Fréttablaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 38
FÓLK|
sig af öllu átinu,“ segir Guðrún.
Hún segir þó Korsíkubúa og Ís-
lendinga eiga margt sameigin-
legt. Bæði séu stoltar eyjaþjóðir.
„Fólkið þar er tengt náttúrunni
og margir eru bændur. Oft rekst
maður á kýr, svín og geitur á
veginum, eins og kindurnar hér
heima. Korsíkubúar eru líka
afar stoltir og vilja helst engu
breyta. Þeir eru mjög gestrisnir
og hafa tekið mjög vel á móti
okkur en þeir eru ekkert sérstak-
lega hrifnir af stórum verslunar-
keðjum og Korsíka er til dæmis
eina héraðið í Frakklandi sem er
ekki með McDonalds. Þeir borða
mikið kálfa- og geitakjöt og geita-
osta, pylsur og reykt kjöt eins og
hangikjötið okkar. Svo veiða þeir
mikið af villisvínum. Við búum í
litlum bæ niðri við ströndina og
finnst mjög notalegt að heyra í
sjónum á kvöldin. En ég hugsa
oft til Íslands. Í sumar rigndi ekk-
ert á Korsíku í þrjá mánuði og þá
saknaði ég íslenska veðurfars-
ins,“ segir Guðrún. „Draumurinn
er að vera á Íslandi á sumrin og á
Korsíku á veturna. Jólunum vild-
um við þó helst eyða á Íslandi og
áramótunum í Normandí, með
fjölskyldu Raphaels.“
GEFUR ÚT SÍNA FYRSTU BÓK
Guðrún og Raphael ætluðu sér að
búa í eitt ár á Korsíku en árin eru
orðin fimm. Raphael er sjúkra-
þjálfari en Guðrún sinnir mynd-
list og skriftum. Í jólabókaflóðinu
í ár er að finna fyrstu bók hennar,
barnabókina Agnarögn sem
fjallar um ævintýralegt ferðalag
lítillar agnar sem gleypt er af kú.
„Ég ætlaði alltaf í myndlist og
komst inn í fyrsta úrtakið í Mynd-
lista- og handíðaskólann á sínum
tíma. Ég missti hins vegar af inn-
tökuprófinu og skellti mér bara í
frönsku í staðinn, fór út til Frakk-
lands og í leiðsögunám. Eftir að
við fluttum til Korsíku fékk ég
lítið að gera og fór þá að sinna
myndlistinni. Þá hrinti ég líka
gamalli hugmynd í framkvæmd
og skrifaði bók sem byggir á sög-
um sem ég sagði leikskólabörn-
um við matarborðið, en ég vann
á leikskóla í nokkur ár. Sögurnar
voru gjarnan um matinn, hvernig
eitt lítið korn verður að brauði
og upp úr þessu varð Agnarögn
til. Sagan fjallar um hvernig við
sjálf og allt í kringum okkur er
samsett úr litlum ögnum, ferða-
lög þeirra og breytileika,“ segir
Guðrún og getur vel hugsað sér
að skrifa fleiri barnabækur.
„Mér fannst þetta mjög
skemmtileg vinna, á döfinni er að
mála og skrifa meira, milli þess
sem ég sinni góðum gestum. Það
er mjög vinsælt að heimsækja
okkur til Korsíku á sumrin, eins
og gefur að skilja,“ segir hún
hress. ■ heida@365.is
Talsverða natni þarf til að búa til súrdeigsmóður. Sumir jafna því við að
fá viðkvæmt gæludýr inn á heimilið sem sinna þurfi nótt og dag. Súr-
deigsbrauð með stökkri skorpu eru þó svo bragðgóð að vel má leggja á
sig vinnuna við að búa það til.
Eftirfarandi leiðbeiningar til að búa til súrdeigsmóður heima eru fengn-
ar af síðunni www.foodtravelthought.com.
DAGUR 1. KLUKKAN 9.30
Blandið 400 g af rúgmjöli og 400 g af hveiti í box. Þetta verður blandan sem
notuð verður til að fóðra súrdeigsmóðurina. Með því að eiga þetta tilbúið er
fljótlegt að fóðra.
Finnið til hreina glerkrukku og vigt og setjið 40 g af rúgmjöls/hveitiblöndunni í
krukkuna
Hellið 40 g af volgu vatni og hrærið vel þar til mjölið er leyst upp.
Setjið á hlýjan, skuggsælan stað.
DAGUR 2. 9:30
Nú er komið að fyrstu fóðrun. Loftbólur ættu að vera í súrnum í krukkunni. Hendið
helmingnum úr krukkunni og fóðrið súrinn með 40 g af mjölblöndunni og 40 g af
vatni og hrærið vel saman.
ENDURTAKIÐ Á DEGI 3. 4. OG 5.
DAGUR 6.
Nú er súrinn fóðraður tvisvar, að morgni eins og venjulega og svo aftur átta
klukkustundum síðar, ef þú sérð litlar loftbólur um allt, ris eða fall í krukkunni.
DAGUR 7. FÓÐRA ÞRISVAR
Fóðrið að morgni eins og venjulega. Um miðjan dag ætti að fóðra súrinn aftur.
Um kvöldið um það bil 12 tímum eftir fyrstu fóðrun mætti fóðra í þriðja sinn.
Á ÁTTUNDA DEGI ER SVO HÆGT AÐ BAKA FYRSTA SÚRDEIGSBRAUÐIÐ.
SÚRDEIGSMÓÐIR
VERÐUR TIL
Nýbakað Súrdeigsbrauð með fersku
áleggi
Súrdeigsmóðir í vinnslu en nokkra
daga tekur að búa hana til.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447
fonix.is Hátúni 6a 105 Reykjavík S. 552 4420
Heimilistæki
Fæst í apótekum og heilsubúðum
P
R
E
N
T
U
N
.IS
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Virkar lausnir frá OptiBac
„One Week Flat“
Minnkar þembu og Vindgang
Öll börn eiga rétt á
Gleðilegum Jólum
www.hvitjol.is
Eitt kort
38 vötn
6.900 kr
www.veidikortid.is
00000
Aldrei fleiri vötn!
JÓLAGJÖF
VEIÐIMA
NNSINS!
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Save the Children á Íslandi
AGNARÖGN Sagan fjallar um litla ögn sem lendir í ótrúlegustu ævintýrum. Kýr gleypir
hana, hún hringsnýst í gegnum meltingarveginn og fer loks út með mjólkinni.
BARNABÓK Guðrún skrifaði ævintýrið um Agnarögn út frá sögum sem hún sagði
börnum við matarborðið þegar hún vann á leikskóla. Bókin er gefin út af Óðinsauga.
HEIMILI