Fréttablaðið - 22.12.2014, Page 60
22. desember 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 52
Hætt hefur verið við sýningu á
grínmyndinni The Interview, sem
fjallar um tvo bandaríska blaða-
menn sem þurfa að ráða Kim Jong-
Un, einræðisherra Norður-Kóreu,
af dögum. Norður-Kórea er sögð
hafa hótað hryðjuverkaárásum á
bíóhús þar vestra en hætt var við
sýninguna eftir að tölvuþrjótar,
sem líklega eru tengdir Norður-
Kóreu, brutust inn í tölvukerfi Sony
og láku kvikmyndum og tölvupósti.
Í tilefni af ritskoðuninni á The
Interview tekur Fréttablaðið hér
saman nokkrar frægar myndir
sem fóru í glatkistuna. Flestar eru
enn ófáanlegar en nokkrar þeirra
eru til í mismiklum gæðum.
9 TÝNDAR MYNDIR
MEMORY OF THE
CAMPS (1945)
Alfred Hitchcock
var fenginn til að
framleiða þessa
heimildarmynd
sem klippt var
saman úr upp-
tökum banda-
manna í útrýmin-
garbúðum nasista
og sýnd við Nürnberg-réttarhöldin. Kvikmyndaráð Bretlands
ákvað að gefa hana ekki út þar sem hún gæti valdið fjaðrafoki
gegn Þýskalandi og skemmt fyrir enduruppbyggingu eftir
stríðið. Hægt er að finna útgáfu af myndinni á YouTube.
SONG OF THE SOUTH
(1945) Myndin Song
of the South fjallar um
fyrrverandi þrælinn
Uncle Remus sem segir
nokkrum börnum sögur
af kanínunni Br‘er
Rabbit og vinum hans
í Suðurríkjum Banda-
ríkjanna. Myndin var
fordæmd af NAACP,
réttindasamtökum svartra og forstjóri Disney, Robert Iger,
kallaði hana „nokkuð móðgandi“. „Því miður dregur hún upp
mynd af friðsælu sambandi meistara og þræls, sem er afbökun
á staðreyndunum,“ sagði í tilkynningu NAACP. Myndin var
aldrei gefin út á myndbandi í Bandaríkjunum.
ONE AM (1968)
Franski nýbylgju-
meistarinn Jean-
Luc Godard hélt til
Bandaríkjanna árið
1968, handviss um
að byltingin væri
handan við hornið.
Þar tók hann upp
blöndu af leiknum
atriðum og heimildarefni, til dæmis tónleika Jefferson Airplane
á húsþaki í New York og skáldið Amiri Baraka að spila frídjass.
Byltingin átti sér ekki stað og Godard skildi myndefnið eftir í
Bandaríkjunum, sem var svo klippt og hrært saman af tökumann-
inum D.A. Pennebaker. Hún var sýnd 1972 og féll í gleymsku.
UNCLE TOM‘S FAIRY TALES (1969)
Penelope Spheeris, þekktust fyrir Wayne‘s
World, leikstýrði storkandi grínmynd með
Richard Pryor í aðalhlutverki þar sem
ríkum, hvítum manni er rænt af Svörtu
hlébörðunum, sem rétta yfir honum á
táknrænan hátt fyrir kynþáttahatur hvítra
Bandaríkjamanna. Pryor rústaði filmunni
í rifrildi við eiginkonu sína og ekki hefur
náðst að endurklippa myndina síðan.
COCKSUCKER BLUES (1972) Í heimildar-
myndinni Cocksucker Blues er The Rolling
Stones fylgt eftir á tónleikaferðalagi um
Bandaríkin eftir að platan Exile on Main
St. hafði komið út. Í myndinni er skyggnst
baksviðs þar sem saurlífið var mikið en í einni
senu sést til dæmis Mick Jagger sniffandi
kókaín og í annarri sprautar grúppía sig með
heróíni. Hljómsveitin ákvað að myndin væri of
vandræðaleg og vildi ekki að hún væri sýnd. Myndin er nú fáanleg í
lökum gæðum á netinu.
THE DAY THE CLOWN
CRIED (1972) Bandaríski
grínistinn Jerry Lewis
spreytti sig á kvikmynda-
gerð með The Day the
Clown Cried árið 1972.
Þar lék hann þýskan trúð í
útrýmingarbúðum nasista,
sem skemmti gyðinga-
börnum áður en þau voru
send í gasklefana. Lewis hætti við að gefa hana út eftir að hann
kláraði myndina. „Ég skammaðist mín fyrir verkið og var ánægður
með að geta komið í veg fyrir að einhver sæi hana,“ sagði Lewis.
WHO KILLED BAMBI?
(1978) 20th Century Fox
vildu gera pönkútgáfu af
A Hard Day‘s Night með
Sex Pistols á hátindi fer-
ils þeirra. Johnny Rotten
og Sid Vicious heimtuðu
að „túttumynda“-
leikstjórinn Russ Meyer
og handritshöfundurinn
Roger Ebert myndu gera
myndina en þeir gerðu uppáhaldsmynd þeirra Beyond the
Valley of the Dolls. Eftir að tökur hófust áttuðu toppar Fox sig
á því að myndin yrði allt of gróf þannig að hætt var við hana.
Ebert setti handritið á vefsíðu sína árið 2010.
SUPERSTAR: THE KAREN
CARPENTER STORY BY
TODD HAYNES (1987)
Todd Haynes, sem hefur
sérhæft sig í myndum um
rokk- og poppheiminn,
gerði stuttmyndina
Superstar: The Karen Carpenter Story á níunda áratugnum sem
fjallaði um ævi söngkonunnar Karen Carpenter. Myndin er leikin
af brúðum en Haynes skar í Barbie-dúkku til að gera hana mjórri
og vísa þar með í baráttu Carpenter við anórexíu. Myndin var því
aldrei gefin út opinberlega en hægt er að nálgast hana í slöppum
gæðum á YouTube.
DARK BLOOD (1993) Þegar leikarinn River Phoenix lést 23 ára að aldri eftir að
hafa tekið inn of stóran skammt af vímuefnum var kvikmyndin Dark Blood eftir
leikstjórann hollenska George Sluizer skilin eftir í frjálsu falli. Phoenix lék aðal-
hlutverkið í myndinni sem hafði að mestu verið tekin, en í hana vantaði lokaatriðin.
Vegna þessa var erfitt að klára myndina og því lenti hún í glatkistunni.