðinu á
EM 2010. Dagur náði meðal ann-
ars jafntefli á móti íslenska lands-
liðinu í riðlakeppninni.
Patrekur er fyrsti íslenski þjálf-
arinn sem fer með annað landslið
en Ísland á tvö stórmót í röð en
hann var með Austurríkismenn á
EM í Danmörku í byrjun ársins og
kom liðinu á HM í Katar. Patrek-
ur er líka eini þjálfarinn sem kom
sínu liði á heimsmeistaramótið í
Katar. Þjóðverjar og Íslendingar
fóru hvorir tveggja bakdyramegin
inn og Danir tryggðu sér sætið á
HM með því að komast í úrslita-
leikinn á EM í janúar en þá þjálf-
aði Ulrik Wilbek liðið.
Dagur og Guðmundur verða enn
fremur fyrstu íslensku þjálfararn-
ir sem ná því að stjórna tveimur
landsliðum á stórmóti. Dagur mun
þá hafa farið bæði með lið Austur-
ríkis og Þýskalands á stórmót en
Guðmundur á að baki níu stórmót
sem þjálfari íslenska landsliðsins.
HM í Katar verður því tíunda stór-
mót hans sem landsliðsþjálfara en
þó aðeins þriðja heimsmeistara-
mótið.
Íslenskir þjálfarar eru í þrem-
ur af fjórum riðlum keppninnar
og það verður Íslendingaslagur
í riðlakeppninni þegar lið Guð-
mundar og Dags mætast í 3.
umferð. Nú er að sjá hversu langt
Íslendingaliðin komast í Katar og
það er alveg hægt að leyfa sér að
dreyma um íslenskan úrslitaleik.
SPORT
Ísland á fl esta þjálfara á HM
Eft ir að íslenska handboltalandsliðið fékk sæti á HM í handbolta í Katar í janúar er ljóst að fj órir íslenskir
þjálfarar verða í eldlínunni á mótinu. Engin önnur þjóð á svo marga þjálfara á heimsmeistaramótinu í ár.
ARON
KRISTJÁNSSON
þjálfari Íslands 42 ára
þjálfar einnig KIF Kolding í
Danmörku
Hefur þjálfað Ísland frá 2012
Þriðja stórmótið
Besti árangur 5. sæti á
EM 2014 (með Íslandi)
Spilaði á þremur
stórmótum með
Íslandi
GUÐMUNDUR
GUÐMUNDSSON
þjálfari Danmerkur 54 ára
þjálfaði Rhein Neckar Löwen í Þýska-
landi þar til í vor
Hefur þjálfað Danmörku frá 2014
Tíunda stórmótið
Besti árangur 2.
sæti á ÓL 2008 (með
Íslandi)
Spilaði á fj órum
stórmótum
með Íslandi
PATREKUR
JÓHANNESSON
þjálfari Austurríkis 42 ára
þjálfar einnig Hauka á Íslandi
Hefur þjálfað Austurríki frá 2011
Þriðja stórmótið
Besti árangur 11.
sæti á EM 2014 (með
Austurríki)
Spilaði á níu
stórmótum
með Íslandi
DAGUR
SIGURÐSSON
þjálfari Þýskalands 41 árs
þjálfar einnig Füchse Berlin í Þýska-
landi
Hefur þjálfað Þýska-
land frá 2014
Annað stórmótið
Besti árangur 9.
sæti á EM 2010 (með
Austurríki)
Spilaði á níu
stórmótum
með Íslandi
ÍSLAND MEÐ FLESTA ÞJÁLFARA Á HM Í HANDBOLTA Í KATAR 2015
ÍSLAND
ÞÝSKALAND
DANMÖRK
AUSTURRÍKI
SPÁNN
KRÓATÍA
Óskar Ó.
Jónsson
ooj@frettabladid.is
MANOLO CADENAS
þjálfari Spánar
VALERO RIVERA
þjálfari Katar
JORDI RIBERA
þjálfari Brasilíu
SPÆNSKIR þjálfarar á HM
KRÓATÍSKIR þjálfarar á HM
SLAVKO GOLUZA
þjálfari Króatíu
NENAD KLJAIĆ
þjálfari Sádí-Arabíu
SEAD HASANEFENDIC
þjálfari Túnis
FÓTBOLTI Brynjar Gauti Guðjóns-
son samdi við Íslandsmeistara
Stjörnunnar til tveggja ára í gær, en
miðvörðurinn öflugi úr Ólafsvík hefur
spilað með ÍBV undanfarin fjögur
tímabil í Pepsi-deildinni. Hann kemur
til með að fylla skarð Danans Martins
Rauschenberg sem er að reyna fyrir
sér á Norðurlöndum.
„Þetta er virkilega flottur klúbbur
og hér er mikill metnaður. Mér líst
bara vel á Rúnar, þjálfarateymið,
aðstöðuna og þeirra áætlanir,“ sagði
Brynjar Gauti við íþróttadeild 365
eftir undirskriftina í gær.
„Ég átti mjög góðan tíma í Eyjum
og hef ekkert nema góða hluti um
Eyjamenn að segja. En það hefur allt
sinn tíma og ég fann það í sumar að
það var kominn tími á nýja áskorun,“
bætti hann við.
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari
Stjörnunnar, fagnaði því að fá
Brynjar Gauta til liðs við sig. „Við
settumst niður með honum fyrir
nokkrum vikum og kynntum hann
fyrir klúbbnum. Honum hefur litist
vel á það,“ sagði Rúnar sem telur
Ólsarann greinilega ekki vera neinn
meðalmann miðað við orð hans um
mögulegan liðsstyrk Stjörnunnar.
„Við erum með frábæran hóp eins
og staðan er núna og við ætlum ekki
að sækja neina meðalmenn heldur
góða stráka sem styrkja okkur,“ sagði
Rúnar Páll Sigmundsson. - tom
Brynjar Gauti enginn meðalmaður
KOMINN Í BLÁTT Brynjar Gauti
Guðjónsson í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI FH-ingar festu í gær kaup á varnarmann-
inum Þórarni Inga Valdimarssyni frá ÍBV. Kaupverðið
fékkst ekki uppgefið en Þórarinn Ingi átti eftir eitt
ár af samningi sínum við ÍBV.
Hann er annar leikmaðurinn sem FH fær til sín í
haust en áður hafði Finnur Ólafsson komið frá Breiðabliki.
Þórarinn Ingi er 24 ára gamall og á að baki 133 leiki í
deild og bikar fyrir ÍBV en hann hefur skorað í þeim 20
mörk.
Hann á þar að auki einn leik að baki með A-lands-
liði Íslands en hann var í landsliðshópi Íslands nú síðast
í haust. Hann á einnig að baki eitt og hálft tímabil í
Noregi þar sem hann lék með Sarpsborg.
Eins og fram kemur hér til hliðar á síðunni missti ÍBV
annan varnarmann úr sínum röðum í gær er Brynjar Gauti
Guðjónsson gekk í raðir Stjörnunnar. - esá
Þórarinn Ingi til FH
FÓTBOLTI Argentínumaðurinn
Lionel Messi bætti enn einu
metinu í safnið er hann skoraði
þrennu í leik Barcelona gegn
APOEL FC frá Kýpur í Meistara-
deild Evrópu í gær.
Fyrir leikinn var hann jafn
Spánverjanum Raul en báðir
höfðu skorað 71 mark í Meist-
aradeildinni á ferlinum. En með
þrennu sinni á Messi nú metið
einn og stendur það nú í 74 mörk-
um.
Luis Suarez skoraði fyrsta
markið í 4-0 sigri Barcelona á
Kýpur í gær en það var hans
fyrsta fyrir félagið eftir að hann
tók út langt leikbann í haust.
Cristiano Ronaldo, leikmaður
Real Madrid, kemur svo næstur á
eftir Raul með 70 mörk og á hann
því möguleika að saxa á forystu
Messis er lið hans mætir Basel í
Sviss í kvöld.
Messi var einnig í sviðsljós-
inu um helgina en þá varð hann
markahæsti leikmaður spænsku
úrvalsdeildairnnar frá upphafi er
hann skoraði þrennu í deildarleik
gegn Sevilla. - esá
Messi bætti
markametið
ÓTRÚLEGUR Lionel Messi er nú
kominn með 74 mörk í Meistaradeild
Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÚRSLIT
MEISTARADEILD EVRÓPU
E-RIÐILL
CSKA MOSKVA - ROMA 1-1
BAYERN MÜNCHEN - MAN. CITY 2-3
0-1 Sergio Agüero, víti (21.), 1-1 Xabi Alonso (40.),
1-2 Robert Lewandowski (45.), 2-2 Sergio Agüero
(85.), 3-2 Sergio Agüero (90.).
Staðan: Bayern 12 stig, Roma 5, CSKA 5, City 5.
F-RIÐILL
APOEL NICOSIA - BARCELONA 0-4
0-1 Luis Suarez (27.), 0-2 Lionel Messi (38.), 0-3
Lionel Messi (58.), 0-4 Lionel Messi (87.).
PSG - AJAX 3-1
1-0 Edinson Cavani (33.), 1-1 Davy Klaassen (67.),
2-1 Zlatan Ibrahimovic (78.), 3-1 Edinson Cavani
(83.).
Staðan: PSG 13, Barcelona 12, Ajax 2, APOEL 1.
G-RIÐILL
SCHALKE - CHELSEA 0-5
0-1 John Terry (2.), 0-2 Willian (29.), 0-3 Jan
Kirchhoff, sjálfsmark (44.), 0-4 Didier Drogba (76.),
0-5 Ramires (78.).
SPORTING - MARIBOR (2-1)
Leiknum var ekki lokið þegar Fréttablaðið fór í
prentun.
H-RIÐILL
BATE BORISOV - FC PORTO 0-3
SHAKHTAR DONETSK - ATL. BILBAO 0-1
Staðan: Porto 13, Shakhtar 8, Athletic 4, BATE 3.