Fréttablaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 18
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 18
Fyrirbyggjandi aðgerðir gegn
jarðvegs- og gróðureyðingar kosta
aðeins tíunda hluta þess sem að-
gerðir við landgræðslu kosta þegar
allt hefur snúist til verri vegar. Illa
leikið land hefur áhrif á veðurfar,
kemur við sögu náttúruvár, skiptir
meginmáli hvað fuglalíf varðar sem
og viðkoma fiskistofna í ferskvatni.
Eftir miklu að slægjast
Stór hluti þeirra vistkerfa sem ein-
kenndu Ísland við landnám hafa
glatast og búsvæði fjölbreyttra líf-
vera hefur hnignað í beinu sam-
hengi. Mikilvægi þess starfs sem
lýtur að því að endurheimta gróð-
ur- og jarðvegsauðlindir landsins er
óumdeilt, en fáir hafa það kannski
hugfast eftir hversu miklu er að
slægjast – bæði í lífsgæðum og fjár-
hagslega.
Eins og Fréttablaðið hefur greint
frá hefur Sigurður Ingi Jóhanns-
son, umhverfis- og auðlindaráð-
herra, ákveðið að hefja vinnu við
frumvarp að nýjum lögum um land-
græðslu. Núgildandi lög voru stað-
fest í apríl 1965, og því löngu tíma-
bært að endur skoða þau. Miðað er
við að frumvarp til nýrra laga verði
lagt fyrir næsta haustþing.
Þrátt fyrir að gróðurfar á láglendi
hafi styrkst með betri tíð, verður
ekki litið fram hjá því að heildarút-
tekt Landgræðslunnar á gróðurfari
landsins sýnir að græða þyrfti upp
rúma milljón hektara lands [10.000
ferkílómetra] neðan 500 metra
hæðar línunnar, en almennt er ekki
hugsað um landgræðslu ofar þeirri
línu. Af þessari milljón hektara er
mjög brýnt að ráðast í að græða
500.000 hektara, en árlega höfum
við Íslendingar verið að vinna í
landgræðslu á um 12.500 hekturum
lands á ári, og er þá allt talið. Þá er
náttúrulega óskert vistkerfi ekki
víða að finna á landinu en auðnir og
illa gróin svæði þekja nú um 40.000
ferkílómetra lands.
Heldur ekki vatni
Guðmundur Halldórsson, rann-
sóknarstjóri hjá Landgræðslunni,
segir að gríðarlega margt hafi tap-
ast; Íslendingar hafi lifað af þurr-
lendisvistkerfum landsins um
aldir og álagið hafi tekið sinn toll.
„Í raun hafa tapast mikil gæði sem
koma ekki aftur, það er alveg klárt.
Gróðurinn hefur svo mikla þýðingu
fyrir dýrategundina manninn. Við
áttum okkur ekki oft á því að þegar
gróður hvarf af hálendinu hafði það
töluverð áhrif á veðurfar. Þetta hafa
rannsóknir sérfræðinga Veðurstofu
Íslands sýnt fram á. Meðal þess sem
tengist því er hversu miklu hraðar
sandarnir hitna en gróið land. Það
hefur líka áhrif á vatnafar. Þegar
gróður hverfur þá heldur landið
ekki vatninu, sem á skömmum tíma
hverfur í næsta árfarveg og til sjáv-
ar. Þetta skiptir gríðarlega miklu
máli,“ segir Guðmundur.
Lax og silungur
Fiskgengd í ám er ekki það fyrsta
sem kemur upp í hugann þegar
gróðureyðing er til umfjöllunar, en
samhengið er engu að síður til stað-
ar. „Allar okkar bestu laxveiðiár
landsins renna annaðhvort af vel
grónum heiðum eða úr mjög nær-
ingarríkum stöðuvötnum. Á bak við
veiðiperlurnar sem renna í Húna-
flóa er Arnarvatnsheiðin, svo dæmi
sé tekið,“ segir Guðmundur.
Náttúruvá
Guðmundur segir að á meðal land-
græðslufólks sé samhengi gróð-
ureyðingar og náttúruvár mjög í
deiglunni. „Gróður getur haft áhrif
á afleiðingar eldgosa. Askan sem
fellur á ógróna jörð er að fjúka
fram og til baka um ár og aldir.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Tífalt dýrara að bíða en framkvæma
Þegar komið er að illa förnu landi vegna jarðvegs- og gróðureyðingar er endurheimt þess margfalt dýrari aðgerð en sú að koma í veg fyrir
skaðann í tíma. Eyðingaröflin láta fátt ósnert, hvort sem það eru lífsskilyrði fugla eða fiskurinn í ánum. Þau hafa líka áhrif á veðurfarið.
VIÐ HLÖÐUFELL Vegna þess hve jarðvegsrof hefur verið mikið á Íslandi má segja að rof og ummerki þess sé meðal þess sem helst einkennir íslenskar umhverfisaðstæður.
MYND/ÁSKELL
Land-
græðslufólk
er að sinna
bráðaþjón-
ustu en ekki
fyrirbyggj-
andi aðgerð-
um. Við eigum að spyrja
hvar hægt er að koma inn
fyrr til að styrkja svæði,
áður en allt er komið í
óefni og margfalt dýrara
að gera eitthvað af viti.
Guðmundur Halldórsson,
verkefnisstjóri hjá Landgræðslunni.
Hún stoppar ekki. Það er ástæða til
að beina augunum að þessum svæð-
um, og við þurfum að leggja miklu
meiri áherslu á þau. Við erum mest
að dútla við litla bletti, og kannski
má segja að við séum að slökkva
elda. Menn þurfa hins vegar lang-
tímaáætlanir og í samstarfi við
sveitarstjórnafólk skilgreina hver
þörfin er og nýta kraftana á skil-
virkari hátt. Jarðvísindafólkið
okkar hefur gert áætlanir um hvar
líklegast sé að falli aska og í raun
þarf landgræðslustarf að bein-
ast mun meira að því að við séum
á undan eyð ingar öflunum. Land-
græðslufólk er að sinna bráðaþjón-
ustu en ekki fyrir byggjandi aðgerð-
um. Við eigum að spyrja hvar hægt
er að koma inn fyrr til að styrkja
svæði, áður en allt er komið í óefni
og margfalt dýrara að gera eitthvað
af viti,“ segir Guðmundur.
Peningar
Spurður hversu miklu ódýrara það
sé að koma fyrr en seinna að upp-
græðslu landsvæða segir Guðmund-
ur að munurinn sé gríðarlegur.
Hektari lands þar sem aðeins þarf
að styrkja gróður með áburðargjöf
kostar helmingi minna en þar sem
bæði þarf áburð og grasfræ. Ef allt
er farið á versta veg er kostnaður-
inn að nálgast það að vera tífald-
ur, en þegar gengið er á Guðmund
giskar hann á að hektarinn kosti um
60 til 70 þúsund þegar aðeins þarf
áburð en hálfa milljón þegar beita
þarf öllum þeim úrræðum sem illa
farið land útheimtir. Ef menn vilja
leika sér með tölur þá má minna á
þá 500.000 hektara lands sem land-
græðslustjóri telur brýnt að ráðast
í að bæta sem allra fyrst – og hvað
aðgerðarleysi kostar.
Þrjú prósent eftir á Suðurlandi
Eins og Fréttablaðið hefur fjallað
um að undanförnu lýtur endur-
heimt vistkerfa á Íslandi ekki síst
að því votlendi sem ræst hefur verið
fram. Blaðið hefur nefnt dæmi um
að 3.900 ferkílómetrar hafi verið
þurrkaðir upp, en þá er ekki allt
talið. Þegar einstök landsvæði eru
skoðuð sérstaklega sést að í sumum
landshlutum hefur allt að 90% vot-
lendissvæða verið ræst fram. Ein-
ungis 3% alls votlendis á Suðurlandi
standa eftir óraskað og einungis
18% votlendis á Vesturlandi. Land-
búnaður er í einhverri mynd á 72%
af þeim svæðum sem eru flokk-
uð sem mikilvæg fuglasvæði en
stærsti hluti þeirra er votlendi. Yfir
90% íslenskra varpfugla, umferðar-
fugla og vetrargesta, byggja afkomu
sína að einhverju eða öllu leyti á vot-
lendi. Allt í allt er talið að 50-75%
alls votlendis á láglendi hafi verið
raskað meira eða minna.
Fyrir 2020
Í greinargerð starfshóps umhverfis-
ráðherra vegna vinnu við ný land-
græðslulög segir frá því að árið
1994 fullgilti Alþingi samning um
líffræðilega fjölbreytni. Í stefnu-
mörkun Íslands um framkvæmd
samningsins kemur fram það
megin markmið að „vernda og endur-
heimta líffræðilega fjölbreytni
Íslands og koma í veg fyrir frekari
skerðingu hennar, tryggja sjálfbæra
nýtingu lífríkisins og endur heimta
þá þætti þess sem spillst hafa eða
horfið vegna umsvifa mannsins“. Á
10. ársfundi aðildarríkja samnings-
ins í október 2010 náðist samkomu-
lag um framkvæmd samningsins
næstu tíu árin og í því felast nokkur
meginmarkmið.
Samkomulagið felur t.d. í sér að
dregið verði úr eyðingu búsvæða
um 50-100%, og að landbúnaðar- og
skógræktarsvæði séu nýtt á sjálf-
bæran hátt. Einnig að vistkerfi er
veiti nauðsynlega þjónustu varð-
andi vatn, lífsviðurværi og vel-
ferð séu endurheimt. Að síðustu má
nefna að stefnt er á að 15% laskaðra
svæða verði endurheimt í þeim lönd-
um sem fullgilt hafa samninginn –
fyrir árið 2020.
Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiði-
málastofnunar, segir ekkert ofsagt þegar
samhengi landgæða og vatnakerfa eru
til umræðu. „Árnar eru bara afrennsli
af landinu, og í veröldinni er frjósemi
vatna í beinu samhengi við gróður
á vatnasviðinu, og þar sem er mest
gróið hér á landinu er líka að finna fjöl-
skrúðugasta vatnalífið,“ segir Sigurður
en útskýrir að á Íslandi er tilbrigði við
þetta stef. Á jarðfræðilega yngsta hluta
landsins er árvatnið að ná í mikla nær-
ingu úr berggrunninum. Elliðaárnar eru
gott dæmi; regn fellur í Heiðmörk og
Bláfjöll sem hripar niður í jörðina og
rennur neðanjarðar um ungt óveðrað
berg og á þeirri leið hleður það í sig
miklu af efnum.
Sigurður segir ekki hægt að benda
á einstakar ár sem hafa misst sína
fiskistofna vegna rýrnunar lands, en
það sé engum vafa undirorpið að
þær ár sem njóta gróðursældar á sínu
vatnasviði gætu mjög misst spón úr
aski sínum við mikið landrof og gróður-
eyðingu. Hins vegar tapist gróður ekki
hratt á eldri hluta landsins, og það séu
góðu fréttirnar.
„Það er svo eitt sem fylgja þarf sög-
unni. Þar sem mestur sandur er getur
hann, og öskufall, lokað á öll búsvæði,
og í sandi þrífst fátt,“ segir Sigurður.
Fjölskrúðugt vatnalíf byggir á gróðri
Helstu alþjóðasamningar sem tengjast landgræðslu eru:
■ Samningur Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir gegn eyðimerkurmyndun
hefur verið í gildi hér á landi frá 1996. Samningurinn kveður einnig á um að
aðildarríkin starfi eftir sérstökum landgræðsluáætlunum sem hafi sjálfbæra
þróun að leiðarljósi.
■ Árið 1994 fullgilti Alþingi samning um líf-
fræðilega fjölbreytni. Þar segir að draga skuli
úr eyðingu búsvæða um 50 til 100%. Endur-
heimta skal 15% laskaðra svæða.
■ Rammasamningur Sameinuðu þjóðanna
um loftslagsbreytingar tók gildi hér landi
1994. Kyoto-bókunin við samninginn felur í sér
lagalega skuldbindandi ákvæði um samdrátt
í losun einstakra aðildarríkja. Landgræðsla
er skilvirk leið til að binda koltvísýring í gróðri og jarðvegi. Aðgerðaáætlun
Íslands í loftslagsmálum, sem samþykkt var 2010, felur í sér samdrátt í
nettólosun gróðurhúsalofttegunda um allt að 30% til ársins 2020.
■ Ísland er aðili að Ramsarsamningnum um votlendi, sem hefur það mark-
mið að stuðla að verndun og skynsamlegri nýtingu votlendissvæða, sér-
staklega alþjóðlegra mikilvægra búsvæða fyrir votlendisfugla. Áhersla er lögð á
mikilvægi þess að koma í veg fyrir tap votlendissvæða og koma á þjóðaráætl-
unum um endurreisn votlendissvæða.
Alþjóðasamningar og landgræðsla