Fréttablaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 22.12.2014, Blaðsíða 60
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 52 Hætt hefur verið við sýningu á grínmyndinni The Interview, sem fjallar um tvo bandaríska blaða- menn sem þurfa að ráða Kim Jong- Un, einræðisherra Norður-Kóreu, af dögum. Norður-Kórea er sögð hafa hótað hryðjuverkaárásum á bíóhús þar vestra en hætt var við sýninguna eftir að tölvuþrjótar, sem líklega eru tengdir Norður- Kóreu, brutust inn í tölvukerfi Sony og láku kvikmyndum og tölvupósti. Í tilefni af ritskoðuninni á The Interview tekur Fréttablaðið hér saman nokkrar frægar myndir sem fóru í glatkistuna. Flestar eru enn ófáanlegar en nokkrar þeirra eru til í mismiklum gæðum. 9 TÝNDAR MYNDIR MEMORY OF THE CAMPS (1945) Alfred Hitchcock var fenginn til að framleiða þessa heimildarmynd sem klippt var saman úr upp- tökum banda- manna í útrýmin- garbúðum nasista og sýnd við Nürnberg-réttarhöldin. Kvikmyndaráð Bretlands ákvað að gefa hana ekki út þar sem hún gæti valdið fjaðrafoki gegn Þýskalandi og skemmt fyrir enduruppbyggingu eftir stríðið. Hægt er að finna útgáfu af myndinni á YouTube. SONG OF THE SOUTH (1945) Myndin Song of the South fjallar um fyrrverandi þrælinn Uncle Remus sem segir nokkrum börnum sögur af kanínunni Br‘er Rabbit og vinum hans í Suðurríkjum Banda- ríkjanna. Myndin var fordæmd af NAACP, réttindasamtökum svartra og forstjóri Disney, Robert Iger, kallaði hana „nokkuð móðgandi“. „Því miður dregur hún upp mynd af friðsælu sambandi meistara og þræls, sem er afbökun á staðreyndunum,“ sagði í tilkynningu NAACP. Myndin var aldrei gefin út á myndbandi í Bandaríkjunum. ONE AM (1968) Franski nýbylgju- meistarinn Jean- Luc Godard hélt til Bandaríkjanna árið 1968, handviss um að byltingin væri handan við hornið. Þar tók hann upp blöndu af leiknum atriðum og heimildarefni, til dæmis tónleika Jefferson Airplane á húsþaki í New York og skáldið Amiri Baraka að spila frídjass. Byltingin átti sér ekki stað og Godard skildi myndefnið eftir í Bandaríkjunum, sem var svo klippt og hrært saman af tökumann- inum D.A. Pennebaker. Hún var sýnd 1972 og féll í gleymsku. UNCLE TOM‘S FAIRY TALES (1969) Penelope Spheeris, þekktust fyrir Wayne‘s World, leikstýrði storkandi grínmynd með Richard Pryor í aðalhlutverki þar sem ríkum, hvítum manni er rænt af Svörtu hlébörðunum, sem rétta yfir honum á táknrænan hátt fyrir kynþáttahatur hvítra Bandaríkjamanna. Pryor rústaði filmunni í rifrildi við eiginkonu sína og ekki hefur náðst að endurklippa myndina síðan. COCKSUCKER BLUES (1972) Í heimildar- myndinni Cocksucker Blues er The Rolling Stones fylgt eftir á tónleikaferðalagi um Bandaríkin eftir að platan Exile on Main St. hafði komið út. Í myndinni er skyggnst baksviðs þar sem saurlífið var mikið en í einni senu sést til dæmis Mick Jagger sniffandi kókaín og í annarri sprautar grúppía sig með heróíni. Hljómsveitin ákvað að myndin væri of vandræðaleg og vildi ekki að hún væri sýnd. Myndin er nú fáanleg í lökum gæðum á netinu. THE DAY THE CLOWN CRIED (1972) Bandaríski grínistinn Jerry Lewis spreytti sig á kvikmynda- gerð með The Day the Clown Cried árið 1972. Þar lék hann þýskan trúð í útrýmingarbúðum nasista, sem skemmti gyðinga- börnum áður en þau voru send í gasklefana. Lewis hætti við að gefa hana út eftir að hann kláraði myndina. „Ég skammaðist mín fyrir verkið og var ánægður með að geta komið í veg fyrir að einhver sæi hana,“ sagði Lewis. WHO KILLED BAMBI? (1978) 20th Century Fox vildu gera pönkútgáfu af A Hard Day‘s Night með Sex Pistols á hátindi fer- ils þeirra. Johnny Rotten og Sid Vicious heimtuðu að „túttumynda“- leikstjórinn Russ Meyer og handritshöfundurinn Roger Ebert myndu gera myndina en þeir gerðu uppáhaldsmynd þeirra Beyond the Valley of the Dolls. Eftir að tökur hófust áttuðu toppar Fox sig á því að myndin yrði allt of gróf þannig að hætt var við hana. Ebert setti handritið á vefsíðu sína árið 2010. SUPERSTAR: THE KAREN CARPENTER STORY BY TODD HAYNES (1987) Todd Haynes, sem hefur sérhæft sig í myndum um rokk- og poppheiminn, gerði stuttmyndina Superstar: The Karen Carpenter Story á níunda áratugnum sem fjallaði um ævi söngkonunnar Karen Carpenter. Myndin er leikin af brúðum en Haynes skar í Barbie-dúkku til að gera hana mjórri og vísa þar með í baráttu Carpenter við anórexíu. Myndin var því aldrei gefin út opinberlega en hægt er að nálgast hana í slöppum gæðum á YouTube. DARK BLOOD (1993) Þegar leikarinn River Phoenix lést 23 ára að aldri eftir að hafa tekið inn of stóran skammt af vímuefnum var kvikmyndin Dark Blood eftir leikstjórann hollenska George Sluizer skilin eftir í frjálsu falli. Phoenix lék aðal- hlutverkið í myndinni sem hafði að mestu verið tekin, en í hana vantaði lokaatriðin. Vegna þessa var erfitt að klára myndina og því lenti hún í glatkistunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.