Fréttablaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 22. desember 2014 | SKOÐUN | 31
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Jólaguðspjallið er saga um ljós
og myrkur. Þar sjáum við vald
og valdaleysi, fátækt og ríki-
dæmi, styrk og veikleika. Allt
fólkið í heiminum er þar and-
spænis einu litlu barni. Þetta
er saga um mátt hins veika og
magnleysi hins sterka. Þetta er
saga um lögmálin í lífinu.
Er hún sönn? Að sjálfsögðu.
„Gerðist“ hún? Það vitum við
ekki. En sönn er hún.
En það bar til um þessar mundir …
Strax í upphafi erum við minnt
á umsvif hins sterka sem bitna
á þeim veiku. Við erum stödd í
sjálfu heimsveldinu, Rómaveldi,
og Ágústus keisari, valdamesti
karl í víðri veröld, sendir „boð“
um að skrásetja alla heims-
byggðina – hvorki meira né
minna – til þess að geta lagt
skatt á hvert einasta vinnandi
mannsbarn, til að fjármagna
eigið gjálífi. Við fáum þannig
strax fram hið ýtrasta verald-
lega vald og sjáum hvernig það
ráðskast með þær manneskjur
sem undir því hafa lent.
Jósep og María eru án jarð-
næðis, ógift og án atvinnu. Þau
eiga ekkert, varla einu sinni
barnið sem María ber undir belti
því að þetta barn er Mannsson-
urinn og tilheyrir öllum. Þau eru
mannkynið, förufólk; hver sem
er; fólk sem við sjáum enn á ferð
um Jörðina í leit að staðfestu
og viðurværi og er illa tekið af
mörgum og vel af öðrum, allt
eftir því hvort fólk hefur tamið
sér að hafa kærleikann að leiðar-
ljósi eður ei.
Jólaguðspjallið er mýta. Og
mýtur hafa fylgt mannkyni frá
fyrstu tíð og eiga eftir að gera
það til hins efsta dags. Þær eru
einn farvegur mannlegrar hugs-
unar og skynjunar á heiminum
og lögmálum hans – og sínum
stað í sköpunarverkinu. Þær
glíma við tilvistarlegar spurn-
ingar sem leita á mennina frá
því að sjálfsvitund einstak-
lingsins vaknar. Þess vegna er
ekki kannski aðalatriði þess-
arar sögu hvort hún hafi gerst
þessu árinu fyrr eða síðar, hér
eða þar, með hinum eða þessum
nöfnum. Einblínum við á leit að
sögulegri staðfestingu þessara
sagna og almennt um líf og störf
Jesú á Jörðu hér er hætt við að
okkur yfirsjáist það erindi sem
þessar sögur eiga við okkur og
geyma í senn einfalda og skýra
kröfu um rétta breytni gagnvart
þeim sem á vegi okkar verða og
dæmisögur sem eru merkilega
opnar fyrir túlkun og vangavelt-
um, og snúast oftar en ekki um
þversagnir tilverunnar, án auð-
keyptra lausna.
Guð býr í gróandanum, amma
Jólaguðspjallið er um endur-
nýjunarmátt lífsins; það er um
ófætt vor sem býr í kvistum. Það
er um endurkomu sólarinnar.
Það er um sigur hins veika og
þjáða. Það er um eilíft líf. Það
er um lamb heimsins sem mun
koma og bera burt syndir heims-
ins. Það er um Góða hirðinn. Það
er um óskiljanlega huggun.
Þetta er einföld saga um
fátækt og vegalaust fólk á flótta-
mannaveginum sem fær inni í
fjárhúsi til þess að konan megi
fæða þar barn. Þessum barns-
burði er lýst sem óskiljanlegu
kraftaverki, jafnvel þótt ekki
sé til náttúrulegri og eðlilegri
atburður í mannlífinu en að
kona eignist barn. En sjálft
frumglæði ljóssins, frumorsökin
fyrir því að lífið kviknar, er enn
ráðgáta og sveipað leyndarhjúp
um aldur og ævi.
Fyrir flest okkar snúast jólin
um endurtekningu og einhvers
konar hringrás, og endurspegla
þannig lögmál lífs og dauða.
Mörg okkar hafa þetta fyrir
hátíð salts og sykurs; önnur
svalla í bókum; enn önnur leggj-
ast í spil. Mörgum finnst öllu
varða að halda í hefðir, bæði í
kosti og samveru, endurtaka
skref fyrir skref, mínútu fyrir
mínútu sömu jólin ár eftir ár,
sömu boðin með sama fólkinu að
segja sömu hlutina í sömu röð og
maulandi sömu sortir; og mess-
an í útvarpinu klukkan – og helst
með séra Hjalta að lesa Jólaguð-
spjallið með sinni hlýlegu nef-
tóbaksrödd: En það bar til um
þessar mundir …
En Guð almáttugur? Er hann
um þessar mundir? Ber hann
enn til? Býr hann í endurtekn-
ingunni, amma? Er Guð til? Í
þessari sögu er hann það já, og
hann er líka til sem veruleiki
í lífi og huga fjölmargra hér á
þessari Jörð, daglegur föru-
nautur og aflvaki. Við heyrum
stundum leikna auglýsingu í
útvarpinu þessa dagana þar sem
lítil stúlka var að biðja jólasvein-
inn um að passa pabba sinn í
vinnunni (í heimi auglýsinganna
vinna bara pabbar utan heimilis)
og gefa honum eitthvað óskiljan-
legt dót. Það sem er athyglis-
vert í auglýsingunni er hvernig
Jólasveinninn hefur þar tekið
svo að segja yfir athafnasvið
Guðs, ýtt honum burt og sest þar
sjálfur, rétt eins og gerðist með
ásum þegar Óðinn ýtti Tý burt
sem Guð hernaðar. Er kannski
Jólasveinninn síðustu leifarnar
af hefðbundinni gamalli guðstrú
á algóða og alvitra karlveru með
hvítt sítt skegg?
Má vera. Guð almáttugur er
að minnsta kosti fjarri í lífi fjöl-
margra, sem kæra sig ekki um
slíkt afl í tilveru sinni og kom-
ast prýðilega af án þess. En
sumt fólk sér hann í stokkum og
steinum, í vatninu sem rennur
og í tannlausu brosi barna og
öldunga. „Sá sem trúir á stein …
o.s.frv.“. Fólk sér hann í himin-
geimnum og finnur hann inni
í sér; og fólk sér hann í sólinni
sem lætur grasið gróa og rign-
ingunni sem kliðar góð á vor-
degi. Og fólk sér hann í verkum
hans, rétt eins og við sjáum
vindinn í því sem hann bærir, en
aldrei hann sjálfan.
Og í Jólaguðspjallinu, sem
byrjar þarna í miðjum klíðum,
á einhverju sem „bar til um
þessar mundir“, birtist Guð
okkur sem barn. Ekkert er veik-
byggðara og varnarlausara en
barn sem var að koma í heim-
inn. Ekkert er öflugra. Þetta er
fagnaðar erindið og við hneigjum
höfuðið í lotningu fyrir lífsafl-
inu sem hinum veraldlegu keis-
urum tekst vonandi aldrei að
eyða á þessari jörð.
Gleðileg jól.
Um þessar mundir
Jólaguðspjallið er
mýta. Og mýtur hafa
fylgt mannkyni frá fyrstu
tíð og eiga eftir að gera það
til hins efsta dags. Þær eru
einn farvegur mannlegrar
hugsunar og skynjunar á
heiminum og lögmálum
hans– og sínum stað í
sköpunarverkinu. Þær glíma
við tilvistarlegar spurningar
sem leita á mennina frá því
að sjálfsvitund einstaklings-
ins vaknar.