Fréttablaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 26
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 26
ÁSTAND
HEIMSINS
6
MÁ BJÓÐA ÞÉR KÖKU? Rúmenar minntust þess í gær að aldarfjórðungur er liðinn frá því að íbúar landsins risu upp gegn einræðisherranum Nicolae Ceausescu og bundu enda á ógnarstjórn hans. Athafnir fóru fram
víða um land, meðal annars í höfuðborginni Búkarest þar sem eldri kona bauð hermönnum smá snarl. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐ KJÖRBORÐIÐ Síðari umferð fyrstu lýðræðislegu forsetakosninga Túnis fór
fram um helgina. Kosið var á milli Moncef Marzouki, sem var kosinn forseti af
stjórnlagaþingi landsins fyrir þremur árum, og Beji Caid Essebsi. Sá síðarnefndi
hlaut fleiri atkvæði í fyrri umferðinni. Á undan Marzouki sat einræðisherrann Zine
El Abidine Ben Ali sem forseti í 23 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
MÓTMÆLA FJÖLDAMORÐUM Mannfjöldi kom saman víða í Pakistan til að mót-
mæla voðaverkum talibana en hópur þeirra myrti ríflega hundrað börn í Peshawar
fyrir tæpri viku. Hryðjuverkasamtökin al-Kaída hafa fordæmt árásina og kallað hana
óíslamska. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VINSÆLL Pablo Iglesias er formaður
spænska vinstri flokksins Podemos.
Flokkurinn var stofnaður í upphafi árs
og náði átta prósenta fylgi í Evrópu-
kosningum þessa árs. Í skoðanakönnun-
um nú mælist flokkurinn stærsti flokkur
landsins. Flokksmenn vilja berjast
gegn spillingu og sækja þá til saka sem
komu landinu á hliðina. Podemos þykir
líklegur til afreka í þingkosningunum
sem eiga að fara fram í desember 2015.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
GJAFAÚTDEILING Alassane Ouattara, forseti Fílabeinsstrandarinnar, og Dominique
Ouattara, eiginkona hans, gefa börnum jólagjafir í garði forsetahallarinnar í Abidjan.
Um 3.000 börnum af fósturheimilum víðs vegar um landið var boðið í heimsókn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
MÚGUR OG MARGMENNI Þessi mynd sýnir Kim Jong-Un, forseta Norður-Kóreu, heimsækja vefnaðarverksmiðju í Pjongjang
kennda við Kim Jong-Suk, fyrstu eiginkonu Kim Il-Sung og móður Kim Jong-Il. Ekki er vitað hvenær myndin er tekin en hún er
fengin frá norðurkóreska ríkisfjölmiðlinum KNCA. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
1
4
2 53
1
2
3
4
5
6